Landsátakið Bindin fram í febrúar er átak til þess að hvetja til bindisnotkunar og almennar snyrtimennsku meðal íslenskra karla, kvenna, unglinga og barna í febrúarmánuði. Notkun hálsbinda hefur farið sífellt minnkandi undanfarin ár og áratugi og því er blásið til átaks til þess að minna á kosti þeirra og hagnýtni.
Slagorðið „Bindin fram í febrúar“ á að hvetja alla til þess að nota bindi dagsdaglega í einn mánuð.Markmið átaksins er að auka fjölbreytta bindanotkun á Íslandi í leik og starfi og að vekja athygli á því að bindi er hægt að nota bæði hversdagslega og við hátíðleg tækifæri óháð aldri og starfi. Átakið á að verða skemmtileg upplyfting í febrúarmánuði og tækifæri fyrir einstaklinga og hópa til þess að breyta til í klæðaburði tímabundið eða varanlega.
Átakið er eingöngu til gamans gert og ekki í hagnaðarskyni.Þungamiðja átaksins verður heimasíða átaksins á Facebook þar sem hægt verður að fylgjast með framvindu átaksins, taka þátt í umræðu um bindi, skoða myndir af áhugaverðum bindum, læra bindishnútagerð, læra um sögu binda, taka þátt í umræðu um bindi og senda inn sínar eigin bindamyndir.
Hálsbindi henta bæði karl- og kvenmönnum við allar aðstæður, hvort sem er í skóla, vinnu, félags- eða einkalífi. Þau eru til af öllum stærðum og gerðum, litum og munstrum og hægt að nota á marga mismunandi vegu. Hálsbindi eru góð leið til þess að sýna smekklegt útlit, tjá tilfinningar, lífsskoðanir, áhugamál, starfsvettvang, kynferði og framtíðarþrár. Hálsbindi má nota hvenær og hvar sem er sem og hvernig sem er.Hugmyndafræði átaksins byggir á því að hver einstaklingur hefur ólíkan persónuleika og væntingar til eigin klæðaburðar og annarra.
Með því að nýta sér ólíkar litasamsetningar, stærðir, gerðir, áferðir og útlit binda geta einstaklingar verið snyrtilegir í klæðaburði en um leið dregið fram sinn persónuleika. Bindi geta því bæði verið hversdagslegur, hátíðlegur og persónulegur klæðnaður fyrir einstaklinga af báðum kynjum.Kosið var að fara í átakið í febrúar meðal annars vegna þess að febrúar er þekktur sem blóts- og árshátíðarmánuður sem á vel við átakið.




















