30 ár liðin frá stofnun Kvennaathvarfsins
07.02.2012 Ritstjórn

Á árinu 2012 munu Samtök um Kvennaathvarf minnast þess með ýmsum hætti að 30 ár eru liðin frá stofnun samtakanna og opnunar Kvennaathvarfsins sem allar götur síðan hefur veitt konum og börnum þeirra skjól þegar dvöl á heimilum hefur verið óbærileg vegna ofbeldis.

Á þessum árum hafa á sjöunda þúsund gesta dvalið í athvarfinu til lengri eða skemmri tíma. Að auki hefur mikill fjöldi kvenna þegið ráðgjöf og stuðningsviðtöl, tekið þátt í sjálfshjálparhópum og leitað stuðnings og upplýsinga í neyðarsíma athvarfsins.

Nýleg íslensk rannsókn bendir til þess að á hverju ári séu á bilinu 1200-2300 konur á Íslandi beittar líkamlegu og/eða kynferðislegu ofbeldi af hálfu maka eða fyrrverandi maka (eða 1-2% íslenskra kvenna á aldrinum 18-80 ára).

Það er því ljóst að í Kvennaathvarfið leitar aðeins lítill hluti kvenna sem búa við ofbeldi í nánum samböndum. Í ljósi þess fögnum við síaukinni aðsókn og teljum hana benda til þess að athvarfið sé betur kynnt en áður og að konur séu tilbúnari til að nýta sér þjónustu þess,frekar en að ofbeldi sé endilega að aukast.

Afmælisárið verður meðal annars notað til kynningar á Kvennaathvarfinu og þjónustu þess sem og til fræðslu og upplýsingagjafar um ofbeldi í nánum samböndum, eðli þess og birtingarmyndir.

Hér að neðan er listi yfir einkenni ofbeldis í samböndum:

Ofbeldi í nánum samböndum

Yfirleitt þekkjum við líkamlegt ofbeldi og líklegt er að þú skilgreinir það sem ofbeldi ef maki þinn slær þig eða kýlir, sparkar í eða bítur þig, lokar þig inni, sker þig eða hendir í þig hlutum. Andlegt ofbeldi er erfiðara að greina og því hefur oft mikið gengið á áður en brotaþoli áttar sig á því hvað er að gerast.

Óæskileg framkoma getur stundum verið ofbeldi en stundum ekki. Það fer eftir kringumstæðum, upplifun, því sem hefur gengið á áður og því hvar völdin liggja í sambandinu. Annað flokkast alltaf undir ofbeldi.

Þú ert í ofbeldissambandi eða þú ert hugsanlega í ofbeldissambandi ef maki þinn;

  • hefur þig undir ströngu eftirliti
  • kemur í veg fyrir að þú hittir vini þína eða fjölskyldu
  • takmarkar aðgang þinn að peningum
  • kemur í veg fyrir að þú vinnir utan heimilis
  • segir þér hvernig þú átt að klæðast
  • fær fram vilja sínum með hótunum
  • öskrar á þig og svívirðir þig
  • virðir ekki skoðanir þínar og tilfinningar
  • sakar þig um svik eða framhjáhald
  • þvingar þig til að horfa á klám
  • gagnrýnir þig og verkin þín
  • niðurlægir þig á almannafæri
  • ásakar þig um það sem hann sjálfur eða aðrir bera ábyrgð á
  • eyðileggur persónulegar eigur þínar
  • neyðir þig til samfara eða annarra kynlífsathafna
  • rengir upplifanir þínar t.d. þegar hann hefur komið illa fram við þig
  • hótar að fyrirfara sér ef þú lætur ekki að vilja hans
  • niðurlægir þig kynferðislega

Inni á heimasíðu Kvennaathvarfsins, www.kvennaathvarf.is er að finna spurningalista sem eru ganglegir til að meta ofbeldi í samböndum.

Ritstjórn
18.5.2012

Hátíð í Útilíf á morgun: Gjafir, vinningar, dans og tilboð!

easy forsida 2

Mikið verður um að vera í Útilíf í Kringlunni á morgun frá 14-16. 20% afsláttur verður af EasyTone skóm sem algerlega hafa slegið í gegn hjá íslenskum konum. Í Útilíf, Kringlunni verður 20% afsláttur af EasyTone skóm. Vegleg gjöf frá Nivea fylgir öllum seldum EasyTone skóm. Einnig verður glaðningur frá Nivea fyrir allar sem máta EasyTone [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Hinn fullkomni stelpubíll?

car l

Fullkomin bíll að mati okkar á Bleikt á fallegum föstudegi! Hvað fáum við mörg „læk“ á það?  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvernig á að opna vínflösku án upptakara: Myndband

vinflaska

Kannski sniðugasta og nytsamlegasta ráð sem þú munt nokkurn tíma læra!  

Ritstjórn
18.5.2012

Ef þú breytir ekki öryggisstillingunum þínum á Facebook…

privat l

…gæti þetta gerst!  

Ritstjórn
18.5.2012

Óður til brjóstagjafar: Myndband

brjostagjof

Flestar mæður þekkja raunir og ánægju brjóstagjafar af eigin raun. Hér er frábært lag sem samið er af L.A. Women sem er grínhópur frá Los Angeles og kallast það Life Givers. Stórskemmtilegt myndband!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvað stingur í stúf á þessum myndum?

odd fors

Reyndu nú: Hvað gastu margar réttar?  

Aðsendar greinar
18.5.2012

Svar við „Öfundsjúkar kærustur á djamminu“

ofund 2

Ég á kærasta og fer mjög oft með honum á djammið og oftar en ekki lendi ég í því að fullar stelpur reyna við hann fyrir framan nefið á mér. Ég treysti honum fullkomlega og veit vel að hann hefur engan áhuga en samt fer þetta virkilega í taugarnar á mér. Eins og lýst var [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Sniðugur skóskápur

skoskapur l

Við erum alltaf í vandræðum með skóna okkar. Hér er frábær leið til að geyma þá!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hversu algengur er afmælisdagurinn þinn?

amm lil

Kíktu á þessa töflu. Frekar athyglisvert, ekki satt?  

Ritstjórn
18.5.2012

„Hey, manni – hvað er klukkan?“

saehestur lil

Frábær mynd sem náðist á Maui, Hawaii  

Nafnlaust
18.5.2012

Játning: Hann er tveimur árum yngri en ég

jat

Ég er 17 ára stelpa og á yndislegan strákavin sem ég treysti fyrir öllu. Við kynntumst í gegnum netið og erum búin að þekkjast í 3 mánuði. Við erum búin að upplifa margt og mikið saman. Hittumst alltaf fyrst með vinum en erum núna farin að hittast bara 2. En ég er farin að finna fyrir meiru en [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Nýja forsetafrú Frakka er virkilega flott fyrirmynd

VT forsida

Valérie Trierweiler er kona nýkjörins forseta Frakka, François Hollande. Eftir að hafa lesið um hana á New York Times erum við þess fullvissar að franskar konur gætu ekki fengið betri fyrirmynd. Í fyrsta lagi heldur hún nafninu sínu, þ.e. tekur ekki eftirnafn mannsins síns. Hún er 47 ára gömul og hefur verið einn fremsti stjórnmálablaðamaður [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Einmitt frumsýningarkjóllinn sem við vorum að leita að!

kj forsida

Nei, við erum ekki að djóka – fyrirsætan Michaela Schaefer var í þessu dressi á frumsýningu kvikmyndarinnar Men In Black 3 í Berlín á dögunum. Afar sérstakur kjóll…og eftirminnilegur!  

Ágústa Arna
17.5.2012

Eurovision 2012 – Lögin sem keppa þann 24. maí

eurovision

Nú er Eurovision undirbúningurinn á fullu og keppendur komnir til Baku þar sem þeir æfa stíft og taka þátt í fjölmiðlafárinu í kringum keppnina. Ágústa Arna hefur velt lögunum mikið fyrir sér að undanförnu og hefur birt umfjöllun um 18 fyrstu lögin sem munu keppa ásamt Grétu Salóme og Jónsa þann 22. maí og nú [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Diskódrottningin Donna Summer látin

donna summer

Diskódrottningin Donna Summer er látin, 63 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein. Samkvæmt slúðurvefnum TMZ hafði hún barist lengi við krabbameinið en hafði reynt að leyna því hversu veik hún var orðin. Hátindur Summer var á áttunda áratugnum þegar diskótíminn var í hámarki og átti hún lög eins og Last Dance,  Hot Stuff og [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Stelpurnar í Júník voru að fá SJÚKLEGAR buxur!

budin buxur

Júník í Smáralind: Voru að fá buxur aftur sem ruku út á sínum tíma. Eftir langa bið eru þær komnar aftur og eru algerlega að slá í gegn! Þær eru með þvílíkt úrval af glænýjum vörum og er búðin ein sú heitasta í bænum í dag! BUXURNAR! BÚÐIN!