Að missa barn
28.01.2012 Aðsendar greinar

Ég á tvö börn. Eitt sem sefur núna í rimlarúminu sínu og knúsar bæði Bangsímon og Grísling. Hitt barnið mitt fékk ekki að lifa en ég veit að hún er hjá mér. Sjáið til, barneignir enda ekki alltaf í hraustu barni með 10 fingur og 10 tær.

Stundum, sem betur fer sjaldan, gerist það óhugsanlega og barnið deyr. Það getur gerst á meðgöngu eða það getur gerst í fæðingu eins og hjá mér og jafnvel seinna, eftir að barnið er fætt.

Meðganga er dásamlegur hlutur og sem betur fer upplifa flestar konur góða meðgöngu og eignast heilbrigt barn á meðan aðrar eignast kannski langveik börn og enn aðrar geta eignast andvanabörn. Hvað á samt að gera þegar barnið er ekki „fullkomið“?

Hvað gerum við mæður sem eignumst langveik börn eða jafnvel andvana börn? Jú, við knúsum barnið okkar. Við elskum það. Alveg jafn mikið og kona sem eignast hraust barn. Við eigum engan kost. Þetta er barnið okkar, hvort sem það er heilbrigt eða ekki, lifandi eða dáið. Okkar barn, alltaf.

Þegar ég fékk litlu dóttur mína í fangið var hún ísköld, hún var pínulítil, ekki nema 26 sm og 313 grömm. Hún var samt fullkomin! Það eina sem vantaði var neistinn, þessi litli lífsneisti sem manni finnst að öll börn eigi að hafa. Það hinsvegar skipti ekki máli á þeirri stundu, því ég var móðir að syrgja barnið mitt. Ég gerði það sem allar mæður gerðu.

Ég tók litlu stelpuna mína í fangið, ég kyssti hana, ég knúsaði hana og ég sagði henni að ég elskaði hana. Ég segi henni oft að ég elskaði hana og ég grét. Ég grét litlu dóttur mína sem ekki fékk að lifa. Barnið mitt, fallega litla stelpan hennar mömmu sinnar.

Sjáið til. Þó að ég hafi ekki gengið fulla meðgöngu þá var ég samt mamma. Í huganum var ég löngu orðin mamma og þessi litli líkami sem ég hélt á var dóttir mín. Fyrsta barnið mitt.

Í dag er ég enn mamma hennar, ég tel hana til barnsins míns og mun alltaf gera. Ég segi alltaf að ég eigi tvö börn sé ég spurð og ég trúi því að það eigi ekki að fela dána barnið manns. Hvers vegna má maður ekki viðurkenna tilvist barns sem aldrei fékk að lifa? Eða börn sem deyja ung?

Við foreldrar þessara litlu engla þurfum að finna stuðningin frá fólkinu í kringum okkur. Við þurfum að fá viðurkenningu á okkar sorg og missi. Sorgin hverfur ekki eftir hálft ár, ekki eftir heilt ár, ekki einu sinni eftir heilan áratug.

Sorgin verður alltaf þarna, það eina sem gerist er að við lærum að lifa með henni en til þess að lifa með henni þurfum við að fá að tala um hana. Við þurfum að vita að það sé í lagi fyrir okkur að tala um látna barnið okkar. Það er enginn skömm að vera foreldri barns sem dó. Það er hins vegar skömm að reyna að forðast umræður um látna barnið og neita að viðurkenna það.

Ritstjórn
18.5.2012

Hátíð í Útilíf á morgun: Gjafir, vinningar, dans og tilboð!

easy forsida 2

Mikið verður um að vera í Útilíf í Kringlunni á morgun frá 14-16. 20% afsláttur verður af EasyTone skóm sem algerlega hafa slegið í gegn hjá íslenskum konum. Í Útilíf, Kringlunni verður 20% afsláttur af EasyTone skóm. Vegleg gjöf frá Nivea fylgir öllum seldum EasyTone skóm. Einnig verður glaðningur frá Nivea fyrir allar sem máta EasyTone [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Hinn fullkomni stelpubíll?

car l

Fullkomin bíll að mati okkar á Bleikt á fallegum föstudegi! Hvað fáum við mörg „læk“ á það?  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvernig á að opna vínflösku án upptakara: Myndband

vinflaska

Kannski sniðugasta og nytsamlegasta ráð sem þú munt nokkurn tíma læra!  

Ritstjórn
18.5.2012

Ef þú breytir ekki öryggisstillingunum þínum á Facebook…

privat l

…gæti þetta gerst!  

Ritstjórn
18.5.2012

Óður til brjóstagjafar: Myndband

brjostagjof

Flestar mæður þekkja raunir og ánægju brjóstagjafar af eigin raun. Hér er frábært lag sem samið er af L.A. Women sem er grínhópur frá Los Angeles og kallast það Life Givers. Stórskemmtilegt myndband!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvað stingur í stúf á þessum myndum?

odd fors

Reyndu nú: Hvað gastu margar réttar?  

Aðsendar greinar
18.5.2012

Svar við „Öfundsjúkar kærustur á djamminu“

ofund 2

Ég á kærasta og fer mjög oft með honum á djammið og oftar en ekki lendi ég í því að fullar stelpur reyna við hann fyrir framan nefið á mér. Ég treysti honum fullkomlega og veit vel að hann hefur engan áhuga en samt fer þetta virkilega í taugarnar á mér. Eins og lýst var [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Sniðugur skóskápur

skoskapur l

Við erum alltaf í vandræðum með skóna okkar. Hér er frábær leið til að geyma þá!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hversu algengur er afmælisdagurinn þinn?

amm lil

Kíktu á þessa töflu. Frekar athyglisvert, ekki satt?  

Ritstjórn
18.5.2012

„Hey, manni – hvað er klukkan?“

saehestur lil

Frábær mynd sem náðist á Maui, Hawaii  

Nafnlaust
18.5.2012

Játning: Hann er tveimur árum yngri en ég

jat

Ég er 17 ára stelpa og á yndislegan strákavin sem ég treysti fyrir öllu. Við kynntumst í gegnum netið og erum búin að þekkjast í 3 mánuði. Við erum búin að upplifa margt og mikið saman. Hittumst alltaf fyrst með vinum en erum núna farin að hittast bara 2. En ég er farin að finna fyrir meiru en [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Nýja forsetafrú Frakka er virkilega flott fyrirmynd

VT forsida

Valérie Trierweiler er kona nýkjörins forseta Frakka, François Hollande. Eftir að hafa lesið um hana á New York Times erum við þess fullvissar að franskar konur gætu ekki fengið betri fyrirmynd. Í fyrsta lagi heldur hún nafninu sínu, þ.e. tekur ekki eftirnafn mannsins síns. Hún er 47 ára gömul og hefur verið einn fremsti stjórnmálablaðamaður [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Einmitt frumsýningarkjóllinn sem við vorum að leita að!

kj forsida

Nei, við erum ekki að djóka – fyrirsætan Michaela Schaefer var í þessu dressi á frumsýningu kvikmyndarinnar Men In Black 3 í Berlín á dögunum. Afar sérstakur kjóll…og eftirminnilegur!  

Ágústa Arna
17.5.2012

Eurovision 2012 – Lögin sem keppa þann 24. maí

eurovision

Nú er Eurovision undirbúningurinn á fullu og keppendur komnir til Baku þar sem þeir æfa stíft og taka þátt í fjölmiðlafárinu í kringum keppnina. Ágústa Arna hefur velt lögunum mikið fyrir sér að undanförnu og hefur birt umfjöllun um 18 fyrstu lögin sem munu keppa ásamt Grétu Salóme og Jónsa þann 22. maí og nú [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Diskódrottningin Donna Summer látin

donna summer

Diskódrottningin Donna Summer er látin, 63 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein. Samkvæmt slúðurvefnum TMZ hafði hún barist lengi við krabbameinið en hafði reynt að leyna því hversu veik hún var orðin. Hátindur Summer var á áttunda áratugnum þegar diskótíminn var í hámarki og átti hún lög eins og Last Dance,  Hot Stuff og [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Stelpurnar í Júník voru að fá SJÚKLEGAR buxur!

budin buxur

Júník í Smáralind: Voru að fá buxur aftur sem ruku út á sínum tíma. Eftir langa bið eru þær komnar aftur og eru algerlega að slá í gegn! Þær eru með þvílíkt úrval af glænýjum vörum og er búðin ein sú heitasta í bænum í dag! BUXURNAR! BÚÐIN!