Einar Einarsson er formaður 0% hópsins og telur hann vera mikil þörf á fyrirbyggjandi aðgerðum til að forða ungmennum frá vímuefnaneyslu. Allt of mikið sé af meðferðum fyrir krakka sem hafa verið í neyslu en það vanti þetta fyrsta skref.
Við fengum Einar til að svara nokkrum spurningum um starfsemina:
Hvernig byrjaði 0% hópurinn?
Fyrir ári síðan var haft samband við okkur frá IOGT (Templarahreyfingunni) sem er elsta félagsstarfsemi á Íslandi. Þeim vantaði afþreyingu og skemmtun fyrir edrú krakka. Það er nóg af meðferðum til fyrir krakka sem hafa verið í neyslu og það vantar þetta fyrsta skref; Að ná krökkunum áður en þau fara í neyslu – kenna þeim að lifa skemmtilegu lífi án þess að þurfa að prófa vímugjafa.
Við störfum náið með UNF í Svíþjóð, sem er með mjög vel heppnaða starfsemi af þessu tagi, með yfir 7000 virka meðlimi. Við fórum tvisvar sinnum í fyrra í sumarbúið og svo námskeið. Í júlí á þessu ári sendum við 20-30 krakka í sumarbúðir til Lettlands. Svo munum við halda alheimsmót á Íslandi á næsta ári, og þá koma hingað til lands 800-1200 krakkar allstaðar að úr heiminum.
Hvað gerið þið í samtökunum?
Við hittumst öll föstudagskvöld og spilum eða förum í keilu, pool eða þessháttar. Svo einu sinni í mánuði erum við með stærri viðburði, þá förum við t.d. í Laser Tag, leigjum skála eða förum í útilegu. Það er eiginlega allt ókeypis sem við gerum, annars mjög ódýrt.
Hafa meðlimir átt við vanda að stríða eða hafa þeir aldrei prófað vímuefni?
Ég myndi segja að 40% meðlima hefðu farið í meðferð eða eru meðlimir AA eða þessháttar. 60% meðlima hafa aldrei snert vímuefni og vilja það ekki. Þeir sem hafa verið í neyslu stoppa því miður stundum stutt við. Þau eru sum meðlimir samtaka og mæta til okkar til að vera með í félagslífi. Þetta er þó ekki meðferðartengt hjá okkur en við erum í samstarfi við Foreldrahús og Bara gras og fleiri hópa. Samskiptin milli krakkanna eru náin, við reynum að fá þau til að opna sig.
Teljið þið vímuefnaneyslu – þann heim – vera að herðast?
Já, það er rétt. Við fáum kannski krakka inn í hópinn og þau eru með okkur í einhvern tíma. Svo hverfa þau á brott af því að eitthvað annað hefur náð tökum á þeim. Það er gríðarleg aukning á framboði vímuefna. Við tökum virkan þátt í að fræða foreldra líka.
Hafa stjórnarmeðlimir 0% aldrei bragðað áfengi eða eru þeir edrú?
Við erum 8 sem sitjum í stjórn. 6 eru óvirkir alkar, 2 hafa aldrei snert áfengi. Edrútími okkar er 2-5 ár.
Hverju vonið þið að 0% komi til leiðar?
Við viljum vekja athygli á því að það er klárlega þörf fyrir starfsemi af þessu tagi. Það er allt of lítið af fyrirbyggjandi samtökum starfandi, það er meira fókusað á að grípa inn í þegar vandinn er orðinn mikill.
Við viljum vera með hóp sem krakkarnir stjórna að miklu leyti sjálf. Þetta er allt mjög „loose“ – ef þau vilja stofna t.d. saumaklúbb, gera þau það. Prinsippið er að vera góð við hvort annað og þetta er ákveðið bræðralag.
Á föstudögum er 0% hópurinn staðsettur í Brautarholti 4a. Á laugardagskvöldum eru þau í Mjósund 10 (gamla bókasafnið í Hafnarfirði)
Hér er hópurinn á Facebook.
Einar hvetur alla til að kíkja við og nefnir að vegna mikillar aðsóknar mun verða haldið sérstakt kvöld í Hafnarfirði laugardagskvöldið 23. apríl þar sem m.a. verða uppistandarar og töframaður.




















