Stjörnuparið Ásdís Rán og Garðar Gunnlaugsson tilkynntu um skilnað sinn á Facebook fyrir skömmu. Biður Garðar fólk um að „sýna aðgát í nærveru sálar“ í umræðu um skilnaðinn.
Ásdís er í Búlgaríu en Garðar er staddur hér á landi. Saman eiga þau tvö börn. Garðar vildi ekki tjá sig um skilnaðinn en Ásdís Rán segir að um örlagaríkan dag sé að ræða í „ævintýralandi Ísdrottningarinnar.
Einnig segir hún :
Við kveðjum okkar ástkæra samband síðustu 9 ár með umhyggju og virðingu.
Hjónabandið okkar hefur verið ævintýraríkt, gott og farsælt þennan tíma en örlögin skilið okkur smá saman af og tími kominn til að byrja nýtt líf.
Við þökkum fyrir stuðning á þessum erfiðu tímum og byðjum fólk um að sýna þessu virðingu þar sem mörg lítil hjörtu eiga í stað.




















