Hocking er ekki enn orðin þrítug en er nú þegar orðin milljónamæringur á að gefa út sínar eigin bækur á rafrænu formi. Hún hefur selt um 1,5 milljónir bóka og breytt útgáfuheiminum svo um munar.
Sagnfræðingar framtíðarinnar eiga eftir að minnast á Amöndu Hocking þegar minnst er á byrjun rafbókanna en Amanda skrifar skáldsögur um yfirnáttúruleg málefni.
Amanda var mikill aðdáandi prúðuleikaranna sem Jim Henson skapaði. Hún bjó í Austin, Minnesota og varð mjög leið þegar hún frétti að ráðstefna yrði haldin um Henson í Chicago. Hún sá ekki fram á að geta komist vegna fjárskorts. Þá allt í einu fékk hún þá hugdettu að taka eitt af handritunum sínum sem fjölmargir útgefendur höfðu neitað og setja á Kindle-markaðinn.

Amanda hugsaði sem svo að sennilega myndu vinir hennar og fjölskylda kaupa nokkrar bækur af henni. Hana vantaði einungis um 300 dollara fyrir ferðinni og hún hafði sex mánuði til að safna. Sex mánuðum seinna eða í október 2010 hafði hún grætt 20.000 dali og selt yfir 150.000 eintök af bókunum hennar! Í dag, 20 mánuðum seinna hafa 1,5 milljón bóka hennar selst og Amanda hefur grætt um 2,5 milljónir dala. Og hún gerði það allt upp á sitt einsdæmi – enginn útgefandi eða milliliður.
Eftir langa þrautagöngu hitti hún loks á réttu leiðina. Í dag er hún mjög eftirsótt af bókaútgefendum um allan heim. Sem er í raun þversögn: Rithöfundur sem er fyrirmynd allra sem vilja gefa út bækur sjálfir er afar eftirsóttur af hefðbundnum bókaútgefendum. Amanda er fullmeðvituð um þetta en segir: „Margir segja að bókaútgáfa sé dauð. Það er ekki rétt og hefur aldrei verið. Þeir vilja núna nota mig í að sýna að það sé ekki rétt!“




















