„Sem barn heillaðist ég af norðurljósunum, Geysi og eldfjöllunum“ Segir hin 24 ára gamli Diego A. Arias en hann hefur verið að störfum hér á landinu í fimm mánuði.
„Alveg frá barnæsku þráði ég að heimsækja landið, myndirnar af landinu voru spennandi og áhugaverðar. Ég greip því tækifærið um leið og það gafst og hér er ég komin. Ég er að vinna fyrir stúdentasamtökin AIESEC en það eru alþjóðleg stúdentasamtök sem efla tengslanet nemenda við fyrirtækin í heiminum, undirbúa þá fyrir framtíðina og færir þeim reynslu sem þeir myndu annars ekki öðlast fyrr en þeir kæmu út á vinnumarkaðinn. Þetta er krefjandi starf en það gefur einnig mikið af sér, ég fæ að vinna með ótrúlegu fólki og í gegnum starfið kemst ég inn í íslenskt samfélag.“
Aðspurður að því hvernig honum líki við landið segir Diego að honum þyki Ísland frábært land.
„Ég elska fólkið hérna, veðrið og eiginlega allt. Landið og fólkið hefur staðið undir væntingum og allt hefur verið eins og ég var að vonast til að það væri, ný reynsla en þetta er frábrugðið því sem ég er vanur.“
Diego kemur frá Kolumbíu og er uppalinn á allt annan hátt en Íslendingar, enda löndin tvö ólík og menningin líka.
„Ég hef upplifað mikið menningarsjokk hérna, sérstaklega í samstarfi mínu við aðra nemendur. Hugsunarháttur okkar er mjög ólíkur. Samt sem áður hef ég gaman af að deila minni menningu og hugsunarhætti með öðrum og auðvitað finnst mér gaman að kynnast íslenskri menningu og íslenskum hugsunarhætti.“
Diego mun dvelja hér á landi til sumarsins 2013 en þá mun hann líklegast halda áfram för sinni um heiminn.
„Ég er ekki viss á því hvað tekur við. Ég var að störfum í Indlandi fyrir AIESEC og í gegnum það starf hafa mér boðist fleiri störf þar en ég get alveg hugsað mér að vinna meira með samtökunum og fara eitthvert annað á þeirra vegum“
Að lokum spurði blaðamaður hann hvort hann hefði prófað íslenska þorramatinn og hvernig honum líkaði hann.
„Ég hafði ekki hugmynd um Þorrann en ég mun pottþétt prófa matinn úr því ég veit af honum.“ Svarar Diego og bíður eftir því að prófa hákarlabita.