Ritstjórn
21.2.2012

Frískur detox-drykkur að hætti Svenna

Saltkjöt og baunir, túkall. Í dag er Sprengidagur og á þeim herrans degi belgjum við okkur út af dýrindis baunum, saltkjöti, uppstúf, ofsoðnum rófum, gulrótum og kartöflum. Oftar en ekki er smjörklípu bætt út í baunasúpuna og þessu öllu saman gert góð skil með tilheyrandi bjúg, liðaverkjum og öðrum aukaverkunum af of mikilli saltneyslu. 

Heiðrún Finnsdóttir
21.2.2012

Hin fullkomna þú

Mig langar að kynna þig fyrir manneskju. Þetta er alveg einstök manneskja, það er engin til eins og hún. Þessi manneskja hefur frábær áhugamál, einstaka hæfileika og er nákvæmlega eins og hún á að vera.

Linda Rós
18.2.2012

Ómerkilegur pappír

Ég fékk að heyra það um daginn að ég væri ómerkilegur pappír. Það var reyndar ekki sagt beint út við mig heldur var manneskja tekin fram yfir mig því „hún lítur svo vel út á pappír”. Ég ræddi þetta við vin minn sem sagði: „Þú ert ekki ómerkilegur pappír… þú ert lúxusfrímerki.” 

Ritstjórn
17.2.2012

Með stærstu brjóst í heimi: Myndband

38 KKK er stærðin. Sheila Hershey hefur eytt fúlgum fjár í að láta stækka á sér barminn og mun koma fram í þættinum My Strange Addiction innan tíðar. Bjróstunum fylgja ýmis vandkvæði og sjón er sögu ríkari...

Ritstjórn
15.2.2012

Afsakanir: Mynd

Hver var aftur þín afsökun...?

Hlín Einarsdóttir
15.2.2012

Fólk segir ekki lengur: „Fótbolti er ekki fyrir stelpur“

Katrín Jónsdóttir, landsliðsfyrirliði kvenna í knattpyrnu fékk jafréttisviðurkenningu KSÍ á dögunum og segir hún að sem betur fer fari forómum gagnvart kvennaknattspyrnu minnkandi.


Aðsendar greinar
14.2.2012

Fundinn tími

Ég hef alltaf haft mikið fyrir stafni.  En á ákveðnum tímapunkti í lífi mínu fann ég að ég var ekki á „réttum stað“ hvað það varðar að hafa nóg að gera og vissi aldrei af hverju.  Ég fann að ég var að fjarlægjast vini mína og öll mín áhugamál  smám saman.  

Kynning/umfjöllun
14.2.2012

15% afsláttur af öllum kortum hjá Líkamslögun!

Við hjá Líkamslögun erum farin að huga að vorinu og nú er einmitt tíminn til að gera vel við sig. Er vöðvabólgan að fara með þig? Þreyttir bólgnir fætur? Appelsínuhúð? Slit og/eða laus húð? Viltu koma þér í betra form fyrir sumarið og losa um stíflur í líkamanum?

 
Ritstjórn
14.2.2012

68% leki en engir púðar boðnir í staðinn

Búið er að ómskoða 105 konur hér á landi með PIP púða og hefur komið í ljós að púðar leka hjá 71 konu eða í um 68% tilfella. Konum stendur til boða að láta fjarlægja fyllingarnar en ekki fá nýjar fyllingar í þeirra stað.

Ritstjórn
12.2.2012

Bjargaði lífi dóttur sinni með hjartahnoði

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir að sýna hárrétt viðbrögð á neyðarstundu þegar dóttir hans fór í hjartastopp á heimili þeirra þann 29. janúar 2011. 

Ritstjórn
10.2.2012

Kona segir að sílikonbrjóst hafi bjargað lífi sínu: Myndband

Brasilísk fyrirsæta, Sheila Hershey segir að brjóstapúðar hafi bjargað lífi hennar þegar hún klessti bíl sinn í Texas.

Aðsendar greinar
10.2.2012

Hvað er sólbaðsfíkn?

Síðustu misseri hefur verið gífuleg umfjöllun um ljósabekkjanotkun og þann skaða sem þeir geta valdið fólki. Flest okkar þekkja vini, fjölskyldumeðlimi eða kunningja sem eiga við þetta vandamál að stríða og oftar en ekki sprettur upp umræða hversu hallærislega dökkir þessir einstaklingar eru, en „basic tískuslys” er þó eflaust það sem skiptir minnstu máli, oftar en ekki á þetta fólk við mikinn vanda að stríða sem það hefur ekki stjórn á.

Aðsent efni
9.2.2012

Fáir hafa gefið blóð jafn oft og Gísli lögreglufulltrúi

Lögreglufulltrúinn Gísli Þorsteinsson er einn margra landsmanna sem fer í Blóðbankann og gefur blóð. Raunar gerir Gísli gott betur því hann hefur farið í Blóðbankann 150 sinnum í þessum erindagjörðum. 

Aðsendar greinar
9.2.2012

Vinalegra Ísland?

Þegar ég var yngri var ég svakalega feimin. Ég átti erfitt með samskipti, þá sérstaklega við ókunnuga, til að mynda tók mig oft nokkra daga að safna kjarki til að hringja og panta klippingu. Ég var viss um að ég myndi segja eitthvað fáránlegt og þá yrði hneykslast á mér. 

Ritstjórn
8.2.2012

10 flottustu fléttur sem við höfum séð: Myndir

Ó, hve þær manneskjur eru heppnar sem kunna að gera bara eina svona fléttu...við værum sko til í það! Vá!

Ritstjórn
7.2.2012

Inflúensan nær hámarki í lok febrúar

Inflúensan er farin að ganga hér á landi en nær samt ekki hámarki fyrr en undir lok febrúar. Kvefpestirnar eru hinsvegar á fullu og meira um að fullorðnir, börn og unglingar leggist í rúmið af þeim sökum en vegna flensunnar.

Ritstjórn
7.2.2012

Fyrir-og-eftir myndband sem blekkir fólk rækilega

Þið hafið öll séð svona fyrir og eftir myndir sem sýna árangur fólks í ræktinni. Hér er kominn náungi sem sýnir hvernig hægt er að gera slíkar myndir - á fimm klukkutímum! Ótrúlegt!

Ritstjórn
7.2.2012

30 ár liðin frá stofnun Kvennaathvarfsins

Á árinu 2012 munu Samtök um Kvennaathvarf minnast þess með ýmsum hætti að 30 ár eru liðin frá stofnun samtakanna og opnunar Kvennaathvarfsins sem allar götur síðan hefur veitt konum og börnum þeirra skjól þegar dvöl á heimilum hefur verið óbærileg vegna ofbeldis. 

Ritstjórn
7.2.2012

Barist við berkla og malaríu í Mósambík

„Fólkið í Mósambík er það vingjarnlegasta sem ég hef á ævinni hitt," segir Baldvin Jónsson sem hefur varið síðustu sex mánuðum í hjálparstarf úti í Afríku. Þessi ótrúlegi maður er nú á leið heim til Íslands en rétt áður en hann flaug af stað náði Bleikt tali af honum og fékk að vita í hverju hjálparstarfið væri fólgið.

Ritstjórn
7.2.2012

Ástæða þess að íranskar konur læra austurlenskar bardagalistir

Nú eru um 3500 íranskar konur að þjálfa til að verða „ninjur“ samkvæmt Press TV. Meðfylgjandi er myndband sem sýnir þjálfunarbúðir kvennanna.Þær æfa ninjutsu sem er kannski ekki skilgreind sem eiginleg bardagalist en íþróttin lítur út eins og jujitsu ásamt annari tækni, s.s. að nota kaststjörnur.

Ritstjórn
6.2.2012

Hanna Rún: „Danskjólarnir kosta allt að hálfri milljón"

Fimmtánfaldur Íslandsmeistari í dansi! Við Íslendingar erum ríkir af framúrskarandi og efnilegu fólk á öllum sviðum, líka í dansinum. Hanna Rún Óladóttir er einn efnilegasti dansari landsins en hún hefur dansað sig á toppinn frá 4 ára aldri.

Ritstjórn
6.2.2012

Sólbaðsfíkn: „Unglingar undir 18 ára eiga enn greiðan aðgang að ljósabekkjum“

„Fimm manns hafa dáið vegna sortuæxlis á Íslandi  og er Ísland með hæðstu tíðni sortuæxla á Norðurlöndunum," segir Ómari Raiss en hann er talsmaður Tanorexíufélags Íslands. Sólbaðsfíkn eða tanorexia hefur greinst í auknum mæli hér á landi undanfarin ár og virðist hátt hlutfall ljósabekkjanotkunar og aukin tíðni sortuæxla hér á landi haldast í hendur. 

Ritstjórn
6.2.2012

Ófrísk með PIP-púða: „Ég er mjög reið“

„Mér líður eins og ég sé með tifandi tímasprengju inni í mér.“ Ófrísk kona á fertugsaldri sem fékk PIP-púða hjá Jens Kjartanssyni árið 2007 er bæði reið og óttaslegin vegna fyrstu niðurstaðna úr ómskoðun, en um 80% kvenna sem skoðaðar voru reyndust vera með leka púða.

Kynning/umfjöllun
5.2.2012

Heilsa og fegurð: Metnaðarfullur naglaskóli

Naglaskóli LCN hjá snyrtistofunni Heilsu og fegurð hefur verið starfræktur í mörg ár og útskrifast nemandinn sem naglafræðingur með alþjóðlegt diplóma. Er skólinn starfræktur allt árið og er námið á sama verði síðan 2001!

Aðsendar greinar
5.2.2012

Lífið snýst allt um valkosti

Jón vinur minn er rekstrarstjóri á veitingastað.  Hann er alltaf í góðu skapi og hefur alltaf eitthvað jákvætt að segja. Þegar einhver spyr hann hvernig hann hafi það, þá svara hann alltaf, "Ef ég hefði það betra, þá væri ég tvíburar!"

 

Aðsent efni
3.2.2012

Brjáluð æfing í turni Hallgrímskirkju!

Við sýndum ykkur um daginn Annie Mist á efstu hæð Empire State byggingarinnar í New York um daginn. Hér á landi var samskonar æfing en var hún framkvæmd af íþróttafólki í turni Hallgrímskirkju! Kíkið á myndbandið.

Ritstjórn
3.2.2012

Dóttir hjálpar krabbameinssjúkri móður að klippa hárið: Myndband

Ótrúlega áhrifamikið myndband sem vekur athygli á því að krabbamein mun líklega hafa einhver áhrif á líf þitt með einhverjum hætti áður en yfir lýkur. Sara og Lola eru mæðgur og sést Lola hjálpa móður sinni að klippa hárið af fyrir geislameðferð. Sara er með brjóstakrabbamein og er styrktarsíðan þeirra HÉR. 

Ritstjórn
3.2.2012

„Þeir sem eru í íþróttum geta ekki leyft sér taumlausa óreglu“

Óli Stefán Flóventsson greindi frá reynslu sinni sem alkóhólista í knattspyrnu á opinskáan hátt á dögunum.  Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segir að íþróttahreyfingin sé þverskurður af þjóðfélaginu og að sömu sjúkdómarnir séu hjá einstaklingum innan íþróttahreyfingarinnar eins og annars staðar í þjóðfélaginu. 

Ritstjórn
2.2.2012

Er íþróttahreyfingin sofandi gagnvart áfengisdrykkju?

„Viðurkenndir djammdagar knattspyrnumanna á Íslandi eru ekki um helgar heldur á virkum dögum. Þegar liðið kemur saman til að fagna góðu gengi eða peppa upp móralinn fyrir komandi átök er nánast alltaf boðið upp á áfengi.“ Þetta esgir Óli Stefán Flóventsson knattspyrnumaður í grein (http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=120871) á fotbolti.net.

 

„Ég heiti Óli Stefán og er alkahólisti,“ skrifar Óli Stefán í byrjun greinar sinnar og útlistar síðan hvernig hann leiddist út í það að drekka í gegnum fótboltann og þá sérstaklega í miðri viku því leikirnir eru um helgar.

„Eftir leiki í gegnum tíðina hefur yfirleitt verið hittingur annaðhvort heima hjá einhverjum félaganum eða á barnum þar sem farið var yfir leik dagsins , að sjálfsögðu með bjór í hönd. Oftar en ekki endaði þessi hittingur á því að berjast við timburmenn dauðans daginn eftir,“ segir hann í greininni.

Óli Stefán segist hafa lengi vitað að hann væri alkóhólisti þegar hann 34 ára gamall var á æfingu hjá Fjölni árið 2008 og Ásmundur Arnarsson þjálfari spurði hann hreint út um áfengisdrykkjuna. „Ég sagði honum bara alveg eins og var og var heldur ekkert að skafa af því. Það var akkúrat þarna á þeirri stundu, úti á miðjum fótboltavelli að ég áttaði mig á hvað væri að gerast hjá mér. Ég átti við verulegt vandamál að stríða,“ segir hann.

Óli Stefán var í fremstu röð, hefur spilað meira en 200 leiki í efstu deild og nokkra Evrópuleiki en skrifar með eftirsjá um að hann hefði getað náð lengra og meiri árangri í knattspyrnunni ef Bakkus hefði ekki náð yfirhöndinni. „Stóra spurningin sem ég berst við í dag er, hefði ég getað gert betur eða náð lengra? Ég hafði hæfileika en hvað eru hæfileikar ef þeir eru ekki fóðraðir rétt,“ spyr ann.

Í hverju liði eru leikmenn á sömuleið og Óli Stefán var áður en hann ákvað að taka til í lífi sínu og hætta að drekka árið 2009. Hann bendir á að íþróttahreyfingin sé á fullu við að útrýma munntóbaki „en erum við vakandi í áfengisforvörninni? Er það kannski viðurkennt vandamál sem við horfum bara í gegnum,“ spyr hann. „Hversu marga leikmenn úrvalsdeildarliða sjáum við á plaggötum þar sem þeir eru auglýstir á öllum miðlum sem fyrirmyndarleikmenn því þeir drekka ekki? "Öl er böl" gæti verið fyrirsögn plaggatsins.“

Aðsendar greinar
31.1.2012

Sílikon er ekki svarið

Ég er 22 ára gömul stelpa og bý yfir brotinni sjálfsmynd. Ég skil ekkert í sjálfri mér. Allir eru að segja mér að ég sé sæt en þegar ég lít í spegilinn, sé ég hrædda stelpu. Stelpu sem finnst heimurinn einhvern veginn vera á móti sér.

Aðsent efni
30.1.2012

Jóganámskeið fyrir krakka!

Miðvikudaginn 1.febrúar nk. hefst 5 skipta
krakkajóganámskeið í jógasal Ljósheima.

Þetta er fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára og kennari er
Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir barnajógakennari.

Við gerum skemmtilegar jógaæfingar, fræðumst örlítið um jóga,
kynnumst JÓGADÝRUM, förum í fjölbreytta leiki sem þjálfa
athygli, örva samhæfing, hreyfiþroska, slökum á og margt fleira.
Á námskeiðinu kemur svo eitt JÓGADÝR í heimsókn.

Í seinasta tímanum kemur foreldri/foreldrar með í tímann og
þá verða kenndir leikir sem þið getið farið í saman eftir að
námskeiði lýkur. Ef foreldrar komast ekki er í góðu lagi að bjóða ömmu/afa eða öðrum úr fjölskyldunni með í tímann.

Námskeiðsdagar eru eftirfarandi miðvikudagar kl 15:45-16:30:
1.febrúar, 8.febrúar, 15.febrúar, 29.febrúar og 7.mars.
Verð 6.500,-kr.

Skráning hafin hjá Arnbjörgu Kristínu í s: 862-3700 eða
arnbjorgkristin@ljosheimar.is.
www.ljosheimar.is

Ritstjórn
30.1.2012

Fitnessdrottning, gullsmiður og mamma

Unnur Kristín hefur heldur betur lagt fitnessið að fótum sér en hún vann módelfitnessið fyrir ári síðan, þá nýkomin úr barneignafríi. Þessi hörkuduglega stelpa æfir súlufitness, stundar ræktina af kappi, er gullsmiður og til að toppa þetta allt saman þá er hún einnig mamma. 

Aðsendar greinar
30.1.2012

Okkar ótrúlegi legvöðvi

Í fleiri áratugi hafa konur lifað við hræðslu tengda fæðingum. Konur hafa gengið í gegnum erfiðar og langar fæðingar með þeim afleiðingum að rifna, fá mikla strengi, þiggja deyfingu í mænu með stærri og hræðilegri nál en þær geta ímyndað sér og sumar jafnvel muna ekki eftir sinni eigin fæðingu.

Ritstjórn
30.1.2012

Fallegasti drengur í heimi? - Myndir

Francisco Lachowski er brasilískur og fæddur 1991 - þ.e. hann er að verða 21 árs á þessu ári... 

Ritstjórn
29.1.2012

Háir hælar gegn brjóstakrabba

Kanadískar konur hafa tekið sig til og stofnað samtök til styrktar konum sem fá krabbamein í brjóstið.
Samtökin heita „Stilettos for the Cure“ og sérhæfa þau sig í að selja notaða háhæla skó.

Ritstjórn
29.1.2012

Hvað segir vigtin þér? - Mynd

Eða öllu heldur: Hvað segir hún þér EKKI?

Aðsendar greinar
29.1.2012

Elsku 15 ára ég

Mig hefur lengi langað til þess að skrifa þér bréf. Ég vona að þetta verðir til þess að aðrar læri af þínum mistökum. Ég vona að þetta verði til þess að ungar stelpur hugsi sig um áður en þær velja sína braut í lífinu.

Ritstjórn
28.1.2012

Magaæfing ársins: Myndband

Þessi er algert uppáhald - við urðum að sýna ykkur hana. Hún samanstendur af fjórum stuttum æfingum og tekur innan við 10 mínútur! Prófaðu!

Aðsent efni
28.1.2012

Ef Íslendingar hrósuðu hver öðrum...

Úlfur Viktor Björnsson er ungur maður með virkilega ákveðnar hugmyndir um framkomu landans í garð fólks sem gengur vel. Við erum svo sammála honum: Er ekki hægt að breyta þessu?

Ritstjórn
27.1.2012

Reykingar hættulegar? - Mynd

Nah, það er einhver misskilningur...!

Ritstjórn
27.1.2012

Eru háir hælar hættulegir heilsunni?

Vísindamenn í Ástralíu vilja meina að háir hælar séu hættulegir heilsunni. Vísindamennirnir gerði rannsókn á á tveimur hópum kvenna. 

Ritstjórn
26.1.2012

Annie Mist í Reebok auglýsingu: Myndband

Reebok CrossFit vildi sýna fólki að hægt sé að hreyfa sig hvar sem er, hvenær sem er. Þessvegna fengu þeir hraustustu konu í heimi ásamt öðru afreksfólki til að sýna listir sínar.

Ritstjórn
26.1.2012

Hin 13 ára María á forsíðu táningatímarits í Argentínu

María Celeste á íslenska móður og argentínskan föður og er í 8 bekk í Hagaskóla. Hún var stödd í Argentínu hjá föður sínum um jólin þegar hún fékk óvænt boð um fyrirsætuverkefni: Forsíðumynd unglingatímarits og myndaþátt í blaðinu.

Ritstjórn
26.1.2012

Hvort er heitara? -Mynd

Já, þetta er mjöööög góð spurning!

Ritstjórn
25.1.2012

Stilettoneglur- heitast í dag: Myndir

Nýjast í nöglum eru stiletto-neglur en þær draga nafn sitt af háum hælum vegna útlits síns. Þær eru alger killer...og ábyggilega ekki gaman að lenda í slagsmálum við píu með þessar!

Aðsent efni
23.1.2012

Leitarstöð KÍ mun annast ómskoðanir vegna PIP púðanna

Velferðarráðuneytið og Krabbameinsfélag Íslands (KÍ) hafa undirritað samning um að Leitarstöð KÍ annist ómskoðanir kvenna sem fengið hafa ígrædda PIP brjóstapúða á árunum 2000-2010. Bréf velferðarráðuneytisins með boði til kvennanna um ómskoðun verða send út á morgun, 24. janúar.

Aðsent efni
23.1.2012

Skrifið undir til að allar konur öðlist sama rétt!

Allar evrópskar konur eiga að hafa sama rétt til forvarna gegn leghálskrabbameini og berjast evrópusamtökin ECCA fyrir því. Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur borist beiðni um aðstoð við að safna undirskriftum á Íslandi. 

Ritstjórn
23.1.2012

Helga Marín kemur frá Dubai til að kenna okkur lífsstílsbreytingar gegnum hugarfarið

„Ég kem hingað til lands þrisvar á ári og held þá eins mörg námskeið og ég get. Ég er í raun og veru að færa mig úr sólinni í snjóinn og öfugt þegar ég flakka svona á milli Íslands og Dúbai. Það virkar vel og er skemmtileg tilbreyting,“ segir Helga Marín sem stendur fyrir námskeiðinu „Áramótaheitin og hvernig á að standa við þau.“ 

Ritstjórn
22.1.2012

Þarabað í friðargarði í Garði!

Bogi Jónsson sem gerði garðinn frægan fyrir taílenskan veitingastað og spa sem hann rak á Álftanesi er á góðri leið með að missa aðstöðuna á Álftanesi til bankans. Bogi og eiginkona hans, Nok, hafa keypt gamalt hús í Garði og eru að flytja þangað. Þar ætla þau að byrja á byrjuninni og byggja upp spa. Þau hafa þegar opnað þarabað.

Ritstjórn
21.1.2012

Hvort er flottara? - Mynd

Kvenímyndin hefur svo sannarlega breyst. Hvort þykir fallegra í dag?

Ritstjórn
21.1.2012

Eilíf æska: 95 ára ballerína

Æfingar á hverjum degi í yfir 60 ár! Ótrúlega falleg og lítil heimildarmynd um Maia Helles í New York sem er 95 ára rússnesk ballettdansmær.

Aðsendar greinar
20.1.2012

Hið kærkomna svokallaða „spik“

Ég hef heyrt frá nokkrum skvísum um þetta blessaða „spik" sem þær eru með...að þeim finnst það ljótt, ekki flott og vilji helst losna við það, fitusog eða bara „skera það í burtu..."

 

Ritstjórn
20.1.2012

Sjúklega falleg kona? - Myndir

Vissulega! En skoðið þetta alveg til enda...

Tamar Matchavariani
18.1.2012

Ofurskínkur

Það eru margar skínkur hér á landi en svona til að byrja með; Hvað er að vera skínka?  Allir hafa sína eigin útskýringu á hugtakinu en fyrir mér er skínka stelpa sem málar sig fáránlega mikið. 

Aðsendar greinar

Reunion

Heiðrún Finnsdóttir

Hin fullkomna þú

Keyrir á Disil CMS frá Atómstöðinni