Adele var klárlega stjarna kvöldsins á Grammy verðlaunahátíðinni sem haldin var í nótt en söngkonan vann 6 Grammy verðlaun og jafnaði þar með met Beyoncés frá árinu 2009, þar á meðal fyrir bestu plötuna, bestu poppplötuna og besta popp sóló flutninginn á laginu „Someone Like You“. Adele var þó ekki eini sigurvegari kvöldsins heldur unnu Foo Fighters til 5 af þeim 7 verðlaunum sem þeir voru tilnefndir til og Kanye West fór heim með fjögur Grammyverðlaun.
Eins og alltaf þegar stjörnurnar koma saman vekur klæðaburður þeirra eftirtekt og í nótt var engin undantekning þar á en Nicki Minaj fangaði athyglina á rauða teppinu, íklædd rauðri skikkju og í fylgd páfans. Þó ekki Benidikts páfa

Það voru ekki eingöngu sigurvegararnir og Nicki sem áttu senuna í kvöld heldur stal Jennifer Hudson athygli áhorfenda með mögnuðum flutningi á lagi Whitney Huston „I will always love you“ en söngkonan fannst látin á hótelherbergi sínu daginn fyrir verðlaunahátíðina.
Facebook er eitthvað að stríða okkur þessa dagana, kæru lesendur. Like-takkinn krefst staðfestingar þrisvar sinnum og við biðjum ykkur að sýna okkur biðlund meðan þetta kemst í lag!




















