Fólk í dag.. er alltof viðkvæmt og á svo alltof erfitt með að halda sig í einhverju! Eins og samböndum til dæmis..
Ekki að ég ætli að fara að dæma alla karlmenn eða stráklinga sem við eigum hérna á Íslandi…og ég er heldur ekki að segja að allt svona sé þeim að kenna eeeen…
HVAR ERU ALLIR ÞESSI FRÁBÆRU ÍSLENSKU KARLMENN SEM AÐ ÍSLENSKAR KONUR HAFA MONTAÐ SIG AF Í MÖRG HUNDRUÐ ÁR?!
Þykir afar leitt að segja þetta en ég held að alvöru karlmenn séu að verða útdauðir…
Þeir eru kannski örfáir eftir…í felum af því að allar einhleypar konur vilja setjast á þá eins og flugur á skítaskán…afsakið orðbragðið en jöp…gat bara ekki fundið betri líkingu…
Sagan segir að allar konur falli fyrir manni sem er eins og pabbi þeirra.
(Sigmund Freud sagði nú líka að allir karlmenn vildu sofa hjá mömmu sinni!)
Pabbi minn hafði þó mikilvægan eiginleika alvöru karlmanns! Hann byrjaði með mömmu minni og þau voru saman þar til að dauðinn aðskyldi þau…alveg eins og þau höfðu lofað hvort öðru… Þetta getur alvöru karlmaður!
Fólk í dag er of viðkvæmt og alltof fljótt tilbúið að gefast upp.
Fólk í dag er líka alltof mikið að flýta sér í sambönd! (Já – ég hef gert það sjálf trúið mér…aaaalltof oft)
Hvað er líka málið með það að ef einhver er að reyna við manneskju…þá eru svona 90% líkur á því að það sé ekki ein manneskja í spilinu…heldur er viðkomandi að reyna við svona 5 og svo verða 4 sárar af því að allt í einu er þessi einhver kominn í samband…
Fólk spilar alltof mikið með hvort annað í dag…Það er alveg ótrúlegt.
Ég er kannski bara svona gamaldags.. En þegar að ég verð komin með kall þá vil ég að það sé maður sem getur verið með mér og mínum göllum (sem eru nokkrir en svo litlir að þú tekur ekkert eftir þeim, (haha!)) gefst ekki upp eftir eitt rifrildi, reynir ekki að breyta mér því að hann verður bara að taka því að ég er eins og ég er og hvernig á ég að vera eitthvað annað?
VIL BARA BENDA YKKUR Á ÞAÐ AÐ ÉG ER EKKI ÞESSI RAUÐSOKKA SEM AÐ FINNST KARLMENN VERA EINTÓMIR AUMINGJAR!
KONUR GÆTU EKKI LIFAÐ ÁN KARLMANNA… EN ÞEIR VERÐA LÍKA AÐ ÁTTA SIG Á ÞVÍ AÐ ÞEIR GETA EKKI LIFAÐ ÁN KVENNA HEEELDUR! SO…STEP UP YOUR GAME .. OR YOU’LL LOSE!




















