Eins og dyggir lesendur Bleikt hafa fundið undanfarna daga, höfum við glímt við margvísleg tæknileg vandamál undanfarna daga og fjölmargir lesendur hafa átt í erfiðleikum með að komast inn á vefinn.
Kerfið utan um Bleikt er löngu sprungið vegna mikils álags og gífurlegrar aðsóknar og var svo komið að tölvan okkar gat bara ekki meira…
Unnið er að viðgerð og nýrri uppsetningu á vefnum og verður því verki vonandi lokið á næstu dögum. Þangað til má áfram búast við einhverjum tæknilegum vandkvæðum og viljum við biðjast velvirðingar á því.
Við hlökkum til að sýna ykkur nýjan og tæknilega fullkominn vef innan skamms!




















