Nafnlaust
18.2.2012

Játning: Strákar eru misjafnir

Ókei stelpur, ég er alls ekki að segja að það séu allir strákar slæmir eða vilji særa stelpur. Ég þekki strák sem er algjörlega fullkominn og kemur alltaf vel fram við mig, en ég hef hinsvegar lent í mjög slæmum strák sem var að reyna að neyða mig í hluti sem ég vildi ekki gera.

Nafnlaust
17.2.2012

Játning: OA-samtökin björguðu lífi mínu

 

Ég er 36 ára kona og ég ræð ekki við mat. Mér hefur alltaf þótt gott að borða. Á unglingsárunum man ég eftir átköstum, þar sem ég borðaði það mikið að mér leið illa á eftir og eitt skipti það mikið að ég ældi. Á þessum tíma fór ég líka í fyrstu megrunina. Þær urðu margar eftir það.

 

 

Þær áttu samt eitt sameiginlegt, á einhverjum tímapunkti byrjaði ég segja mér að ég hefði staðið mig svo vel að ég ætti skilið að svindla. Þegar ég byrjaði að svindla gat ég kannski látið einn lítinn bita af einhverju nægja. Í næsta skipti gat ég ekki stoppað fyrr en eftir tvo bita, þangað til að ég hafði misst alla stjórn. Vigtin sveiflaðist auðvitað eftir þessu.

 

 

Þegar ég flutti af heiman þá fékk ég að ráða alltaf hvað var í matinn. Það þýddi að ég bætti á mig mörgum kílóum. Eftir nokkur ár var ég farin að nálgast þriggja stafa tölu en ég er lágvaxin kona svo að ég var löngu komin í alvarlega offitu. Fjölskyldumeðlimir voru farnir að benda mér vinsamlega á að ég væri að stefna heilsu minni í hættu.

 

 

Ég var komin með ýmis líkamleg einkenni offitu, hafði misst gallblöðruna, var stöðugt með meltingartruflanir, farin að finna fyrir liðverkjum.

 

 

Ég tel mig vera ágætlega greinda konu og ég las mér til um offitu og vissi margt um mergranir, næringargildi, gildi hreyfingar og allt það sem ég þurfti að gera. En eins og ég sagði grátandi í símann við systur mína einhvern daginn þegar ég var með sem mest ógeð á sjálfri mér: „Ég veit alveg hvað ég þarf að gera, en ég get þetta ekki!”

 

 

Eitt af því sem ég las var grein um mann sem var í OA-samtökununum(Overeaters Anonymous). Hann lýsti hvernig hann þurfti að skipuleggja matinn sinn fyrirfram á hverjum degi og hvernig honum leið miklu betur. Ég hugsaði þá að þetta væri eitthvað fyrir mig, en vissi líka að það væru litlar líkur á því að ég gæti þetta, ég var nefnilega þannig að í öllum mergrunarkúrum þar sem ég átti að halda matardagbók gekk það í nokkra daga, en …gleymdist” svo bara. Allt annað fannst mér samt passa nokkuð við mig, sérstaklega lýsingin á því hvernig samband hans við mat var.

 

Það var svo ca. fimm árum seinna að vinkona mín byrjaði í OA. Ári seinna bauð hún mér með á fund. Eftir að ég missti gallblöðruna var ég hætt að geta tekið megranir með brjáluðum nammidögum einu sinni í viku og ég vissi að ég þyrfti að gera eitthvað og þess vegna sagði ég já.

 

 

 

Ég heyrði strax að ég átti mikið sameiginlegt með þeim þarna voru. Ég gat alveg fundið e-ð sem passaði ekki við mig, en ég hafði lesið í lesefni OA að það væri eins og AA, nema maður setti bara matur í staðinn fyrir áfengi og ef ég gerði það virkuðu allar ræðurnar mínar um að alkóhólistar ættu bara að hætta að drekka einn dag í einu ekki lengur, ef ég sagði við sjálfa mig að ég þyrfti bara að ekki borða yfir mig einn dag í einu, eða ekki borða nammi einn dag í einu þá gat ég engan vegin staðið við það.

 

 

Ég fór fljótlega að vinna með trúnaðarkonu sem leiddi mig í gegnum 12 spor OA samtakanna. Ég fann út hvaða matartegundir ég gat ekki hætt að borða ef ég byrjaði á þeim og hélt mig frá þeim einn dag í einu. Ég bjó til mitt matarplan sem hét þrjá máltíðir á dag, einu sinni á diskinn, og ein til tvær millimáltíðir eftir þörfum og sleppti sykri, majónessalötum og ostum og kexi.

 

 

Í sporavinnunni komst ég að því að maður fær fullt af tíma og orku ef hausinn á manni er ekki alltaf sífellt að hugsa um mat, hvað maður eigi að borða næst, hvernig maður eigi að borða án þess að aðrir verði þess varir, hvort að einhver taki eftir því hvort maður fari ferð nr. 6 að kökuborðinu.

 

 

Ég hef í dag verið í fráhaldi í fimm ár, fimm mánuði og fimmtán daga. Ég hef misst 25-30 kg. Ég hef líka fengið að takast á við andlegar og tilfinningalegar hliðar sjúkdómsins, ég hef unnið með mína sjúklegu stjórnsemi, ég á eiginmann í dag sem eflaust væri ekki eiginmaður minn ef ég hefði ekki verið í OA, ég á gott samband við flesta, fíflunum í kringum mig hefur fækkað stórlega.

 

 

Ég fer á OA-fund a.m.k. einu sinni í viku, ég á trúnaðarkonu, ég er trúnaðarkona fyrir aðra, ég hef samband við aðra OA-félaga, ég skrifa um vandamál mín og tilfinningar  og les OA-lesefni í staðinn fyrir að leysa öll vandamál með mat. Ég hef í fráhaldi tekist á við lífið, það hefur átt sín góðu og slæmu daga, en ég er miklu betur í stakk búin til að takast á við hvað sem er þegar hausinn á mér og líkaminn er ekki fullur af óhollum mat.

Nafnlaust
16.2.2012

Játning: Hvernig gat ég sleppt þessari æðislegu stelpu?

Ég get byrjað á að lýsa mér svona: 16 ára venjulegur strákur, stundar íþróttir 6-7 sinnum á viku, sinnir náminu sínu vel, hefur aldrei prófað að reykja, drekka, bagga og fleira sem unglingar prófa.

Nafnlaust
7.2.2012

Játning: Takk fyrir að vera vinkona mín

Elsku vinkona. Í nær sextán ár hef ég þekkt þig betur en nokkur önnur manneskja í þessum stóra heimi, og það sama getur þú sagt um mig. Þú hefur verið til staðar þegar ég þarfnaðist þín og ég hef alltaf verið til staðar þegar þú þarfnaðist mín.

Nafnlaust
6.2.2012

Játning: Ég lærði líka mikið af mistökum mínum

Hæ ég las játninguna þína og varð mjög hissa á því að þetta er eiginlega það nákvæmlega sama og gerðist fyrir mig. Ég var voðalega hrifin af strák í níunda bekk og ég var þá í áttunda bekk. Eftir u.þ.b. 1 mánuð af daðri og kossum, byrjuðum við saman.

Nafnlaust
3.2.2012

Játning: Ég varð aldrei gelgja

Ég er unglingsstúlka sem aldrei hefur átt það sem kallast góður vinskapur. Alveg frá því að ég byrjaði á leikskóla hef ég aldrei átt vinkonu á reki við sjálfa mig.

 

Ritstjórn
2.2.2012

Játning: Gerði hluti sem ég vildi ekki til að missa hann ekki

Ég er 15 ára stelpa og var í sambandi með honum í þrjá mánuði. Frá því að 3 vikur voru liðnar var hann alltaf að biðja um eitthvað kynferðislegt, en ég sagði alltaf að ég væri ekki tilbúin strax og vildi bíða með það.  

 

Nafnlaust
31.1.2012

Játning: Hef ekki hugmynd um hvað ég er að gera við líf mitt

Allt mitt líf hef ég verið talinn hamingjusamur strákur...foreldrar mínir spáðu aldrei neitt í slæmu hliðinni á mér, töldu mig alltaf vera frábæran son.

 

 

Aldrei neitt vesen á mér eða neitt stelpufár eða neitt. En því miður hef verið í miklu veseni og ég hef notað eiturlyf oftar en talið er eðlilegt. Ég átti aldrei neina fjölskyldu, ég átti bara fólk sem átti heima í sama húsi og ég sem ég borðaði kvöldmat með.

 

 

Aldrei á ævinni hef ég upplifað ást frá foreldrum eða systkinum. Ekki misskilja mig...ég er ekki gæinn sem fer niður í bæ allar helgar og kemur heim blindfullur og niðurlútur. Nei, ég er sá aðili sem er alltaf einn inní herbergi, ég á vini en þeir koma voða sjaldan til mín þegar ég þarf á þeim að halda. Ég á hins vegar fullt af kunningjum.

 


Nú er ég á 18 ári og aldrei á ævinni hef ég upplifað jafn miklar vangaveltur. Ég hef hugsað stanslaust um líf mitt frá nóvember í fyrra. Ég hef ekki hugmynd um hvað ég er að gera við líf mitt. Og ég er svo hræddur um að enda sem einhver aumingi í framtíðinni.

 

 

Ég er jú í skóla en ég veit ekkert hvað ég er að gera...ég einbeiti mér ekki að neinu sem er í gangi. Mér líður alltaf vel í skólanum vegna þess að þar hitti ég vini mína og það er ástæðan fyrir því að ég er ennþá í skóla. Ég veit ekkert hvert ég er að fara með líf mitt.

 

Um daginn tók ég upp á því að byrja að skrifa dagbók, svona til að geta komið tilfinningum mínum á framfæri. Ég held ég hafi aldrei sagt neinum tilfinningar mínar, þó ég hafi farið til sálfræðings. Ég sagði honum bara til syndanna og mætti ekki aftur. Ég hef vandamál. Ég veit að ég er þunglyndur en það hlustar bara engin á mig.

 


Ég er kominn með leið á þessari grímu sem ég set alltaf upp þegar ég er innan um fólk. Svo oft hef ég ætlað að sigrast á feimni minni en ekkert gengið. Ég hugsa ennþá alltaf: „Einn daginn...þá mun kannski eitthvað fara að gerast í lífinu...“

Nafnlaust
30.1.2012

Játning: Ég þarf að segja henni að ég sé stelpa

Ég er ekki alveg viss hvernig á að segja frá þessu en ég er 15 ára stelpa, og fyrir sirka tveimur árum þá var ég nokkuð mikið lögð í einelti en ég er það reyndar ekki lengur en á þessum tíma mér leið verulega illa. Mér fannst ég ekki hafa neinn til að tala við en stuttu eftir það þá sá ég síðu um „Roleplay“  þar sem þú átt að búa til persónu og eignast fjölskyldu og vini.

 

Nafnlaust
28.1.2012

Játning: Íþróttin er að eyðileggja félagslífið

Ég er frekar venjuleg 15 ára stelpa sem hefur það ekkert of gott. Mér líður illa næstum hvern einasta dag og líður stundum eins og ég sé  að verða eithvað þunglynd. Þanning er það nefnilega að ég er að æfa  íþrótt sem við skulum kalla x og allur minn tími utan skóla fer í að vera í x.

Nafnlaust
27.1.2012

Játning: Ég græddi heilmikið á mistökunum mínum!

Ég er stelpa sem býr á höfuðborgarsvæðinu og eg er í 10.bekk. Mig  langar svo mikið að deila þessari sögu með ykkur og ég vona að hún verði birt inná bleikt.is.  Margir halda örugglega þegar þeir byrja að lesa „Oooh, hún er örugglega að kvarta yfir einhverju drama, ég nenni ekki að lesa þetta"   Ég er ekki að fara kvarta yfir neinu drama.



Ritstjórn
26.1.2012

Játning: Hún er að reyna að stela vinkonum mínum

Það er nú þannig að ég á nokkrar bestu vinkonur sem ég geri allt með og gæti aldrei lifað án. Þær vita ALLT um mig, það er ekki neitt sem ég segi þeim ekki.

 

Nafnlaust
24.1.2012

Játning: Ég mun aldrei gleyma hvað þú gerðir

Ég lenti í hræðilegu atviki þegar ég var ung og ætla að segja sögu mína hér.

 

Nafnlaust
24.1.2012

Játning: Ekki glaða, saklausa stelpan lengur

 Ég er ósköp venjuleg 15 ára stelpa sem lifir lífinu til fulls og er alltaf brosandi, glöð og í góðu skapi. Ég æfi mjög mikið, ég þjálfa og fyrir utan það er ég í tveimur vinnum og mér er alltaf hrósað fyrir að brosa allann daginn, vera alltaf hress og glöð, í góðu skapi og allt þetta... En það veit enginn hvað er á bakvið þetta bros! 



Nafnlaust
22.1.2012

Játning: Playerar hættið að særa stelpur!

Ég hef lengi og vel pælt í þessum playerum. Sjálf hef ég lent í nokkrum og var alveg vel særð eftir þá. Það sem ég vil tjá er að strákar eru að taka fyrir sér einhverja fyrirmynd, sem sefur hjá stelpum og hunsar þær svo og særir þær.

 

 

Nafnlaust
21.1.2012

Játning: Hef bara sofið hjá kærustunni minni

Ég vona að einhverjum finnist vera eitthvað vit í þessari grein, en ég hef verið að spá í að skrifa hana í smá tíma. Þetta er semsagt um mitt álit á kynlífi og hverjum maður ætti að stunda það með.

 

Nafnlaust
20.1.2012

Játning: Að líða illa þegar maður horfir í spegil

Að líða illa með sjálfan sig er eitthvað sem ég þekki vel. Mér hefur liðið þannig síðan ég var í 4. bekk í grunnskóla. Nú er ég 17 ára og ég get varla litið í spegil án þess að verða bitur og ósátt með sjálfan mig.

Nafnlaust
19.1.2012

Játning: Ástfangin af úrvals fífli

Hann gerði líf mitt að paradís, hann lagaði líf mitt, hann bjargaði mér frá öllum sársauka, hann hjálpaði mér í gegnum svo margt, hann gerði allt sitt besta til þess að láta mér líða vel.

Nafnlaust
13.1.2012

Játning: Svar við „Unglingar sem vinna í sjoppu eru líka fólk“

Ég er ekki unglingur, en hef unnið við ýmiskonar afgreiðslu og þjónustu frá unglingsaldri. Ég get verið algjörlega sammála játningunni því að Íslendingar margir hverjir mega fara að bera meiri virðingu fyrir afgreiðslufólki.

Nafnlaust
12.1.2012

Játning: Hann var lagður í einelti og ég gerði ekkert

Mikið hefur verið fjallað um einelti undanfarið, og mjög góð ástæða til. Vegna þessarar umræðu fór ég að hugsa til baka og til grunnskólaára minna. 

Nafnlaust
11.1.2012

Játning: Þú þarft ekki að vera alki þó foreldrar þínir séu það

Ég sá hérna pistil um daginn um stelpu sem átti föður sem var alki svo ég ákvað að prófa sjálf því ég þarf að fá að pústa.

Nafnlaust
10.1.2012

Játning: Hann byrjaði með vinkonu minni

Ég er 16 ára stelpa sem hitti alveg yndislegan strák. Hann var góður við mig og ég kolféll fyrir honum en ég vissi fyrirfram að þetta samband myndi aldrei ganga. Fyrir því voru tvær ástæður.

Nafnlaust
9.1.2012

Játning: Svar við „Fólk sem kvelur dýr"

Ég skil vel hvað þú meinar að þér finnist þetta óþægilegt en ég held að þú sért ekki alveg að fatta að það er pínu „pointið.“ Mér finnst eins og fólk sé ekki alveg að skilja Facebook. Hér er fólk með síðu um sig sjálft. 

Nafnlaust
30.12.2011

Játning: Strákar borga fyrir það að vera playerar

Ég hef hugsað mér lengi að skrifa þetta og ákvað loks að láta slag standa. Ég er strákur í kringum tvítugsaldurinn og hef alltaf verið vinsæll og allt það. Ég veit að margir strákar voru eins og ég í grunnskóla og fannst alltaf eins og þeir væru aðalmaðurinn og gætu fengið allar stelpur sem þeir vildu svo við tökum margir okkar „player" tímabil.

Nafnlaust
29.12.2011

Játning: Hættið að vera ömurleg við kennarana ykkar!

Ég er 16 ára stelpa að klára grunnskólann.  Skólinn er kannski ekki uppáhaldsstaðurinn minn; krakkarnir geta verið illkvittnir og námið getur verið leiðinlegt en ég skil ekki af hverju krakkar hata kennara svona mikið. 

 

Aðsendar greinar
26.12.2011

Játning: Ég ákvað að lifa

Fyrir tveimur árum síðan tók ég erfiðustu og bestu ákvörðun sem ég hef gert. Eftir margra ára baráttu við átröskun þá ákvað ég að fara í meðferð og gera það fyrir sjálfa mig. Ég hafði farið í gegnum ýmiss meðferðar úrræði fyrir þetta en aldrei gert það fyrir mig, alltaf fyrir einhvern annan eða til að fá fólk til að láta mig í friði. Ég hafði fengið spurninguna hvort mig langaði til að deyja því að það sem ég væri að gera myndi draga mig til dauða, og nei mig langaði ekkert að deyja en það þýddi samt ekki að mig langaði til að lifa.

 

 Ég var hvort sem er ekki að lifa neinu lífi, ég var bara átröskun, og hún kom alltaf fyrst. Hún kom á undan vinum mínum sem ég útilokaði mig frá því að ég gat ekki fúnkerað með þeim. Vinkonur mínar voru að hugsa um stráka, djömm, útlandaferðir og fleira  á meðan ég var að hugsa um mat:“ hvað á ég að borða, hvenær, hvernig og á ég að losa mig við það eða ekki.“

 

Hún kom á undan skólanum, ég hafði ekkert þol og enga einbeitingu til að geta verið þar. Hún kom líka á undan fjölskyldunni, þegar foreldrar eru hræddir um að barnið sitt muni deyja verður andrúmsloftið ansi þvingað, ég lokaði mig inn í herbergi þar sem ég vildi helst vera, ein með átröskunni, ein með sjálfshatrinu. 

 

Fyrir 2 árum fékk ég tækifæri, ég fór hjá átröskunarteymi Landspítalans er með aðstöð. Ekki í fyrsta skipti sem ég fór inn á dagdeild en í fyrsta skipti sem ég gerði það fyrir mig. Þetta var ógeðslega erfitt, þeir sem segja að fólk með átraskanir eigi bara að borða eins og venjulegt fólk veit ekkert í sinn haus. Það var grátið og rifist, samsæriskenningar gegn þeim sem bjuggu til matinn og fleira og fleira. Stundum var þetta eitt skref áfram og tvö aftur á bak en ég ætlaði að halda áfram á beinu brautinni og var útskrifuð af dagdeild um vorið 2010.

 

Ég er ákaflega þakklát öllum þeim sem studdu við bakið á mér, hetjunum sem voru með mér á deildinni og sérstaklega starfsfólkinu í átröskunarteymi Landspítalans sem hefur setið uppi með mig í mörg ár J.  Ég ætla að halda áfram og halda mig réttu megin við línuna, það koma dagar sem eru erfðari  en aðrir en ég ætla ekki að gefast um.

 

Nú get ég sagt að ég er einstaklega stolt af sjálfri mér fyrir það að  hafa ákveðið að LIFA.

Nafnlaust
22.12.2011

Játning: Mín æska var engin æska

Mig langar svo að segja eitthvað, en þetta er allt svo fast í mér. Ég veit ekki hvernig mér líður nákvæmlega og hvað þá að setja það í orð. Mér líður eins og ég sé föst í einhverri sál sem er undir skugganum.

 

 

Ritstjórn
22.12.2011

Játning: Hann kyssti hana fyrir framan mig

Ég er ung stelpa af höfuðborgarsvæðinu.  Ósköp venjuleg með nóg af vinum og góða fjölskyldu. Er í grunnskóla og þannig er mál með vexti að ég er búin að vera hrifinn af þessum strák í um það bil ár en því miður hefur það ekki gengið eins og í sögu. 


Nafnlaust
21.12.2011

Játning: Ég er kölluð ástsjúk

Ég er á fertugsaldri og hef bara verið ástfangin af tveim yfir ævina samt er ég kölluð ástsjúk. Hvað er það? Ég elska að elska, get ekkert að því gert - ég var alin þannig upp og lífið er of stutt.

Nafnlaust
20.12.2011

Játning: Ég er ekki klikkuð þó ég sé úr Breiðholti!

Ég er ung stúlka úr Breiðholtinu og ég þoli ekki þennan stimpil sem Breiðholtið hefur: Villingahverfi! Dópistar! Áfengissjúklingar!

 

Nafnlaust
19.12.2011

Játning: Ég er player og ætla ekki að skammast mín fyrir það

Að deita hefur aldrei verið mitt „thing.“ Ekki það að mér finnst eitthvað að því eða ég er ekki spurð. Vandamálið hjá mér er eiginlega pínu öfugt við það sem gerist hjá öðrum stelpum. 

Nafnlaust
16.12.2011

Játning: Það er ekki alltaf best að vera mjó

Ég er frekar ung stelpa og segi eins og er, það er ekki alltaf best að vera mjór. Ég sjálf er mjó og kannski svolítið meira en mjó.  Í fyrra var ég enn grennri og mjög létt miðað við aldur.

Nafnlaust
15.12.2011

Játning: Ég barðist gegn andlegu ofbeldi móður minnar

Frá því ég man eftir mér höfum ég og mamma aldrei verið vinkonur, því hún beitir mig andlegu ofbeldi. Sumir skilja kannski ekki hvað það þýðir en það er jafn slæmt og líkamlegt ofbeldi og getur verið verra.

 

Nafnlaust
13.12.2011

Játning: Hættum saman og hann kominn með nýja 2 vikum seinna

Ég er 14 ára stelpa. Er í skóla og æfi mikið. Það var þessi strákur sem ég var rosalega hrifin af, köllum hann bara Jón.

 

 

Jón var einu ári eldri í sama skóla og ég. Mér fannst ekkert að því að hann væri eldri, við fórum að tala helling saman og vorum byrjuð að hittast. Hann var rosa góður við mig svo bara hætti hann að tala við mig í skólanum, en sendi mér alltaf sms og talaði við mig á facebook eða þegar við vorum bara tvö ein.

 

Ég fór heim til hans eit kvöld og við kysstumst og það var rosa gaman og þetta hélt svona áfram í mánuð. Ég svaf hjá honum og eftir það fór hann bara að hunsa mig og vildi ekki tala við mig.

 

 

Ég spurði hann hvort hann væri bara að nota mig til að sofa hjá eða hvort þetta yrði einhvertíma eithvað meira, Jón svaraði: „Ég veit það ekki" og ég varð rosa reið og hann var bara búinn að enda þetta.

 

Svo sendi hann mér rosa krúttlegt sms um að hann saknaði mín og hann vildi að við myndum láta þetta ganga, ég sagði að ég væri alveg til í það.

 

 

Ég fór ekki til Jóns í smá tima á meðan ég var að átta mig á þessu öllu. Við fórum að hittast aftur og allt gékk vel, við sváfum aftur saman.

 

 

Hann kom til mín og við kysstumst og mér leið svo vel, en síðan var ball, og ég fór með vinkonum minu og hann með vinum sinum, og hann hunsaði mig allt ballið.

 

 

Daginn eftir sagði hann við mig að þetta væri bara búið. Ég grét úr mér augun. Núna talar hann við mig eins og ekkert hafi gerst og við séum bara geggjað góðir vinir, en mér finnst það svo erfitt og langar bara að fara að gráta þegar ég sé hann.

 


Jón er að halda áfram og er kominn með aðra stelpu og honum líður bara rosalege vel, og það eru bara 2 vikur siðan þetta endaði hjá okkur.

 


Mig langar rosalega að segja við hann að ég vilji ekki að hann tali við mig en veit ekki hvernig ég á að segja það.

Nafnlaust
12.12.2011

Játning: Unglingar sem vinna í sjoppum eru líka fólk!

Mig langaði aðeins að tala um sjoppustörf. Ég sjálf/ur vinn í búð og hef unnið þar í nokkur ár. Það sem mig aðallega langaði að ræða er hvernig komið er fram við unglinga og mjög oft bara fullt af fólki  sem vinna í búð.

Nafnlaust
11.12.2011

Játning: Svar við „Hann sá eftir að hafa byrjað með mér"

Sæl nafnlaus. Þegar ég var að lesa játninguna þína þá fann ég fyrir því hvað þetta var líkt sambandinu sem ég var í. Fyrir utan það að hann laug upp í opið geðið á mér að hann ELSKAÐI MIG.

Nafnlaust
10.12.2011

Játning: Ég er ósýnileg

Ég er stelpa á 16 ára og er með „bullandi unglingaveiki" eins og fólk má orða það. Ég velti oft fyrir mér hvort að fólk myndi finna einhvern mun án mín.

Nafnlaust
9.12.2011

Játning: Hann sá eftir að hafa byrjað með mér

Ég veit ekki alveg hvernig ég á að orða þetta en ég hef verið að lesa ástarsögur og þær hafa hjálpað mér að því að þá get ég séð að það er ekki bara ég sem er að lenda í þessu, eins og við svo margar höldum.

Nafnlaust
8.12.2011

Játning: Plís, farðu að borða

Ég veit að ég hef reynt að hjálpað þér að reyna ad fá þig til að borða. Ég er búin að reyna og reyna. Ég veit að þú varst fúl við mig þegar ég talaði við þig um þetta.

Nafnlaust
7.12.2011

Játning: Hættið að ræða nauðgunarmál!

Eins og þið flest hafið séð þá hafa nauðgunarmál verið mikið í umræðunni uppá síðkastið. Þegar svona mál komast í fjölmiðla logar Facebook af umræðum um þessi mál, margir eru þar að tjá sig um efni sem þeir hafa ekki hugmynd um.

Nafnlaust
6.12.2011

Játning: Ég braust út úr sambandsvítahringnum

Ég hitti mann á stefnumótasíðu. Hann var allt öðruvísi en aðrir sem ég hafði áður kynnst; Ekki lokaður, átti hús og bíl, var í góðri vinnu og ekkert rugl.Hann kom ávallt fram við mig sem drottningu fyrir framan annað fólk en mér fannst hann breytast þegar við vorum ein. 

 

Nafnlaust
5.12.2011

Játning: Það er ÓGEÐSLEGT að reykja!

Ég er 17 ára strákur á höfuðborgarsvæðinu. Lífið mitt er frábært og nánast allt gengur mér í hag. Ég stend mig frekar vel í skóla og á marga vini, frábæra kærustu og fjölskyldu sem er mér allt. En þó er eitt mál sem mér þykir óskaplega leiðinlegt og sorglegt.

 

Ritstjórn
4.12.2011

Játning: Stelpur eru fáránlegar!

Um daginn las ég játningu inn á Bleikt.is sem hét eitthvað í þessum dúr: ,,Ég hata að vera stelpa”. Ég las hana og fyrsta sem ég hugsaði var: „Um hvað er hún að bulla! Það er æðislegt að vera stelpa.” Svo núna er ég loksins að átta mig á um hvað hún er að tala.

Ritstjórn
3.12.2011

Játning: Ég er strákaóð

Ég er stelpa á landsbyggðinni. Ég er komin á það tímabil í lífinu á að vera strákaóð, ég pæli mjög mikið í strákum og mér langar alveg óendanlega í kærasta.

 

Nafnlaust
30.11.2011

Játning: Pabbinn sem á ekki skilið að vera pabbi

Að eiga systkin sem líður illa, er ástæða þess að þú vilt verða gott foreldri. Það þekkir enginn systkinið sitt jafnvel og þú gerir, það er enginn sem skilur það betur en þú, og það er enginn sem kemur í staðinn fyrir það og það er enginn sem kemur í staðinn fyrir þig.

Nafnlaust
29.11.2011

Játning: Er sjúk í þjálfarann minn

Hann er þjálfarinn minn og er ekkert mikið eldri en ég.  Hann er single, á besta aldri, ótrúlega sexý og sætur strákur.  Þegar ég er æfingu þá gleymi ég mér og fer að hugsa um hann nakinn.  Hann er svo flottur og ég skil ekki af hverju hann er enn single!!!

 

Nafnlaust
28.11.2011

Játning: Ástfanginn af mun yngri stelpu

Ég er strákur sem á heima á höfuðborgarsvæðinu og er ástfanginn af stelpu sem er 3 árum yngri en ég.  Ég er nýbyrjaður í framhaldsskóla. Þessi stelpa skiptir mig miklu máli. Nokkrir vinir mínir (sem eru jafngamlir og ég og eldri) sem fréttu af þessu kalla mig „pedo”.  

Nafnlaust
27.11.2011

Játning: Ég þoli ekki fólk sem hótar vinum sínum á Facebook

 Ég vil byrja á að segja að ég veit ekki hvort þetta er að fara rétta leið en vona að svo sé. Ég vona að þessi grein verði birt á Bleikt, því ég er orðin svo leið á fólki sem er að væla um þetta mál. Sem sé er þessi grein um það fólk sem er stöðugt að kvarta og jafnvel hótar "vinum" sínum á Facebook að hætta að líka síður. 

Nafnlaust
25.11.2011

Játning: Ég hef aldrei séð vinkonu mína svona leiða

Þegar ég las greinina: „Ég var þessi player” byrjaði ég að hugsa um vinkonu mína. Hún er í gagnfræðaskóla og er ástfangin af strák sem er nokkrum árum eldri en hún.  Þessi strákur á heima nálægt höfuðborgarsvæðinu en vinkona mín úti á landi, þau eiga heima langt í burtu frá hvort öðru. 

Nafnlaust
24.11.2011

Játning: Vinir mínir eru mér allt

Við kynntumst í grunnskóla. Hann var þessi ofurfeimni í bekknum. Hann talaði oftast við engan. Við kynntumst í gegnum annan vin. Ég var þessi stelpa sem var oftast með strákunum. Hann hefur komið mér í gegnum allt mögulegt. Ég veit ekkert hvar ég væri án hans í dag. Ég myndi gera allt fyrir hann. 

Ritstjórn
23.11.2011

Játning: Ekki gera ekki neitt!

Hefur þú einn daginn áttað þig á því að strákurinn sem þú hefur verið að hitta síðustu mánuði eða vikur er sá sem passar fullkomlega fyrir þig? Kannski hafið þið verið að hittast, kannski voru þið bólfélagar, eða eruð vinir. Hefur sú stund komið að þú sérð framtíð þína og hann er í henni, strákurinn sem þú sérð þig vera með? 

Nafnlaust
22.11.2011

Játning: Láttu brosið ekki blekkja þig

Ég er 21 árs stelpa. Ég er alltaf hress og kát. Alltaf brosi ég. Alltaf vil ég hjálpa öllum. Alltaf vil ég veita öllum í kringum mig ást og umhyggju. Alltaf passa ég að öllum í kringum mig líði vel. Ég las grein hérna inni á bleikt.is sem heitir ,,Ekki er allt sem  sýnist“ og fór þá aðeins að hugsa. Líður mér vel? Þarfnast ég hjálpar?

Nafnlaust
21.11.2011

Játning: Ég er stjórnlaus kaupfíkill

Hæ, ég er 16 ára stelpa og ég er alltaf með stöðuga minnimáttarkennd. Af því að í hvert skipti sem ég sé aðrar stelpur í svo flottum og dýrum fötum þá verð ég alveg miður mín! Það eina sem ég hugsa er: „Ég vildi ég ætti pening!“ Ég er var í fastri vinnu í sumar en það gekk bara alls ekki nógu vel ...

Nafnlaust
20.11.2011

Játning: Af hverju ýta fullorðnir undir útlitsdýrkun barna?

Ég er mikil félagsmanneskja og get vel sagt að ég hafi mikinn áhuga á því að vera í kringum fólk og kynnast fólki. Ég get líka sagt að ég hafi alltaf haft mikinn áhuga á því hvað lætur fólk „ tifa“. Fólk er mismunandi eins og það er margt, en það er samt einn hlutur sem að ég hef tekið eftir undanfarin ár ...

Aðsendar greinar

Reunion

Heiðrún Finnsdóttir

Hin fullkomna þú

Keyrir á Disil CMS frá Atómstöðinni