Af lesbíum, útlendingum og transkonum
14.06.2011 klaraegilson

Í síðasta pistli mínum ræddi ég það ferðalag sem konunar að baki Bleikt hafa lagt að baki og hver viðbrögð almennings urðu, þegar vefurinn fór í loftið. Konurnar að baki Bleikt hafa átt undir högg að sækja sökum fordóma og legið undir þeim ásökunum að vera andfemínískar. Konurnar að baki Bleikt hafa, að mati þeirra sem gagnrýnt hafa efnistök miðilsins, ýtt undir misrétti kynjanna og neikvæðar staðalímyndir með vali á greinum þeim sem ritstjórn hefur valið að birta.

„Við erum femínistar!“ hafa gagnrýnisraddir sagt og ennfremur að femínismi eigi ekkert skylt við bleika litinn. „Út með litatóninn!“ hafa aðrar hrópað og fordæmt þau efnistök sem ritstjórn hefur valið að fjalla um.

En hvað er femínismi? Hugmyndafræðin hefur mörg andlit og það er ekkert einhlítt þegar að femínisma kemur. Femínismi er kynslóðabundinn og baráttumálin taka alltaf mið af þjóðfélagslegri stöðu kvenna að hverju sinni.

Ekki allir femínistar ganga í rauðum sokkum og blóta karlmönnum. Samkvæmt þeirri skilgreiningu er finna má á vefsíðu Femínistafélags Íslands, er „femínisti karl eða kona, sem veit að jafnrétti hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því.“ Sú barátta nær ekki einungis til forréttindahópa millistéttarinnar í augum okkar sem mynda ritstjórn Bleikt, heldur endurspeglar sú barátta kröfu fyrir auknum réttindum í öllum skúmaskotum þjóðfélagsins.

Til eru þeir femínistar sem ganga um á háum hælum og eiga varalit í veskinu. Misskilnings hefur gætt og hefur gagnrýni litast af þeim mýtum, að sannir femínistar þverneiti að ganga í fallegum undirfatnaði og fái í raun – aldrei að ríða. Þetta þykir mér leitt, því um ósannindi er að ræða. Femínista má finna í öllum stéttum þjóðfélagsins, en baráttumál þeirra eru misjöfn.

Hér mun ég því drepa lauslega á nokkrum undirgreinum borgaralegs femínisma sem jafnan verða útundan þegar réttindi kvenna bera á góma á opinberum vettvangi. Að hluta til er pistill minn tilkominn vegna þeirrar gagnrýni sem vefurinn hefur orðið fyrir, en tilgangur minn er einnig sá að vekja enn fremur athygli á réttindum þeirra kvenna sem tilheyra minnihlutahópum.

Kynþáttafemínismi: Barátta fyrir réttindum kvenna af ólíkum uppruna

Þann 31 janúar sl. tók Hlín Einarsdóttir, ritstjóri Bleikt viðtal við Kristínu Avon, sem er hálfur Íslendingur og hálfur Filipseyingur. Viðtalið bar heitið Fólk hefur kallað mig ótrúlegustu nöfnum og vakti gríðarlega athygli fyrir efnistökin, en Kristín hefur mætt miklum fordómum vegna uppruna síns og það þrátt fyrir að hún tali lýtalausa íslensku. Þannig sagði Kristín í viðtalinu að „fullorðin kona hefði kallað hana drasl, þegar hún var einungis fimm ára gömul“ og lýsti þannig á einlægan og hispurslausan hátt, duldum fordómum íslenskra kvenna í garð erlendra kvenna.

Kristín gagnrýndi af einlægni, þau andfemínísku viðhorf sem ákveðnir þjóðfélagshópar hafa í garð kvenna af ólíkum uppruna, sökum fordóma þeirra sömu sem stafa af vanþekkingu og ítrekaði mikilvægi þess að allar konur væru jafnar.

Viðtalið endurspeglaði baráttu ritstjórnar Bleikt fyrir rétti þeirra kvenna sem eru ekki af íslenskum uppruna og mæta því ekki einungis hindrunum sem konur, heldur einnig sem útlendingar. Við höfum því fjallað um kynþáttafemínisma og velt upp þeirri spurningu hvort fordómar í garð kvenna af öðrum kynþáttum líðist enn meðal ákveðinna þjóðfélagshópa á Íslandi, hvort konur af erlendu bergi brotnar mæti ekki einungis kynbundnu ójafnrétti heldur berjist einnig við kynþáttafordóma og örðugleika tengdum stéttarskiptingu í ofanálag.

Rödd Kristínar heyrðist gegnum viðtalið sem birtist á Bleikt og vakti þjóðarathygli.

Lesbískur femínismi: Barátta fyrir auknum réttindum samkynhneigðra kvenna

Birgitta Þorsteinsdóttir ritaði pistilinn Samkynhneigð = Kynlífssýki? í flipann Samskipti kynjanna þann 18 mars sl. og deildi þar hart á fordóma gagnkynhneigðra kvenna í garð samkynhneigðra kvenna. Benti Birgittta jafnframt á að lesbískum konum liði gjarna illa í návist gagkynhneigðra kvenna þegar báðar væru fáklæddar. Hún tíundaði það andrúmsloft sem myndast í búningsklefum kvenna, þegar lesbía er viðstödd og þau óþægindi sem samkynhneigðar konur verða fyrir í samfélagi sem aðhyllist gagnkynhneigð viðhorf.

Tilgangur Birgittu var ekki sá að alhæfa að allar gagnkynhneigðar konur hefðu fordóma gagnvart konum með aðra kynhneigð, heldur að benda á að til væru konur sem gætu ekki greint á milli, sökum vanþekkingar.

Ég veit ekki hversu oft vinkonur mínar hafa fengið spurningar frá fáfróðu fólk á borð við: „Ertu ekki hrædd við að afklæðast fyrir framan hana?“ eða „Ertu ekki hrædd um að hún verði ástfangin af þér?“ eða jafnvel „Ertu ekkert smeyk við að hún reyni við þig eða reyni að kyssa þig, káfa á þér?“ sagði Birgitta meðal annars í pistli sínum og bætti því jafnframt við, að spurningar á borð við þessar særi hana, þar sem hún laðist ekki að öllum konum, þrátt fyrir að vera lesbía.

Birgitta er lesbískur femínisti, sem berst fyrir jöfnum rétti samkynhneigðra og gagnkynheigðra kvenna. Fögnuðu ófáar samkynhneigðar konur orðum Birgittu, því enn eiga samkynhneigðar konur langt í land í ákveðnum baráttumálum áður en þær geta talist standa jafnfætis gagnkynhneigðum konum.

Sjálf ritaði ég um þá baráttu lesbískra mæðra þann 27 febrúar sl. Grein mín bar heitið Lesbíur berjast fyrir bættum hag foreldra og fjallaði um deilur samkynhneigðra við Fæðingarorlofssjóð út af eyðublöðum sem sjóðurinn neitaði að breyta í samræmi við kyn foreldra nýfæddra barna. Er þá ótalið viðtalið sem birtist við Guðrúnu Ó. Axelsdóttur daginn eftir, en það bar heitið Allar birtingarmyndir ástarinnar eru fallegar og snerist um baráttu samkynhneigðra kvenna fyrir aukinni fræðslu grunnskólabarna og grunnskólakennara um ólík fjölskylduform.

Trans-femínismi: Barátta fyrir réttindum kvenna sem fæddust í karlkyns líkama

Völu Grand þarf vart að kynna, en hún var ein frægasta transkona Íslands, áður en hún undirgekkst kynleiðréttingaraðgerð. Vala heldur úti glæsilegum sjónvarpsþáttum gegnum vefmiðilinn Bleikt, en hún hefur ekki einungis mætt fordómum vegna kynferðis síns heldur einnig vegna hörundslitar, en Vala er dökk eins og Kristín Avon og hefur því átt við ramman reip að draga í jafnréttismálum.

Vala er ekki eini trans-femínistinn sem ljáir vefmiðlinum Bleikt röddu sína, því ítarlegt viðtal birtist við Uglu Stefaníu, formann Hinsegin Norðurland, þann 16 febrúar sl. og bar viðtalið yfirheitið Af hverju ertu ekki bara hommi eins og venjulegt fólk? Það var Malín Brand, aðstoðarritstjóri Bleikt, sem ræddi við Uglu, sem af einlægni og hugrekki fræddi lesendur um það flókna ferli sem einstaklingur fer í gegnum við leiðréttingu á eigin kyni.

Ugla Stefanía hefur skrifað pistla fyrir Bleikt, sem fjalla um málefni transfólks og daglegt líf þeirra. Hún er fastur penni í Skyldulesningu og birtast greinar hennar reglulega á miðlinum.

Stúlkurnar Vala og Ugla eru trans-femínistar, sem með hugrekki og einlægni sinni berjast fyrir bættum réttindum transkvenna og þeirra kvenna sem hafa þegar gengist undir kynleiðréttingaraðgerð, þeim þætti femínisma sem hefur orðið útundan í lesbíska og gagnkynhneigða femínismanum. Báðar hafa þær ljáð Bleikt röddu sína og glætt baráttuna auknu lífi.

„Trukkalessur, Tæjur og Stelpuhommar“ eru viðurnefni þeirra kvenna sem hér eru nefndar að ofan. Götuslangur. Níðyrði. Orð sem enginn vill kannast við en flestir segja einhverju sinni á ævinni. Gagnkynhneigðir, „hreinræktaðir“ millistéttarfemínistar taka sjaldan á málefnum þessa kvenna, þrátt fyrir ötula baráttu fyrir bættum kjörum kvenna í sömu stöðu.

Þær konur, sem hafa hvað mest gengið fram í þjóðfélaginu í nafni kvenréttinda, hafa barist fyrir bættum launakjörum en vegna félagslegs forskots sem hinar sömu hafa, umfram kynferði sitt, hafa þau femínísku mannréttindamál sem hér eru nefnd, orðið útundan að mestu. Réttindi þeirra þjóðfélagshópa, sem hér er um rætt, transkvenna, útlendinga og lesbía, eru af skornum skammti í velferðarþjóðfélagi sem státar af fáheyrðum réttindum kvenna á alþjóðavettvangi.

Hvergi hef ég rekist á röð greina úr garði harðlínufemínista sem taka mið af því að bæta réttindi þessa þjóðfélagshópa sem hér eru nefndir að ofan, á öðrum miðli en Bleikt ef undanskilin eru stök viðtöl sem birst hafa í öðrum fjölmiðlum og hafa fjallað um menningu jaðarhópa.

Viðtölum þeim, sem þessar hugrökku stúlkur höfðu veitt fjölmiðlum áður en Bleikt fór í loftið, var flestum ætlað að gægjast inn í skúmaskot mannlífsins og lýsa yfir fordómaleysi miðilsins sem um málið fjallaði, þegar í raun tilgangurinn var sá að selja eintök.

Raddir þessa kvenna fengu aukið vægi þegar vefmiðillinn Bleikt fór í loftið og boðskapur þeirra, baráttuefni og markmið urðu loks þjóðinni skýr. Við erum fullgildar konur – er inntak orða þeirra.

Fyrrgreindar umfjallanir eru háfemínískar í eðli sínu. Þær fjalla um réttindaskort kvenna í þjóðfélagi sem státar sig af ötulli baráttu fyrir bættum kjörum og kapphlaupi sem miðar að fullu launajafnræði beggja kynja. Þetta eru konurnar sem verða jafnan útundan og eru hvergi hafðar með í ráðum, utan þess þegar fylla á upp í umfjöllunarkvóta. Vefmiðillinn Bleikt lagði þessum konum verkfæri í hendur.

Bleikt er háfemínískur vefmiðill sem ljáir jaðarhópum innan kvennasamfélagsins röddu og birtir óskir þessa kvenna, þarfir og þrár á miðli sem er ekki einungis sniðinn að konum, heldur einnig ritaður af konum. Að halda öðru fram er fásinna. Undirgreinar þriðju kynslóðar borgaralegs frjálslyndisfemínisma eru fjölmargar og hér hef ég einungis drepið á fáeinum þeirra.

Konurnar sem blóta Bleikt á vefnum, eru róttækir rétttrúnaðarfemínistar og hafa misskilið markmið kvennabaráttunnar með öllu. Þeim gagnrýnisröddum má aldrei rugla saman við raunverulega baráttu kvenna fyrir bættum kjörum. Enn er langt í land í óteljandi málefnum kvenna á Íslandi og þó róttækir femínistar sem enn aðhyllast þá stefnu sem önnur kynslóð femínista trúði skýrt á í kringum 1970, er ekki þar með sagt að allir femínistar gangi um í skósíðum pilsum og versli bómullarnærföt í náttúruvöruverslunum.

Reyndar þekki ég engan femínista sem fellur undir þá neikvæðu staðalímynd sem ég nefni hér að ofan og oft er dregin upp af þeim konum sem aðhyllast róttækan rétttrúnaðarfemínisma, eða hreinstefnufeminisma.

Femínistar eru fullgildar konur; þær njóta kynlífs, búa yfir kímnigáfu og eiga fullan rétt á eigin lífsskoðunum. Ég hef aldrei haldið öðru fram og mun aldrei gera. Það er ljótt að tala illa um konur og kynferðislegar skírskotanir í niðurlægjandi samhengi eiga aldrei rétt á sér þegar skoðanaágreiningur rís vegna ólíkra lífsviðhorfa.

Mér líkar illa að vera nefnd „vel tilhöfð útungungarvél“ eða „áhrifalaus einkaritari með munúðarfullan afturenda“ rétt eins og stúlkurnar sem ég fjallaði um hér að ofan og eru uppnefndar vegna ætternis, kynhneigðar eða kynferðis. Mér líka illa að vera gagnrýnd vegna þess eins að ég laðast að því sem fagurt er og aðhyllist ekki hugmyndafræði þeirra baráttukvenna sem knýja fram eigin markmið með því einu að tala niður til annarra kvenna.

Það er ljótt að skírskota til niðurlægjandi kynhegðunar þó aðilar séu á ólíku máli.

Femínismi hefur fjölmörg andlit og hér hef ég einungis dregið upp þær hliðar, sem eiga undir hvað mest högg að sækja í samfélagi sem er upplýst, tæknivætt og hámenntað. Á komandi vikum mun ég gera femínisma og öll hans andlit af umfjöllunarefni mínu í einhverri mynd og draga fram, skýra ritstjórnarstefnu Bleikt, leiða lesendur í gegnum það ferðalag sem við höfum þegar lagt að baki og útskýra fyrir þeim, sem enn ekki skilja, hvað liggur að baki þeim umfjöllunum sem þegar hafa birst og á hvaða hátt þær fjalla um stöðu kvenna á Íslandi í dag.

Við, sem myndum ritstjórn Bleikt, höfum það hlutverk að standa vörð um réttindi kvenna. Við erum ekki frístundafemínistar. Við berjumst fyrir réttindum og viðurkenningu allra kvenna, óháð stétt og stöðu, ljáum minnihlutahópum röddu og erum óhræddar við að tala máli þeirra. Þessi er ritstjórnarstefna Bleikt og hefur verið frá fyrsta degi.

Bleikt er afþreyingarmiðill með femínísku ívafi, kvenlegu sniði sem ætlað er að framkalla bros á miðjum degi og ljá minnihlutahópum öfluga rödd sem mælir fyrir hönd þeirra kvenna sem eiga undir högg að sækja, án beiskju og ofsa. Konurnar sem mæla á Bleikt hafa kærleika að leiðarljósi og tala aldrei niður til annarra kvenna.

Konurnar að baki Bleikt eru femínistar í fullu starfi.

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]

Ritstjórn
22.5.2012

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla

heillakedja forsida

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um eina milljón króna í tilefni þess að fyrirtækið var apríl-hlekkur keðjunnar. Starfsfólk VÍS lagði söfnuninni einnig lið með eigin heillakeðju og safnaði 275 þúsund krónum í sínum ranni. Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS segir þátttöku VÍS í Heillakeðjunni hlekk í samfélagslegri [...]

Aðsendar greinar
22.5.2012

Alma Rut: Útigangsmenn eru líka fólk

loftur forsida

Það var fimmtudagur og ég var á leið til vinnu í miðbæ Reykjavíkur. Ég lagði bílnum hjá gamla Landakotsspítalanum og gekk niður brekkuna sem liggur að Alþingishúsinu. Í fjarlægð sá ég nokkra menn sitja á bekk. Ég gekk framhjá þeim þegar hávaxinn skeggjaður maður lítur til mín, heilsar og brosir.  Augu hans voru sérstök , [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Vannst þú í Facebook-bingóinu?

bingo st

FYI: Þetta er kallað vinningur í Facebook-bingóinu!  

Ritstjórn
22.5.2012

Nýjasta stjarnan í Þýskalandi: Anuri

anuri

Er maður sætastur eða hvað? F’ólk flykkist nú í dýragarðinn í Wuppertal í Þýskalandi til að berja augum ísbjarnarhúninn Anuri. Enda afskaplega fallegur!  

Ritstjórn
22.5.2012

Mér var sagt ég gæti orðið hvað sem er…

hvad sem er lil

…svo hvað gerðu þeir? Fyndnustu myndir sem þú munt sjá í dag!   Heimild: Reddit

Ritstjórn
22.5.2012

Það er svo gott að sofa!

sofa lil

Hver kannast ekki við þetta…?  

Ágústa Arna
22.5.2012

Að morgni leikdags (já, ég er júró-nörd!)

agusta arna

Árið 1986 stigu þau Eiríkur Hauksson, Helga Möller og Pálmi Gunnarsson í fyrsta sinn á svið fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (fyrirbæri sem hér eftir verður bara kallað Júróvision) í fyrsta sinn. Það væri lygi að segja að væntingarnar hafi verið engar þegar Icy hópurinn steig á svið enda var landinn með það [...]

Nafnlaust
22.5.2012

Játning: Mælikvarði á sanna vini

vinir

Hver er mælikvarðinn á sanna vini ? Á hverjum einasta degi heyrir maður eitthvað nýtt sem á að segja manni út á hvað sannur vinur gengur. Þeir eru til staðar fyrir þig þegar þú þarfnast þess mest. Það er grunnlínan. En hver og einn er mismunandi, svo hvernig maður mælir sanna vini hlýtur barasta að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Grínið varð dauðans alvara: Settu barnið í þvottavél sem fór í gang

tvottavel barn forsida

Foreldrarnir sem sjást á myndbandinu hugsuðu ekki út í afleiðingar þess að setja barnið í þvottavél í þvottahúsi. Faðir barnsins setur það inn en gætir ekki að því að þvottavélin læsist sjálfkrafa og fer hún í gang með barnið inn í. Magnþrungnar sekúndur líða eins og sjá má. Vert er að taka það fram að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Hin 12 ára Ásta Petrea syngur Halelujah: Myndband

haleluja

Ótrúlega góð og einungis 12 ára gömul! Ásta Petrea syngur hér þetta fallega lag, Halelujah