Ritstjórn
22.2.2012

Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni í tilefni öskudags

Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í Fríhöfninni í morgunsárið og verður áfram fram eftir degi. Lífleg stemmning enda margs konar verur á ferli sem skemmtu farþegum sem voru á leið út fyrir landssteinana.

Ritstjórn
22.2.2012

Öskudags-Andrésblaði dreift í dag

Í dag mun Edda útgáfa í samvinnu við Arion banka, dreifa 20.000 eintökum af sérútgefnu Andrésblaði til barna í tilefni öskudagsins.  Andrés Önd hefur skemmt íslendingum á íslensku í tæp 30 ár og hefur aldrei komið út í jafn stóru upplagi og nú.

Markmiðið með þessu átaki er að vekja athygli á mikilvægi þess að börn lesi meira og hafi aðgang að góðu íslensku lesefni sem vekur áhuga þeirra.

Edda útgáfa er stærsti útgefandi barnabóka á Íslandi og hefur gefið út Disney-bækur og -blöð í tæp 30 ár. Bækur frá Disney eru meðal söluhæstu barnabóka landsins á hverju ári.

Andrésblaðið kemur út 52 sinnum á ári og er sent inn á heimili áskrifenda í hverri viku.  Áskrifendur eru tæp 4.000 og eru því prentuð yfir 200þúsund eintök á ári af Andrési Önd.

Edda starfrækir auk þess þrjá áskriftarklúbba, Disney-kríli, Disney-klúbbinn og Syrpuna með tæplega 10.000 áskrifendum.  Heildar fjöldi Disney-tímarita og -bóka sem sendar eru reglulega til íslenskra barna yfir árið eru tæplega 300.000 eintök.

Mikil umræða hefur verið um lestrarvenjur barna og þá staðreynd að börn eyða sífellt minni tíma í lestur. Í ljósi umræðunnar þótti tilvalið að gera sérstaka öskudagsútgáfu af Andrési Önd í ár.
Blöðunum er dreift í ókeypis í samvinnu við Arion banka í öllum útibúum bankans á meðan birgðir endast.

Ritstjórn
22.2.2012

Öskudagur: Förum varlega í umferðinni

Í dag er öskudagur og því má búast við mikilli umferð barna. Umferðarstofa vill hvetja ökumenn til að hafa þetta í huga og að þeir hafi óskerta athygli, virði hámarkshraða, noti ekki síma á meðan á akstri stendur og að þeir séu ætíð viðbúnir því óvænta. Foreldrar eru hvattir til að sjá til þess að börnin séu vel sýnileg með tilheyrandi endurskinsmerkjum.

Ritstjórn
22.2.2012

Hefur þú séð Guðmund, 15 ára?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi, þann 17.02.2012 s.l.  og er ekkert vitað um hvar hann er nú niðurkominn.

Aðsendar greinar
22.2.2012

Reunion

Nú líður að 10 ára endurfundum hjá árganginum mínum úr gagnfræðaskóla og þá fara ýmsar hugsanir í gang. Nostalgía og gamlar minningar flæða uppá yfirborðið. Þvílíkur dýrðartími sem það var að vera unglingur. Svo allt í einu man ég það.

Ritstjórn
20.2.2012

Öskudagsball í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi

Undanfarin ár hefur verið haldið upp á gamlar hefðir í Gerðubergi og öskudagsböllin endurvakin. Húsið hefur fyllst af kátum krökkum, héðan og þaðan úr bænum og skemmt sér konunglega.

Heiðrún Finnsdóttir
17.2.2012

Eitt sinn skáti ávallt skáti

Góðverkadagar skátanna standa yfir daganna 20-24 febrúar. Markmið daganna er að hvetja einstaklinga, skóla og fyrirtæki til þess að hjálpa öðrum, sína vináttu og kærleik og láta gott af sér leiða með einum eða öðrum hætti.

Ritstjórn
17.2.2012

11 ára hjólabrettastelpa: Myndband

Hún er alger snillingur á brettinu þessi! Hún heitir Nanaka Fujisawa og er frá Japan. 

Ritstjórn
17.2.2012

Hvernig á að láta litlu krílin sofna: Myndband

Yndislegt myndband sem sýnir okkur alvöru mömmur og hvað þær gera til að láta litlu krílin sín sofna... Mikið er þetta fallegt!

Ritstjórn
17.2.2012

Út að borða fyrir börnin

Þrettán veitingastaðir hafa ákveðið að taka þátt í verkefni Barnaheilla sem gengur þannig fyrir sig að með kaupum á tilteknum réttum mun hluti af verði þeirra renna til verndar barna gegn ofbeldi.

 

Heiðrún Finnsdóttir
16.2.2012

Bókasafn Kópavogs tekst á við ábyrgð

Í dag hélt Bókasafn Kópavogs fyrsta fyrirlesturinn af fjórum um hugtakið „Ábyrgð“. Fyrirlesarinn var heimspekingurinn Gunnar Hersveinn og var hann aðeins sá fyrsti í röð fjögra fyrirlesara en þeir sem næstir verða á dagskrá eru Ragna Árnadóttir, lögfræðingur, Jón Björnsson, sálfræðingur og rithöfundur og Jóna Hrönn Bolladóttir, prestur.

Heiðrún Finnsdóttir
16.2.2012

Lýst eftir 16 ára stúlku

Bleikt barst eftirfarandi tilkynning í pósti og vill biðja lesendur sína um að hafa augun opin

 

 

"Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Helen Sól Fannarsdóttur, 16 ára. Hún er 162 sm á hæð, um 60 kg og með grænblá augu. Helen Sól er með dökkt, sítt hár og tungulokk í augabrún. Síðast sást til hennar við Tjarnarskóla miðvikudaginn 8. febrúar. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Helenar Sólar, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is"

Ritstjórn
15.2.2012

SÁÁ fær veglegan styrk: „Hann kemur sér sérstaklega vel“

VÍS, Hamborgarafabrikkan og Hemmi Gunn styrktu SÁÁ um hálfa milljón í dag en Hemmi Gunn afhenti Hamborgarafabrikkunni Góða Gítarinn til varðveislu um ókomna tíð en Góði Gítarinn er hljóðfæri sem skartar eiginhandaráritunum á þriðja hundrað íslenskra tónlistarmanna.

Aðsendar greinar
14.2.2012

Eru börnin okkar hamingjusöm?

Velferð barna er málefni sem öll samfélög ættu að gæta að. Það er ekki einungis mikilvægt að stuðla að hamingju barna til þess að gæta hagsmuna barnæskunnar, en einnig svo traustur grunnur sé lagður að góðri framtíð og velferð fullorðinsáranna.

Ritstjórn
13.2.2012

Líf gaf þrívíddarómskoðunarhaus á Fósturgreiningardeild

Fósturgreiningardeild Landspítalans hefur yfir fimm óskoðunarækjum að ráða. Öll eru þau búin ómhausum til að skoða með tvívíddartækni þ.e. hin hefðbundna ómskoðun. 

Heiðrún Finnsdóttir
13.2.2012

Valentínusardagurinn - Staðreyndir

Á morgun fagna elskendur um allan heim degi ástarinnar. Blómasalar anna vart eftirspurn, börn, unglingar og fullorðnir skiptast á kortum og kærleikurinn ríkir víðast hvar sem þessi dagur er haldinn hátíðlegur. Íslenskum aðdáendum þessa dags fjölgar á hverju ári en hvað vitum við í raun um dag þennan dag ástarinnar? Bleikt tók saman nokkrar staðreyndir og hjátrúr varðandi Valentínusardaginn.

Ritstjórn
11.2.2012

Niðrandi að tala um „brotin heimili“ og „brotnar fjölskyldur“

„Börn sem eiga fráskilda foreldra eru ekki öll óhamingjusöm. Ætli þeim líði ekki jafn misjafnlega og börnum giftra foreldra eða foreldra í sambúð?“ Þetta segir Guðrún Karlsdóttir prestur í grein í Fréttablaðinu í dag.

 

Kynning/umfjöllun
11.2.2012

Form Fix fyrir móður og barn

Á meðan á meðgöngu stendur, þarf hryggsúlan oft að þola mikinn þrýsting. Það getur verið erfitt, sérstaklega á síðustu mánuðum meðgöngunnar, að finna þægilega stellingu til að sitja eða liggja. Form Fix slökunarpúðinn býður upp á lausnina. Púðinn gefur bakinu eða maganum aukinn stuðning.

Ritstjórn
10.2.2012

Lærði íslensku í gegnum Sigur Rós

Ramón Castellón er 21 árs Kaliforníubúi sem heillaðist af íslenskri tungu í gegnum Sigur Rós og Múm. Fljótlega fann hann hjá sér þörf til þess að skilja merkingu textanna og flétti því orðunum upp. Eftir það var ekki aftur snúið og nú eyðir Ramón frítíma sínum í íslensku nám en hann lærir tunguna á eigin vegum með hjálp frá íslenskum Facebook vinum.


Ritstjórn
10.2.2012

Safnabelti fyrir fjölskylduna kynnt á Safnanótt í kvöld

Safnanótt verður haldin í kvöld, föstudagskvöld, frá sjö til miðnættis. Fjölmargar sýningar verða í boði og kostar ekkert inn á þær. Safnabeltið er líka kynnt nú í fyrsta sinn en það er búið ýmisskonar verkfærum sem gerir heimsókn fjölskyldunnar í söfnin að nýrri upplifun og skemmtilegum leik.

 

Fjölmargt verður á dagskránni í söfnun borgarinnar (http://www.listasafnreykjavikur.is/desktopdefault.aspx/tabid-2185/3362_read-30155/). Í Hafnarhúsi verður töfrandi ljósagjörningur í fjölnotasal og á Kjarvalsstöðum býður Heimilsiðnaðarfélagið upp á prjónakaffi og Skotthúfurnar sjá um harmonikkuleik. Unga kynslóðin ræður ríkjum í Ásmundarsafni en þar leita nemendur Klassíska listdansskólans eftir innblæstri í verkum Ásmundar og vonarstjarna íslenskra hljómsveita, White Signal, treður upp. Ókeypis strætó gengur á milli allra safna sem taka þátt í Safnanótt þetta kvöld.

 

Í tilefni af Vetrarhátíð verður aðgangur ókeypis fyrir ungt fólk að 25 ára aldri laugardaginn 11. febrúar.                               

 

Á Safnanótt fer fram kynning á nýjung í íslensku safnastarfi í Ásmundarsafni klukkan sjö, á Kjarvalsstöðum klukkan átta og í Hafnarhúsi klukkan níu en þessi nýjung er Safnabelti fjölskyldunnar. Við Safnabeltið hangir taska sem er útbúin allskonar „verkfærum“ sem er ætlað að hjálpa fjölskyldusafngestum að upplifa listaverkin og söfnin á eigin forsendum. Safnabeltið stendur gestum til boða í öllum húsum safnsins og er ókeypis. Hönnuður og hugmyndasmiður Safnabeltisins er Alma Dís Kristinsdóttir, verkefnastjóri við Listasafn Reykjavíkur.

 

 

Ritstjórn
9.2.2012

Gói og Þröstur snúa aftur!

Loksins er komið að því: Ævintýri Góa og Þrastar halda áfram í Borgarleikhúsinu en nú er komið að öðru ævintýri þeirra félaga sem er um Góa og Baunagrasið. Þeir sem sáu síðustu sýningu voru væntanlega yfir sig heillaðir og bíða með eftirvæntingu eftir þessari nýju!

Ritstjórn
8.2.2012

Katrín Lilja berst fyrir lífi sínu: Söfnun fyrir fjölskylduna

Söfnun hefur nú verið hrundið af stað fyrir Katrínu Lilju sem er rúmlega þriggja mánaða gömul og berst fyrir lífi sínu. Foreldrar hennar hafa þurft að vera uppi á spítala nánast allan sólarhringinn og þaurfa þau á öllum stuðningi að halda sem hægt er að fá. Endilega gefið ykkur tíma í lesninguna um litlu hetjuna.

Ritstjórn
8.2.2012

Meðlag nær ekki 25 þúsund krónum

Meðlag með einu barni hefur hækkað úr 17.249 krónum í 24.230 krónur á sex árum. Þetta er það sem einstætt foreldri fær á mánuði. Upphæðin dugar ekki einu sinni fyrir fullri dagvist hjá dagforeldri. Engin föst regla er um upphæð meðlagsins eða hvort hún fylgir vísitölu eða launahækkunum heldur er það bara ákvörðun og afgreiðsla ráðuneytisins hverju sinni. 

Ritstjórn
7.2.2012

30 ár liðin frá stofnun Kvennaathvarfsins

Á árinu 2012 munu Samtök um Kvennaathvarf minnast þess með ýmsum hætti að 30 ár eru liðin frá stofnun samtakanna og opnunar Kvennaathvarfsins sem allar götur síðan hefur veitt konum og börnum þeirra skjól þegar dvöl á heimilum hefur verið óbærileg vegna ofbeldis. 

Ritstjórn
7.2.2012

Ellen gefur einstæðri móður bíl: Myndband

Svo afskaplega...þið vitið. Hvar er tissjúið?

Aðsent efni
7.2.2012

Morðið í Hafnarfirði: Í gæsluvarðhald og mun undirgangast geðrannsókn

Karl á þrítugsaldri var í dag í héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 

Ritstjórn
7.2.2012

Barnabítboxari: Myndband

Þvílíkur töffari! Færustu tónlistarmenn (og tölvur) eiga ekkert í þetta barn!

Aðsent efni
6.2.2012

Átt þú þessa skartgripi?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda skartgripa sem eru í hennar vörslu. Einnig er leitað eigenda snyrtivara og tösku, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. 

Ritstjórn
6.2.2012

Hvaða skilaboð senda Disneyprinsessur börnunum okkar?

Hér er mynd sem skýrir þau skilaboð. Óþægilegt að sjá þetta svona?

Ritstjórn
4.2.2012

Íslenskur læknir bjargaði sjón þriggja ára drengs með aðstoð Facebook

Íslenskur læknir bjargaði sjón þriggja ára sænsks drengs eftir að hafa séð mynd af honum skaðbrenndum í framan á Facebook. 

Ritstjórn
4.2.2012

Blár Ópal í Skemmtigarðinum í Smáralind kl. 15:00 í dag, laugardag!

Eurovision- stjörnurnar í Bláum Ópal skemmta í Skemmtigarðinum Smáralind í dag kl.15:00. Ekki missa af þessum frábæru ungu tónlistarmönnum.Skemmtigarðurinn Smáralind!

Ritstjórn
4.2.2012

Kærleikshátíð í dag: Súkkulaðibros verma hjartað

Kærleikshátíðin verður haldin í Reykjavík í dag og þá er nú upplagt fyrir allar fjölskyldur að klæða sig vel og mæta niður á Austurvöll klukkan tvö því að þar verður kærleiksrík stund í boði.

Ritstjórn
2.2.2012

Sigmar í Kastljósi: „Það voru allir með tárin í augunum“

Eiríkur Ingi Jóhannsson hreif þjóðina í viðtali í Kastljósi í gær og segir Sigmar Guðmundsson að viðtalið væri eitt af þeim sem orkuðu hvað mest á hann í gegnum tíðina.

Ritstjórn
2.2.2012

Karítas Ósk í Kenýa: „Grét þegar ég sá aðbúnað barnanna“

Fyrirsætan Karítas Ósk fór til Kenýa og hjálpaði til við byggingu skóla þar úti. Hún segir aðbúnaðinn hafa almennt verið hryllilegan fyrir börn en í ABC skólanum og heimavistinni hafi aðbúnaðurinn verið betri þar sem börn ættu íslenska styrktarforeldra. 

Ritstjórn
2.2.2012

Íslensk stjórnvöld hvött til að fullgilda sáttmála sem vernda börn gegn mansali og misnotkun

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er sterkasti ramminn til að standa vörð um velferð barna og eru íslensk stjórnvöld hvött til að fullgilda alþjóðasamninga.

Ritstjórn
2.2.2012

Ótrúlega lík! - Myndir

Þessi mynd er komin til ára sinna en gleður mann alltaf jafn mikið! :)

Ritstjórn
1.2.2012

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kosin vefhetja ársins

NEXPO-vefverðlaunin 2011 voru afhent um síðustu helgi en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk viðurkenningu sem Vefhetja ársins

Ritstjórn
1.2.2012

Foreldrahlutverkið í reynd: Mynd

Þó draumar séu fallegir er raunveruleikinn stundum annar...

Ritstjórn
1.2.2012

Kvennahljómsveit Önnu Maríu vann dönsku tónlistarverðlaunin 2011

„Við vorum eiginlega alveg orðlausar að vinna þessi verðlaun sem gerist nú ekki oft í níu kvenna hópi,“ Segir Anna María Björnsdóttir, 25 ára íslensk stelpa úr Garðabænum en hljómsveit hennar IKI vann dönsku tónlistarverðlaunin 2011.

Ritstjórn
31.1.2012

Skorað á velferðarráðherra vegna tæknifrjóvgana

Eiga tæknifrjóvganir að vera niðurgreiddar? Það finnst tæplega 2000 manns sem hafa skrifað undir áskorun til velferðarráðherra en tæknifrjóvganir kosta allt frá 380. þúsund til 450. þúsund króna. 

Ritstjórn
31.1.2012

100 ára heldur sér ungri með því að spila Nintendo: Myndband

„Mér finnst ég ekki degi eldri en 80 ára,“ segir Kathleen Kit Connell, eða Kit eins og hún er kölluð en hún spilar tölvuleiki í tvo tíma á dag. Í stað þess að prjóna eða spila bingó er uppáhaldið hennar Nintendo DS Lite. Hún er alveg yndisleg, kíkið á myndbandið!

Aðsent efni
30.1.2012

Jóganámskeið fyrir krakka!

Miðvikudaginn 1.febrúar nk. hefst 5 skipta
krakkajóganámskeið í jógasal Ljósheima.

Þetta er fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára og kennari er
Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir barnajógakennari.

Við gerum skemmtilegar jógaæfingar, fræðumst örlítið um jóga,
kynnumst JÓGADÝRUM, förum í fjölbreytta leiki sem þjálfa
athygli, örva samhæfing, hreyfiþroska, slökum á og margt fleira.
Á námskeiðinu kemur svo eitt JÓGADÝR í heimsókn.

Í seinasta tímanum kemur foreldri/foreldrar með í tímann og
þá verða kenndir leikir sem þið getið farið í saman eftir að
námskeiði lýkur. Ef foreldrar komast ekki er í góðu lagi að bjóða ömmu/afa eða öðrum úr fjölskyldunni með í tímann.

Námskeiðsdagar eru eftirfarandi miðvikudagar kl 15:45-16:30:
1.febrúar, 8.febrúar, 15.febrúar, 29.febrúar og 7.mars.
Verð 6.500,-kr.

Skráning hafin hjá Arnbjörgu Kristínu í s: 862-3700 eða
arnbjorgkristin@ljosheimar.is.
www.ljosheimar.is

Ritstjórn
30.1.2012

„Heillaðist af norðurljósunum“

„Sem barn heillaðist ég af norðurljósunum, Geysi og eldfjöllunum“ Segir hin 24 ára gamli Diego A. Arias en hann hefur verið að störfum hér á landinu í fimm mánuði.

 

 „Alveg frá barnæsku þráði ég að heimsækja landið, myndirnar af landinu voru spennandi og áhugaverðar. Ég greip því tækifærið um leið og það gafst og hér er ég komin. Ég er að vinna fyrir stúdentasamtökin AIESEC en það eru alþjóðleg stúdentasamtök sem efla tengslanet nemenda við fyrirtækin í heiminum, undirbúa þá fyrir framtíðina og færir þeim reynslu sem þeir myndu annars ekki öðlast fyrr en þeir kæmu út á vinnumarkaðinn. Þetta er krefjandi starf en það gefur einnig mikið af sér, ég fæ að vinna með ótrúlegu fólki og í gegnum starfið kemst ég inn í íslenskt samfélag.“

 

Aðspurður að því hvernig honum líki við landið segir Diego að honum þyki Ísland frábært land.

 

„Ég elska fólkið hérna, veðrið og eiginlega allt. Landið og fólkið hefur staðið undir væntingum og allt hefur verið eins og ég var að vonast til að það væri, ný reynsla en þetta er frábrugðið því sem ég er vanur.“

 

Diego kemur frá Kolumbíu og er uppalinn á allt annan hátt en Íslendingar, enda löndin tvö ólík og menningin líka.

 

„Ég hef upplifað mikið menningarsjokk hérna, sérstaklega í samstarfi mínu við aðra nemendur. Hugsunarháttur okkar er mjög ólíkur. Samt sem áður hef ég gaman af að deila minni menningu og hugsunarhætti með öðrum og auðvitað finnst mér gaman að kynnast íslenskri menningu og íslenskum hugsunarhætti.“

 

Diego mun dvelja hér á landi til sumarsins 2013 en þá mun hann líklegast halda áfram för sinni um heiminn.

 

„Ég er ekki viss á því hvað tekur við. Ég var að störfum í Indlandi fyrir AIESEC og í gegnum það starf hafa mér boðist fleiri störf þar en ég get alveg hugsað mér að vinna meira með samtökunum og fara eitthvert annað á þeirra vegum“

 

Að lokum spurði blaðamaður hann hvort hann hefði prófað íslenska þorramatinn og hvernig honum líkaði hann.

 

„Ég hafði ekki hugmynd um Þorrann en ég mun pottþétt prófa matinn úr því ég veit af honum.“ Svarar Diego og bíður eftir því að prófa hákarlabita.

Ritstjórn
30.1.2012

Uggs skór bannaðir í skóla: Myndband

Nei, það er ekki af því þeir eru svo ljótir, heldur vegna þess að nemendur fela bæði símana sína og sælgæti í þeim. Nemendur þurfa að fjarlægja þennan skóbúnað áður en þeir fara í tíma en ekki eru allir foreldrar jafn ánægðir með ákvörðun skólans, sem er í Pennsylvaniu, Bandaríkjunum. 

Aðsendar greinar
28.1.2012

Að missa barn

Ég á tvö börn. Eitt sem sefur núna í rimlarúminu sínu og knúsar bæði Bangsímon og Grísling. Hitt barnið mitt fékk ekki að lifa en ég veit að hún er hjá mér. Sjáið til, barneignir enda ekki alltaf í hraustu barni með 10 fingur og 10 tær.

 

Ritstjórn
26.1.2012

Stóri Dan bjargaði konu og fór með í kvennaathvarfið

Þegar kærasti nokkur ákvað í bræði sinni að ráðast á kærustuna með hamri steig óvæntur björgunaraðili inn í atburðarrásina. Stóri Dan hundur sem kærastan átti gat ekki hugsað sér að horfa á ódæðisverkið, stökk því á milli þeirra og tók við höggunum. 

Ritstjórn
25.1.2012

Gerum lífið skemmtilegt! - Myndband

The Fun Theory eða skemmtilega kenningin eins og hún gæti útlagst á íslensku, er hugarfóstur Volkswagen og gengur út á breyta hegðun fólks til hins betra, virkja það í hreyfingu og fá almenning til að ganga betur um umhverfið sitt. 

Ritstjórn
25.1.2012

Ein áhrifamesta kona á Íslandi: „Uppgjöf ekki til í minni orðabók“

Janne Sigurðsson var tiltölulega óþekkt nafn í íslensku atvinnu- og viðskiptalífi þegar hún allt í einu tók við starfi forstjóra Alcoa Fjarðaáls um áramótin. Bleikt fékk að kynnast þessari konu aðeins.

Ritstjórn
25.1.2012

„Teiknaði hryllingsmyndir í leikskóla!“

Elvar Ingi Helgason er tilnefndur til Dimmalimm verðlaunanna sem gefin eru fyrir bestu myndskreytingar í barnabókum. Elvar segir frá ástríðu sinni og verkefnum, en í dag er hann m.a. að teikna fyrir nýjan íslenskan tölvuleik. 

Ritstjórn
24.1.2012

Rifrildi eru heimskuleg: Mynd

...og manni finnst pínu kjánalegt að vera fullorðinn stundum...

Ritstjórn
22.1.2012

16 ára stúlka sú yngsta til að sigla ein umhverfis hnöttinn

Hin hollenska Laura Dekker sigldi í höfn í gær eftir árs siglingu í kringum hnöttinn. Mannfjöldi fagnaði henni þar sem hún kom að landi í St. Maarten í karabíska hafinu en hún fór af stað í ferðina þann 20 janúar 2011.

Ritstjórn
21.1.2012

Frábær norðurljósaspá í kvöld!

Miklar líkur gætu verið á norðurljósum í kvöld ef marka má norðurljósaspá Geophysical Institute í Alaska. Stofnunin telur að á skalanum núll upp í níu séu líkur upp á einkunnina fimm að norðurljós sjáist á himninum. Þessar líkur telur hún að séu „extreme“ eða frábærar.

Ritstjórn
21.1.2012

Nemendur á leið í skólann...í Indónesíu: Mynd

Við erum alltof gjörn á að kvarta. Smá snjór og við förum á hliðina! Sjáið aðstæður þessara nemenda í Indónesíu...

Ritstjórn
21.1.2012

Sigríður Guðmarsdóttir: „Lengi hafa viðgengist skammarlega lágir dómar við kynferðisbrotum“

Sigríður Guðmarsdóttir, prestur í Guðríðarkirkju, er sú fyrsta sem hefur boðið sig fram til biskups. Hún ætlar að verða biskup sem tekur til hendinni, talar til þjóðarinnar um trúna og innstu gildi og stendur fyrir opna stjórnsýslu og lýðræði.

Aðsendar greinar

Reunion

Heiðrún Finnsdóttir

Hin fullkomna þú

Keyrir á Disil CMS frá Atómstöðinni