Ég er algjör sucker fyrir raunveruleikaþáttum. Ég horfi jafn mikið á þá og ég horfi á venjulega þætti. Mér finnst skemmtilegra að fylgjast með alvöru fólki en leikurum.
Ég er ekki að segja að ég sé það trúgjörn að halda að raunveruleikaþættir séu 100% raunverulegir og tel að aðstæður séu oft skapaðar af framleiðendum – en það er undir fólkinu komið hvernig það bregðst við. Samt sem áður elska ég raunveruleikaþætti!
Hér eru 8 raunveruleikaþættir sem ég mæli með:

The Bad Girls Club. Sjö stelpur búa saman í einu húsi í nokkra mánuði. Þær eru flestar háværar, ákveðnar, tíkalegar og hreint út klikkaðar. Þessir þættir innihalda fáránlega mikið drama og jafnvel slagsmál . Þetta er mjög skemmtileg afþreying.

16 and Pregnant. Fjallar um stelpur á aldrinum 15-17 ára. Þær verða óléttar og mjög fljótt eftir það, ungar mömmur. Við fylgjumst með baráttu þeirra að halda áfram að reyna að vera unglingar og mæður á sama tíma.

Teen mom. Þessir þættir eru framhald 16 and pregnant. Fylgjumst með lífi stelpnanna eftir að þær eignast börnin og allt drama sem fylgir því.

Jersey Shore. Klassískir þættir um 8 manns sem eru frá New York eða New Jersey en eru ættuð frá ítalíu. Eina sem þau gera er að rífast, djamma, borða, fara í ræktina og í jimmið og fara í ljós á hverjum einasta degi. Sjúklega fyndir og atburðaríkir þættir sem allir ættu að gefa tækifæri.

The Bachelor. Þar sem ég er ekki enn komin með skjáeinn, hef ég ekki horft á The Bachelor í meira en 2 ár. Það er lítið svosem ekkert varið í þáttunum, en maður dettur inn í þá um leið og maður byrjar að horfa og næsta sem þú veist, ertu háð/ur þeim!

LA Ink. Þið sem fílið tattú ættuð að elska þessa þætti og þekkið þessa þætti pottþétt. Kat Von D er frægur tattú artist. Hún ákveður að opna sína eigin stofu og fá besta fólkið með sér í bransann.

Toddlers and Tiaras : Stelpur á aldrinunum 0-10 ára í Suðurríkjunum í Bandaríkjunum, taka þátt í allskonar fegurðarsamkeppnum þar sem þær eru stífmálaðar og líta út fyrir að vera dvergar á tvítugsaldri. Þessir þættir sjokkera mann.

Jerseylicious : Við fylgjumst með stelpum og konum sem vinna saman á hárgreiðslustofu í New Jersey. Þær eru allar háværar, ákveðnar og mjög dramatískar . Ágætir þættir þegar maður hefur ekkert að gera.




















