Hin hollenska Laura Dekker sigldi í höfn í gær eftir árs siglingu í kringum hnöttinn. Mannfjöldi fagnaði henni þar sem hún kom að landi í St. Maarten í karabíska hafinu en húnfór af stað í ferðina þann 20 janúar 2011.
Laura fór af stað í ferðina þann 20 janúar 2011 á 11,5 metra bát sínum Guppy. Áður en hún fór í ferðina vann hún mál gegn félagsmálayfirvöldum í Hollandi sem, kröfðust þess að hún hætti við ferðina þar sem hún gæti verið henni skaðleg, bæði tilfinningalega og félagslega.
Móðir Lauru hafði haft áhyggjur af ferðinni en hætti síðan við að andmæla.

Laura fæddist um borð í skútu fyrir utan Nýja-Sjáland þar sem foreldrar hennar höfðu verið í sjö ára siglingu í kringum heiminn. Er hún alin upp á skútu og byrjaði sjálf að sigla þegar hún var einungis tíu ára gömul.
Án efa er ferð Lauru Dekker heimsmet – þ.e. yngsta kona til að sigla í kringum heiminn en heimsmetabók Guinness er hætt að skrá slík met þar sem þau þykja „ósiðleg.“ Umboðsmaður Dekker segir að metið skipti unglinginn engu máli, „bara að draumur hennar hafi orðið að veruleika.“
Þegar Dekker var einungis 14 ára gömul var henni komið fyrir í umsjá félagsmálayfirvalda í Hollandi þar sem mælt var gegn sjósiglingum hennar, þar sem hún var alltaf ein á bátnum. Dekker stakk af og fór til St. Maarten sem er eyja (á Antillaeyjum í Karabíska hafinu) sem skipt er milli Frakka og Hollendinga og þurfti lögreglan að fylgja henni aftur heim.
Laura Dekker segist hinsvegar ekki sjá eftir neinu. Hún hafi unnið heimavinnuna sína á sjó og segist útskrifast síðar á þessu ári. Hún hefur ekki ákveðið hvað hún gerir næst en segist aldrei aftur ætla að snúa til heimalands síns, Hollands.




















