Í þessum þætti prófar Bleiki reynsluaksturinn Kia Sportage. Sportjeppa sem búinn er ýmiss konar búnaði sem verður að segja að geri þennan bíl mjög tæknilegan. Þó er tæknin það vel úr garði gerð að auðvelt er að læra á búnaðinn.
Kia sportjeppinn er lipur og stór. Ekki stór á þann hátt að manni líði eins og maður sé að koma skipi í höfn inni á bílaplani, heldur á ég við að þetta er bíll með mikið innanrými. Hann tekur sama pláss og venjulegur bíll en hann er þannig gerður að það virðist endalaust pláss innan í honum.
Einhver hafði á orði að bíllinn sé „speisaður“ í útliti. Það get ég tekið undir: Hönnunin er skemmtileg og bíllinn hefur fengið fína andlitslyftingu.
Rúmgóður fjölskyldubíll
Sagt er að bíllinn uppfylli öll skilyrði jeppa. Þó fannst blaðamanni það ekki eiga við hvað eitt varðar. Bíllinn er vissulega fjórhjóladrifinn og hægt er að læsa drifinu og svo framvegis. Hins vegar er heldur lágt undir hann svo sennilega er best að fara ekki í miklar torfærur þó svo að bíllinn kunni að drífa víðast hvar.
Ekki reyndi á upplifun barnsins í þessum bíl þar sem barnið er í „fríi frá mömmu sinni.“ Þó er nokkuð ljóst að þetta er hinn prýðilegasti fjölskyldubíll. Hann er rúmgóður og búinn öllum helstu þægindum . Ég trúi ekki öðru en að hægt sé að fullyrða að vel fari um börn í bílnum, þó svo ég hafi ekki haft ungan farþega í þessum reynsluakstri.
Bíllinn sem prófaður var er sjálfskiptur með tveggja lítra vél. Navigation system er aukabúnaður í þessum bíl og kostar hann því aukalega. Annars er verðið á bílnum 6.190.000.
Samantekt
Askja býður upp á 7 ára ábyrgð á þessum bíl (eða upp að 150.000 km). Bíllinn hefur verið afar vinsæll sem fjölskyldubíll og það er vel skiljanlegt þar sem hann uppfyllir þær kröfur sem hinn almenni kaupandi gerir til fjölskyldubíls. Rúmgóður, gott aðgengi, snar í snúningum, eyðir litlu (um 6.9 ltr á hundraðið í bl. akstri) og mengar umhverfið í meðallagi (179g af CO2 per km).
*Af tæknilegum ástæðum (tölva blaðamanns er í ólagi) fylgir stigatafla ekki með að þessu sinni. Henni verður bætt við um leið og hægt er!




















