„Haltu kjafti og vertu sæt"
27.1.2012 - Bryndís Gyða

Ég las einhverja grein um daginn þar sem stóð að stelpur sem væru fyndnar myndu síður ná sér í kærasta. „Hvaða bull er nú þetta?“ hugsaði ég. Þetta er bara enn eitt dæmið þar sem okkur konum er talin trú um það að persónuleiki okkar hafi ekkert að gera með hrifningu karlmanna á okkur.

 

Hvað ef við setjum þetta öðruvísi upp – Hvað ef við konurnar höfum bara engan áhuga á að eignast mann sem leyfir okkur ekki að hafa okkar eigin persónuleika og okkar húmor? Er það eitthvað eftirsóknarvert? Mér finnst það ekki.


Reyndar held ég að þetta sé bara algjör vitleysa, karlar hugsa akkúrat frekar út í persónuleika þegar þeir velja sér maka eða þegar við veljum okkur þá sem maka, hvernig sem þú vilt setja þetta upp.



Enn og aftur erum við þarna með dæmi um það að konum er sagt að halda kjafti og vera bara sætar því það kann enginn að meta þær nema bara vegna útlitsins. Í raunverulega lífinu virkar það bara ekkert þannig.


Einnig er minnst á það í þessari grein að til þess að vera líklegri til að ná sér í karlmann ættum við að temja okkur það að hlæja að bröndurum þeirra – vegna þess að karlmenn heillast af því. Afsakaðu, en ég lifi ekki mínu lífi til að þóknast karlmönnum, ef maðurinn reitir af sér lélega brandara hægri-vinstri er ég bara að gera honum greiða með að segja honum að tala um eitthvað allt annað.


Það er áhugavert að spá aðeins í því hversu mikil niðurbrotsstarfsemi er í gangi út um allt sem beinist að konum – þú þarft ekki annað en skoða auglýsingar, sjónvarpsþætti eða hvað það nú er.


Okkur er kennt frá unga aldri að hata líkamann á okkur – við megum ekki vera of feitar en heldur ekki of grannar, við verðum að vera akkúrat í miðjunni á þessari fínu línu sem er dregin fyrir okkur. Stelpur frá 5 ára aldri vita hvað megrun er, hvað er eðlilegt við það ?


Það er endalaus pressa á okkur út um allt að segja réttu hlutina, gera réttu hlutina og auðvitað aðalmálið – að líta óaðfinnanlega út, ALLTAF. Er það svo skrítið að litlar stelpur séu sendar til sálfræðinga? Eða að stelpur sem jafnvel hafa ekki náð 8 ára aldri séu lagðar inn á spítala vegna næringarskorts?


Lífið snýst ekki um að heilla sem flesta karlmenn, lífið snýst heldur ekki um að vera horaðasta stelpan í vinkonuhópnum, vera flottust í sundfötum eða með minnstar hrukkur í andlitinu.


Því fyrr sem við föttum það því betra.

Aðsendar greinar
22.2.2012

Reunion

Nú líður að 10 ára endurfundum hjá árganginum mínum úr gagnfræðaskóla og þá fara ýmsar hugsanir í gang. Nostalgía og gamlar minningar flæða uppá yfirborðið. Þvílíkur dýrðartími sem það var að vera unglingur. Svo allt í einu man ég það.

Heiðrún Finnsdóttir
21.2.2012

Hin fullkomna þú

Mig langar að kynna þig fyrir manneskju. Þetta er alveg einstök manneskja, það er engin til eins og hún. Þessi manneskja hefur frábær áhugamál, einstaka hæfileika og er nákvæmlega eins og hún á að vera.

Linda Rós
18.2.2012

Ómerkilegur pappír

Ég fékk að heyra það um daginn að ég væri ómerkilegur pappír. Það var reyndar ekki sagt beint út við mig heldur var manneskja tekin fram yfir mig því „hún lítur svo vel út á pappír”. Ég ræddi þetta við vin minn sem sagði: „Þú ert ekki ómerkilegur pappír… þú ert lúxusfrímerki.” 

Aðsendar greinar
17.2.2012

Vilt þú byrja í hljómsveit?

Við erum þrjár stelpur úr Reykjavík fæddar árið 1997. Ein okkar er gítarleikari, hin hljómborðsleikari og svo er líka ein söngkona. Allar kunnum við einnig á önnur hljóðfæri. 

Aðsendar greinar
14.2.2012

Fundinn tími

Ég hef alltaf haft mikið fyrir stafni.  En á ákveðnum tímapunkti í lífi mínu fann ég að ég var ekki á „réttum stað“ hvað það varðar að hafa nóg að gera og vissi aldrei af hverju.  Ég fann að ég var að fjarlægjast vini mína og öll mín áhugamál  smám saman.  

Aðsendar greinar
14.2.2012

Eru börnin okkar hamingjusöm?

Velferð barna er málefni sem öll samfélög ættu að gæta að. Það er ekki einungis mikilvægt að stuðla að hamingju barna til þess að gæta hagsmuna barnæskunnar, en einnig svo traustur grunnur sé lagður að góðri framtíð og velferð fullorðinsáranna.

Aðsendar greinar
13.2.2012

Hver er þessi Auðbjörn?

Hann fer í ljós þrisvar í viku...og mætir reglulega í líkamsrækt. Hann fer í Hollywood um helgar, með mynd af bílnum í vasanum." Hver man ekki eftir þessu lagi?

Aðsendar greinar
10.2.2012

Hvað er sólbaðsfíkn?

Síðustu misseri hefur verið gífuleg umfjöllun um ljósabekkjanotkun og þann skaða sem þeir geta valdið fólki. Flest okkar þekkja vini, fjölskyldumeðlimi eða kunningja sem eiga við þetta vandamál að stríða og oftar en ekki sprettur upp umræða hversu hallærislega dökkir þessir einstaklingar eru, en „basic tískuslys” er þó eflaust það sem skiptir minnstu máli, oftar en ekki á þetta fólk við mikinn vanda að stríða sem það hefur ekki stjórn á.

Heiðrún Finnsdóttir
9.2.2012

Get þetta sjálf

Ég er kona. Ég elska að vera kona. Ég naglalakka mig, fer í klippingu hjá sama meistaranum á tveggja til þriggja mánaða fresti og slétti yfirleitt á mér hárið. Ég geng oftar um í háum hælum heldur en lágbotna skóm, reyndar á ég aðeins eitt par að lágbotna skóm og það eru innanhús íþróttaskór en mamma var svo góð að lána mér gönguskóna sína í hálkunni núna nýlega.

Aðsendar greinar
9.2.2012

Vinalegra Ísland?

Þegar ég var yngri var ég svakalega feimin. Ég átti erfitt með samskipti, þá sérstaklega við ókunnuga, til að mynda tók mig oft nokkra daga að safna kjarki til að hringja og panta klippingu. Ég var viss um að ég myndi segja eitthvað fáránlegt og þá yrði hneykslast á mér. 

Ágústa Arna
6.2.2012

Femínismi vs. Framsóknarflokkurinn

Ég las um daginn viðtal við unga konu sem hefur verið áberandi í netheimum vegna hugsjóna sinna. Hún er semsagt feministi sem meðal annars hefur tjáð sig um nauðganir, klámvæðingu og vændi. Í viðtalinu kom fram að hún hafi fengið skilaboð þar sem viðkomandi hafi sagt að það þyrfti að berja hana duglega.

Aðsendar greinar
5.2.2012

Lífið snýst allt um valkosti

Jón vinur minn er rekstrarstjóri á veitingastað.  Hann er alltaf í góðu skapi og hefur alltaf eitthvað jákvætt að segja. Þegar einhver spyr hann hvernig hann hafi það, þá svara hann alltaf, "Ef ég hefði það betra, þá væri ég tvíburar!"

 

Heiðrún Finnsdóttir
1.2.2012

„Fyrirgefðu að mér gengur vel“: Munurinn á milli kynjanna

„Hringdu í mig þegar þú ert komin svo ég viti að allt er í góðu,“ segir hún og kyssir manninn bless
Af hverju? Þú veist alveg að það verður allt í góðu og ef ekki þá er ég alveg viss um að þú munir heyra af því,“ svarar maðurinn.

 

Flestar konur sem lesa þetta hugsa með sér að maðurinn sé ónærgætinn og leiðinlegur en flestir menn sem sjá þetta skilja ekkert í afskiptasemi konunnar. Þó svo við höfum öll rautt blóð og tilfinningar þá eru áherslur okkar og samskipti ólík.

 

Því getur lítið samtal, eins og hér að ofan, leitt til hávaðarifrildis. Þarna er konan að segja að henni sé annt um manninn og að hún láti öryggi hans sig varða. Maðurinn tekur þessu þó sem yfirlýsingu á vantrausti og beinu skoti á aksturshæfni hans.

 

Það er þó ekki aðeins innan veggja heimilisins sem þessir árekstrar verða en algengt er að menn og konur misskilji hvort annað í samskiptum. Sem dæmi má nefna skipanir og spurningar. Konur í virðast oft setja fram skipanir í formi spurninga meðan karlmenn gefa bein fyrirmæli. Konan myndi því spyrja undirmann sinn hvort að hann gæti haft verkefnið klárt fyrir föstudaginn á meðan karlmaðurinn myndi segja undirmanninum að verkið yrði að vera klárt fyrir föstudaginn.

 

Það eru ekki eingöngu samskiptaerfileikarnir sem virðast hrjá karlmenn og konur heldur einnig ólíkur hugsunarháttur. Þar má t.d. nefna ólíkt viðhorf kynjanna á velgengni. Körlum finnst þeir eiga rétt á velgengni og því meira sem þeir leggja á sig því meira áttu þeir stöðuhækkunina skilið á meðan konur vilja skrifa velgengni á heppni en ekki blóð, svita og tár. Þrátt fyrir að konur líti á velgengni sem heppni þá líta þær allt öðrum augum á eigin mistök og kenna sjálfum sér um í stað óheppni.

 

Þessi hugsunarháttur kvenna, að þakka heppninni, gengur stundum svo langt að þær finna ríka þörf til að biðjast afsökunar á velgengni sinni og gera lítið úr því frábæra starfi sem þær eru að vinna. Þess vegna er mikilvægt að benda konum og börnum, þá sérstaklega stúlkubörnum, á að velgengni hafi ekkert með heppni að gera heldur sé það afrekstur metnaðar, dugnaðar og vinnusemi.

 

Heimildir:

Cynthia Burggraf Torppa. 2010. Gender Issues.

Dianna Booher. 2011. Gender Bender.

                                               Julita Vassileva. 2008. Gender Differences in communication style.

Aðsendar greinar
31.1.2012

Sílikon er ekki svarið

Ég er 22 ára gömul stelpa og bý yfir brotinni sjálfsmynd. Ég skil ekkert í sjálfri mér. Allir eru að segja mér að ég sé sæt en þegar ég lít í spegilinn, sé ég hrædda stelpu. Stelpu sem finnst heimurinn einhvern veginn vera á móti sér.

Aðsendar greinar
30.1.2012

Okkar ótrúlegi legvöðvi

Í fleiri áratugi hafa konur lifað við hræðslu tengda fæðingum. Konur hafa gengið í gegnum erfiðar og langar fæðingar með þeim afleiðingum að rifna, fá mikla strengi, þiggja deyfingu í mænu með stærri og hræðilegri nál en þær geta ímyndað sér og sumar jafnvel muna ekki eftir sinni eigin fæðingu.

Aðsendar greinar
29.1.2012

Elsku 15 ára ég

Mig hefur lengi langað til þess að skrifa þér bréf. Ég vona að þetta verðir til þess að aðrar læri af þínum mistökum. Ég vona að þetta verði til þess að ungar stelpur hugsi sig um áður en þær velja sína braut í lífinu.

Aðsendar greinar
28.1.2012

Að missa barn

Ég á tvö börn. Eitt sem sefur núna í rimlarúminu sínu og knúsar bæði Bangsímon og Grísling. Hitt barnið mitt fékk ekki að lifa en ég veit að hún er hjá mér. Sjáið til, barneignir enda ekki alltaf í hraustu barni með 10 fingur og 10 tær.

 

Bryndís Gyða
27.1.2012

„Haltu kjafti og vertu sæt"

Ég las einhverja grein um daginn þar sem stóð að stelpur sem væru fyndnar myndu síður ná sér í kærasta. „Hvaða bull er nú þetta?“ hugsaði ég. Þetta er bara enn eitt dæmið þar sem okkur konum er talin trú um það að persónuleiki okkar hafi ekkert að gera með hrifningu karlmanna á okkur.

Aðsendar greinar
25.1.2012

„Og hvenær ætlið þið svo að koma með barn?“

Það sem ég verð alltaf meira og meira vör við í samfélaginu eftir því sem ég eldist er hversu margir þurfa að spyrja um barnaeignir hjá okkur eða öðrum í kringum mig.

Tamar Matchavariani
24.1.2012

8 bestu raunveruleikaþættirnir!

Ég er algjör sucker fyrir raunveruleikaþáttum. Ég horfi jafn mikið á þá og ég horfi á venjulega þætti. Mér finnst skemmtilegra að fylgjast með alvöru fólki en leikurum.

Heiðrún Finnsdóttir
21.1.2012

Nördar

Eftir að hafa hlustað á enn eina vinkonuna hella úr sér yfir því hvað lífið er óréttlátt, að gæinn hafi haldið framhjá henni einu sinni enn og að hún hafi virkilega trúað því að hann myndi breytast, minnka djammið og fara að huga að fjölskyldu fór ég að pæla í þessari setningu:  „Góðu gæjarnir eru allir hommar eða fráteknir“

Aðsendar greinar
20.1.2012

Hið kærkomna svokallaða „spik“

Ég hef heyrt frá nokkrum skvísum um þetta blessaða „spik" sem þær eru með...að þeim finnst það ljótt, ekki flott og vilji helst losna við það, fitusog eða bara „skera það í burtu..."

 

Aðsendar greinar
20.1.2012

Stelur þú?

Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju fólk stelur eigum annarra.  Ég hef nefnilega nokkrum sinnum lent í því að mínum hlutum sé stolið, hlutir sem í raun fela engin verðmæti í sér nema fyrir eigandann.  

Ágústa Arna
20.1.2012

Sérlegt handboltafár!

Ég verð að virðurkenna að ég dáist að íslenska handboltalandsliðinu. Það getur ekki verið auðvelt að vera með geðheilsu heillar þjóðar á bakinu ofan á það að vera að spila á móti bestu liðum í heimi.

Tamar Matchavariani
18.1.2012

Ofurskínkur

Það eru margar skínkur hér á landi en svona til að byrja með; Hvað er að vera skínka?  Allir hafa sína eigin útskýringu á hugtakinu en fyrir mér er skínka stelpa sem málar sig fáránlega mikið. 

Heiðrún Finnsdóttir
18.1.2012

Órómantíska ég

„Ég skal sko segja ykkur hvernig þetta er heima hjá henni“ sagði Heiðar, betur þekktur sem Heiðar snyrtir eftir að hann leit í augun á mér.„Þegar maðurinn hennar tekur sig til, kemur börnunum í pössun, eldar dýrindis steik og kveikir á kertaljósum gengur hún inn og skammar hann fyrir að hafa ekki skipt um batterí í reykskynjaranum!“

Malín Brand
18.1.2012

Stórkostleg þjáning!

Flestum þykir eitthvað í meira lagi bogið við orðasamsetninguna í titlinum. Þjáning er í hugum margra neikvætt orð og erfitt að sjá eitthvað stórkostlegt þar. Hvað ef við myndum skjóta inn orðinu reynsla í staðinn fyrir orðið þjáning?

Margrét Gísladóttir
13.1.2012

Fíllinn í herberginu

Ég er í áfalli. Einhvers konar hugarástandi sem hefur verið að myndast yfir lengri tíma og kom svo loks fram nú rétt í þessu. Skilningsleysi, skortur á samhug og almenn undrun á hug minn allan. 

Ágústa Arna
12.1.2012

Afrekin sem gleymast

Á dögunum var það kunngjört að Heiðar Helguson væri íþróttamaður ársins og er hann sennilega vel að þeim titli kominn. Í kringum þetta árlega val íþróttafréttamanna á því hver íþróttamanni ársins kemur til með að vera sprettur þessi hefðbundna umræða. Sem þó oftast snýst um það að þegar kemur að því að sæma afreksfólk þessum titli þá hallar verulega á konur.

Bryndís Gyða
11.1.2012

Þunglyndi er sjúkdómur

Þunglyndi er sjúkdómur, er það ekki eitthvað sem allir eiga að vita? Ég veit ekki með ykkur en mér finnst mikilvægt að fólk viti að þeir sem þurfa að glíma við þennan sjúkdóm gera það ekkert af gamni sínu. 

Aðsendar greinar
11.1.2012

Heilbrigður vöðvi finnur ekki til

Magnað hvað maður þarf alltaf að ganga langt á sjálfan sig til þess að gera eitthvað til þess að laga þessa verki sem maður böðlast með alla daga. Vöðvabólga sem maður er bara farinn að lifa með daglega eða axla- og bakverki. Maður segir við sjálfan sig: „Ég fer á morgun.“

Aðsendar greinar
11.1.2012

Hvar er karlmennskan?

Við erum tvær vinkonur sem höfum verið að velta ýmsum hlutum fyrir okkur sem varða drengi nútímans. Ef það væri ekki fyrir internetið hefði maður aldrei verið kysstur þar sem flest samskipti nútímans fara fram á þeim vettvangi.

Hlín Einarsdóttir
8.1.2012

Fanný og Alexander: Stórbrotið leikhús

Ég fór á frumsýningu stórverksins Fanný og Alexander í Borgarleikhúsinu. Ég veit þetta hljómar eins og klisja, en ef þú sérð aðeins eina sýningu á þessu leikári, kíktu þá á þessa.

 

 

Aðsendar greinar
8.1.2012

Þjáningin er gjöf

Fyrir ári síðan var ég stödd í Taílandi í 5 vikna fríi. Á þessum 5 vikum upplifði ég ótrúlega margt sem kennir mér hvað sé mikilvægt í lífinu. Að vera hamingjusöm og þakklát fyrir það sem ég á.

Bryndís Gyða
5.1.2012

Kærasta eða hjásvæfa?

Hvað er það samt sem gerir það að verkum að sumar stelpur virðast alltaf enda á þvi að vera „notaðar“ af strákum – þegar það eina sem þær vilja er samband?

Aðsendar greinar
4.1.2012

Ekki kalla mig hjónadjöful!

„Hjónadjöfullinn hefur þegar tekið sér bólfestu í lífi hjóna þar sem svona lagað gerist! Hjónadjöfullinn er ekki þriðji aðili sem veit ekkert hvað er í gangi hjá einhverjum hjónum. Hjónadjöfullinn hefur einfaldlega orðið til í hugum þessa fólks!“

Bryndís Gyða
3.1.2012

Eru allir fífl í kringum þig?

Ef þú ert alltaf að lenda í því að þér finnst fólk koma illa fram við þig eða að allir séu bara hreinlega ekki í lagi, nema þú auðvitað, þá er kannski spurning um að staldra aðeins við og líta í eigin barm. 

Aðsendar greinar
30.12.2011

Kisur kvíða gamlárskvöldi

Flestir hlakka til áramótanna og að horfa á himininn lýsast upp af flugeldum í ótal litum. Þetta á þó sjaldan við um dýr, sem oft verða skelfingu lostin. Það er í eðli dýra að hræðast hávaða, reyk og eld og forðast ætti eftir fremsta mætti að hafa dýr laus í eða nálægt þéttbýli á gamlárskvöld.

Aðsendar greinar
29.12.2011

Íslendingar eru hinir mestu bíódónar

Eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að fara í bíó en það getur stundum orðið hin leiðinlegasta athöfn. Þá er ég nú ekki að meina þegar myndin valdi vonbrigðum eða þegar verður uppselt heldur er ég að tala um dónaskapinn í fólki. Íslendingar kunna hreinlega ekki að bera virðingu fyrir öðrum í bíósal.

Hlín Einarsdóttir
24.12.2011

Jólakveðja ritstjóra

Nú gengur hátíð í hönd og hefur fólk það misjafnlega gott. Ég vil að allir muni að jólin snúast ekki um peninga og prjál. Þau snúast um allt annað en það: Þau eru hátíð barnanna, friðar, ljóss og samveru með þeim sem standa okkur næstir.

Aðsendar greinar
22.12.2011

„Verum þakklát fyrir það sem við höfum"

Ég get ekki annað en tjáð mig núna. Ég hef lesið margar greinar síðastliðna daga og vikur um hvað það séu margir sem eiga um sárt að binda núna um jólin. Margir sem eiga ekki ofan í sig og á. 

Inga Hrönn
22.12.2011

Um hvað snúast jólin?

Um daginn var ég í strætó og komst ekki hjá því að heyra samtal tveggja ungra stúlkna. Þær voru að tala um jólagjafir og önnur þeirra sagði hátt og skýrt: „Ég vona að hann gefi mér ekki eitthvað drasl bara, eins og margar litlar gjafir úr búð eins og megastore eða eitthvað. Ég yrði brjáluð!“ Ég hló innra með mér og hugsaði „Þessar eiga margt ólært um ástina og síðast en ekki síst jólin.“ Án þess að ég meini það illa þá get ég ekki trúað öðru.

Ágústa Arna
19.12.2011

Undarlegir jólalagatextar

Það er bara korter í jól og þar af leiðandi heyrast jólalög út um allt. Hvort sem það er í ræktinni, heima, í bílnum eða í verslunarmiðstöðvum. Fólk kemst ekki hjá því að heyra óminn sem gefur til kynna að jólin eru á næsta leyti.

Margrét Gísladóttir
16.12.2011

Einhleypar konur og barneignir

Ísland er mjög frjálslynt land á allan hátt í dag. Samkynhneigð er ósköp venjuleg hjá okkur, við kippum okkur ekki upp við kynleiðréttingar og allar myndir fjölskyldulífs eru samþykktar sem norm.

 

Aðsendar greinar
15.12.2011

Kynlíf er dýrt í dag

Í dag er sannað að smokkurinn sé besta vörnin gegn kynsjúkdómum og getnaði. En hvernig eigum við að verja okkur gegn kynsjúkdómum og getnaði ef við höfum ekki efni á að kaupa ákveðnar verjur?

 

Aðsendar greinar
14.12.2011

Áskorun: Verðum aftur stolt íslensk þjóð!

Með þessari grein er ég að vonast til þess að ég geti vakið áhuga ykkar á að hjálpa fólkinu í landinu okkar. Við lesum í dag fréttir um hvernig einstæð móðir brotnar niður í fatamarkaði vegna þess að hún hafði ekki aur til þess að kaupa hlý klæði á barnið sitt, önnur móðir lýsir hryggð sinni yfir því að börnin sín þurfi að sofa í kaldri íbúð og fái ekki jafn gott og hin börnin í skóinn.

Inga Hrönn
12.12.2011

Ísinn brotinn

Fyrstu kynni, hvort sem það er hittingur á kaffihúsi, bíóferð, smá rúntur um bæinn eða út að borða eru alltaf svolítið vandræðileg og við erum flest öll feiminn við fyrstu kynni.

Aðsendar greinar
12.12.2011

Konur „stela“ ekki mönnum!

Ég get ekki orða bundist lengur og verð að tjá mig til kynsystra minna. Ég vildi óska að vitundarvakning yrði hjá konum sem hafa lent í slæmri reynslu af hendi kærasta eða eiginmanns sem hefur horfið í faðm annarrar konu.

Aðsendar greinar
12.12.2011

Einelti stingur í hjartað

Umræðan um einelti er mikil og málefnið er Íslendingum hugleikið þessa dagana. Hræðilega sorgleg myndbönd ungs fólks sem hefur orðið undir í baráttunni við djöfla snerta okkur öll, buguð andlit og grátbólgin augu þessara barna rista djúpt.

Aðsendar greinar
11.12.2011

Léleg kjör námsmanna á Íslandi

Ég námsmaður á Íslandi og er að læra hjúkrunarfræði. Ég hef aldrei tekið nein lán fyrr en núna. Nú tók ég námslán en hef alltaf keypt mér hluti eingöngu ef ég hef efni á þeim og unnið eins og skepna á tveimur stöðum yfir sumartímann og jól.

Aðsendar greinar

Reunion

Heiðrún Finnsdóttir

Hin fullkomna þú

Keyrir á Disil CMS frá Atómstöðinni