68% leki en engir púðar boðnir í staðinn
14.02.2012 Ritstjórn

Búið er að ómskoða 105 konur hér á landi með PIP púða og hefur komið í ljós að púðar leka hjá 71 konu eða í um 68% tilfella. Konum stendur til boða að láta fjarlægja fyllingarnar en ekki fá nýjar fyllingar í þeirra stað.

Samkvæmt frétt frá Velferðarráðuneytinu hefur Lyfjastofnun sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins upplýsingar um háa lekatíðni falsaðra PIP brjóstapúða hér á landi.

Bleikt hafði samband við konu sem er með PIP púða sem ekki eru farnir að leka og hefur hún áhyggjur af þeim sem sitja hinumegin við borðið:„Hvað á ég að gera? Á ég að vera undir sérstöku eftirliti? Ég vil ekki að púðarnir verði teknir úr mér og ég fæ ekkert í staðinn. Ég ætti að vera tilbúin að fá aðra púða strax.“

Konurnar sem hafa fengið PIP púða stefna nú á hópmálssókn og hafa ráðið lögfræðinginn Sögu Ýrr Jónsdóttur. Sumar hverjar glíma við þunglyndi og kvíða vegna málsins og mun koma í ljós fljótlega hvaða stefnu þær taka.

Eftir því sem best er vitað hefur hvergi annars staðar verið ráðist í skipulega ómskoðun kvenna með PIP brjóstafyllingar. Samanburðarhæfar upplýsingar lekatíðni þeirra frá öðrum þjóðum eru því ekki fyrir hendi.

Þann 7. febrúar síðastliðinn samþykkti ríkisstjórnin tillögu velferðarráðherra um að bjóða öllum konum sem fengið hafa PIP brjóstapúða hér á landi að láta nema þá brott með aðgerð á vegum Landspítala. Með þessu var aukið við fyrri ákvörðun heilbrigðisyfirvalda um aðgerðir þar sem konum stóð til boða að láta nema brott leka púða.

Ákvörðun um brottnám allra PIP brjóstapúða var tekin í samræmi við faglegt mat Embættis landlæknis sem byggist á niðurstöðum skýrslu sérfræðingahóps Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins,SCENIHR. Meðal annars er horft til þess að fyrirbyggjandi brottnám PIP brjóstafyllinga sé konum skaðminna en brottnám púða þegar þeir eru farnir að leka, líkt og fram kemur í erindi Embættis landlæknis til velferðarráðuneytisins.

Samkvæmt ákvörðun heilbrigðisyfirvalda stendur konum til boða að láta fjarlægja PIP brjóstafyllingar í aðgerð á vegum Landspítala en ekki verða settar inn nýjar fyllingar í þeirra stað.

Staðfest hefur verið að bólgusvörun er meiri við leka frá PIP brjóstapúðum en öðrum brjóstapúðum og brottnám þeirra því erfiðara vegna þess. Embætti landlæknis bendir á þetta íerindi sínu til velferðarráðuneytisins3. febrúar síðastliðinn. Þar segir jafnframt að vegna bólgunnar sem myndast og áhrifa hennar á nærliggjandi svæði séu minni líkindi til þess að mögulegt sé að setja inn nýja púða um leið og PIP brjóstapúðarnir eru fjarlægðir.

Íslensk heilbrigðisyfirvöld eru í beinum samskiptum við hlutaðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofnanir í Evrópu og fylgjast grannt með þróun mála varðandi PIP brjóstafyllingarnar hjá öðrum þjóðum.

Ritstjórn
18.5.2012

Hátíð í Útilíf á morgun: Gjafir, vinningar, dans og tilboð!

easy forsida 2

Mikið verður um að vera í Útilíf í Kringlunni á morgun frá 14-16. 20% afsláttur verður af EasyTone skóm sem algerlega hafa slegið í gegn hjá íslenskum konum. Í Útilíf, Kringlunni verður 20% afsláttur af EasyTone skóm. Vegleg gjöf frá Nivea fylgir öllum seldum EasyTone skóm. Einnig verður glaðningur frá Nivea fyrir allar sem máta EasyTone [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Hinn fullkomni stelpubíll?

car l

Fullkomin bíll að mati okkar á Bleikt á fallegum föstudegi! Hvað fáum við mörg „læk“ á það?  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvernig á að opna vínflösku án upptakara: Myndband

vinflaska

Kannski sniðugasta og nytsamlegasta ráð sem þú munt nokkurn tíma læra!  

Ritstjórn
18.5.2012

Ef þú breytir ekki öryggisstillingunum þínum á Facebook…

privat l

…gæti þetta gerst!  

Ritstjórn
18.5.2012

Óður til brjóstagjafar: Myndband

brjostagjof

Flestar mæður þekkja raunir og ánægju brjóstagjafar af eigin raun. Hér er frábært lag sem samið er af L.A. Women sem er grínhópur frá Los Angeles og kallast það Life Givers. Stórskemmtilegt myndband!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvað stingur í stúf á þessum myndum?

odd fors

Reyndu nú: Hvað gastu margar réttar?  

Aðsendar greinar
18.5.2012

Svar við „Öfundsjúkar kærustur á djamminu“

ofund 2

Ég á kærasta og fer mjög oft með honum á djammið og oftar en ekki lendi ég í því að fullar stelpur reyna við hann fyrir framan nefið á mér. Ég treysti honum fullkomlega og veit vel að hann hefur engan áhuga en samt fer þetta virkilega í taugarnar á mér. Eins og lýst var [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Sniðugur skóskápur

skoskapur l

Við erum alltaf í vandræðum með skóna okkar. Hér er frábær leið til að geyma þá!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hversu algengur er afmælisdagurinn þinn?

amm lil

Kíktu á þessa töflu. Frekar athyglisvert, ekki satt?  

Ritstjórn
18.5.2012

„Hey, manni – hvað er klukkan?“

saehestur lil

Frábær mynd sem náðist á Maui, Hawaii  

Nafnlaust
18.5.2012

Játning: Hann er tveimur árum yngri en ég

jat

Ég er 17 ára stelpa og á yndislegan strákavin sem ég treysti fyrir öllu. Við kynntumst í gegnum netið og erum búin að þekkjast í 3 mánuði. Við erum búin að upplifa margt og mikið saman. Hittumst alltaf fyrst með vinum en erum núna farin að hittast bara 2. En ég er farin að finna fyrir meiru en [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Nýja forsetafrú Frakka er virkilega flott fyrirmynd

VT forsida

Valérie Trierweiler er kona nýkjörins forseta Frakka, François Hollande. Eftir að hafa lesið um hana á New York Times erum við þess fullvissar að franskar konur gætu ekki fengið betri fyrirmynd. Í fyrsta lagi heldur hún nafninu sínu, þ.e. tekur ekki eftirnafn mannsins síns. Hún er 47 ára gömul og hefur verið einn fremsti stjórnmálablaðamaður [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Einmitt frumsýningarkjóllinn sem við vorum að leita að!

kj forsida

Nei, við erum ekki að djóka – fyrirsætan Michaela Schaefer var í þessu dressi á frumsýningu kvikmyndarinnar Men In Black 3 í Berlín á dögunum. Afar sérstakur kjóll…og eftirminnilegur!  

Ágústa Arna
17.5.2012

Eurovision 2012 – Lögin sem keppa þann 24. maí

eurovision

Nú er Eurovision undirbúningurinn á fullu og keppendur komnir til Baku þar sem þeir æfa stíft og taka þátt í fjölmiðlafárinu í kringum keppnina. Ágústa Arna hefur velt lögunum mikið fyrir sér að undanförnu og hefur birt umfjöllun um 18 fyrstu lögin sem munu keppa ásamt Grétu Salóme og Jónsa þann 22. maí og nú [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Diskódrottningin Donna Summer látin

donna summer

Diskódrottningin Donna Summer er látin, 63 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein. Samkvæmt slúðurvefnum TMZ hafði hún barist lengi við krabbameinið en hafði reynt að leyna því hversu veik hún var orðin. Hátindur Summer var á áttunda áratugnum þegar diskótíminn var í hámarki og átti hún lög eins og Last Dance,  Hot Stuff og [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Stelpurnar í Júník voru að fá SJÚKLEGAR buxur!

budin buxur

Júník í Smáralind: Voru að fá buxur aftur sem ruku út á sínum tíma. Eftir langa bið eru þær komnar aftur og eru algerlega að slá í gegn! Þær eru með þvílíkt úrval af glænýjum vörum og er búðin ein sú heitasta í bænum í dag! BUXURNAR! BÚÐIN!