„Hringdu í mig þegar þú ert komin svo ég viti að allt er í góðu,“ segir hún og kyssir manninn bless
„Af hverju? Þú veist alveg að það verður allt í góðu og ef ekki þá er ég alveg viss um að þú munir heyra af því,“ svarar maðurinn.
Flestar konur sem lesa þetta hugsa með sér að maðurinn sé ónærgætinn og leiðinlegur en flestir menn sem sjá þetta skilja ekkert í afskiptasemi konunnar. Þó svo við höfum öll rautt blóð og tilfinningar þá eru áherslur okkar og samskipti ólík.
Því getur lítið samtal, eins og hér að ofan, leitt til hávaðarifrildis. Þarna er konan að segja að henni sé annt um manninn og að hún láti öryggi hans sig varða. Maðurinn tekur þessu þó sem yfirlýsingu á vantrausti og beinu skoti á aksturshæfni hans.
Það er þó ekki aðeins innan veggja heimilisins sem þessir árekstrar verða en algengt er að menn og konur misskilji hvort annað í samskiptum. Sem dæmi má nefna skipanir og spurningar. Konur í virðast oft setja fram skipanir í formi spurninga meðan karlmenn gefa bein fyrirmæli. Konan myndi því spyrja undirmann sinn hvort að hann gæti haft verkefnið klárt fyrir föstudaginn á meðan karlmaðurinn myndi segja undirmanninum að verkið yrði að vera klárt fyrir föstudaginn.
Það eru ekki eingöngu samskiptaerfileikarnir sem virðast hrjá karlmenn og konur heldur einnig ólíkur hugsunarháttur. Þar má t.d. nefna ólíkt viðhorf kynjanna á velgengni. Körlum finnst þeir eiga rétt á velgengni og því meira sem þeir leggja á sig því meira áttu þeir stöðuhækkunina skilið á meðan konur vilja skrifa velgengni á heppni en ekki blóð, svita og tár. Þrátt fyrir að konur líti á velgengni sem heppni þá líta þær allt öðrum augum á eigin mistök og kenna sjálfum sér um í stað óheppni.
Þessi hugsunarháttur kvenna, að þakka heppninni, gengur stundum svo langt að þær finna ríka þörf til að biðjast afsökunar á velgengni sinni og gera lítið úr því frábæra starfi sem þær eru að vinna. Þess vegna er mikilvægt að benda konum og börnum, þá sérstaklega stúlkubörnum, á að velgengni hafi ekkert með heppni að gera heldur sé það afrekstur metnaðar, dugnaðar og vinnusemi.
Heimildir:
Cynthia Burggraf Torppa. 2010. Gender Issues.
Dianna Booher. 2011. Gender Bender.
Julita Vassileva. 2008. Gender Differences in communication style.