Baltasar Kormákur kom beint frá Los Angeles og afhenti 15 ára kvikmyndagerðarmönnum verðlaun fyrir bestu stuttmyndina. Einnig sat hann fyrir svörum og ræddi um reynslu sína af Hollywood og næstu stórverkefni.
Þá fór hann einnig yfir ákveðin atriði er snertir leikara og leikstjórn og hvatti unga kvikmyndagerðarmenn til að skjóta eins mikið og þeir mögulega gætu til að æfa sig og að ekki leggja of mikla pressu á sig. Baltasar sagði að honum hefði alltaf langað til að gera stuttmynd og að því sögðu var honum afhent sigurhandritið frá Ljósvakaljóðum í ár. Hátíðin fór framar öllum væntingum og var hún gríðarlega vel sótt í Bíó Paradís síðastliðinn laugardag.
Veitt voru verðlaun fyrir besta frumsamda og óframleidda stuttmyndahandritið og það leiklesið fyrir áhorfendur. Alls bárust um 40 handrit í keppnina en handritið Kæra dagbók eftir Odd Elíasson bar sigur úr býtum. Um leiklestur sá Albert Halldórsson sem nýverið komst inn í leiklistarskóla Listaháskólans.
Sýndar voru 10 stuttmyndir á Ljósvakaljóðum í ár en alls bárust keppninni yfir 30 stuttmyndir. Keppt var í tveimur aldursflokkum, 15-20 ára og 21-25 ára.
Besta mynd í yngri flokki var Kalli Klappsen eftir Ágúst Elí Ásgeirsson & Jakob Van Oosterhout en þeir voru jafnframt yngstu þátttakendur í hátíðinni í ár. Báðir eru þeir fæddir 1997. Myndin er þögul í anda Charlie Chaplin og The Artist sem sjá má í bíóhúsum þessa dagana.
Besta mynd í eldri flokki var Blæbrigði eftir Anni Ólafsdóttur og er byggð á smásögu eftir Guðrún Evu Mínervudóttur. Dómnefnd stuttmynda skipuðu Reynir Lyngdal, Harpa Þórsdóttir, Hilmar Guðjónsson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Aðstandendur Ljósvakaljóða vilja þakka öllum þeim sem sendu inn stuttmynd eða handrit, sem og þeim sem mættu niður í BíóParadís í dag.Myndir tók: Marta ‘niebo’ Niebieszczanska




















