Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda skartgripa sem eru í hennar vörslu. Einnig er leitað eigenda snyrtivara og tösku, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Nánari upplýsingar eru veittar á lögreglustöðinni á Krókhálsi 5a í Reykjavík í síma 444-1190(á skrifstofutíma) en einnig má hafa sambandá netfangið abending@lrh.is
Óskað verður eftir staðfestingu á eignarhaldi.





















