Ford Focus er mjög fallegur bíll en það er betra að vera barnlaus á þessum fallega bíl. Blaðamaður og bílarýnir Bleikt.is komst að þessu í síðasta reynsluakstri.
Þriðja kynslóð Ford Focus hefur litið dagsins ljós. Útlitið er fallegt og mjög svo í takt við tímann. Bíllinn er sniðinn fullkomlega utan um ökumann. Allt er innan seilingar fyrir ökumann. Hann getur meira að segja gefið bílnum raddskipanir (varðandi lagalista og símtöl). Hins vegar fer ekki eins vel um farþega aftur í. Einkum og sér í lagi farþega sem sitja í barnabílstól.
Skottið er stórt en farþegarýmið töluvert minna ef horft er á það hlutfallslega. Bílstjóranum líður eins og konungi í hásæti. Svo vel fer um mann að ekkert annað hvarflar að manni en maður stjórni öllu heila batteríinu!
Stýrið er stórkostlegt – enda lykillinn að því hvernig maður tollir á veginum. Gírskiptingin er eins og Ikea-hilla: Allt passar dásamlega vel á sinn stað!
Það er hægt að fá skemmtilegan aukabúnað í þennan bíl. Aukabúnað sem kostar 90.000 krónur og í þeim aurum fær maður bíl sem „bakkar sjálfur í stæði“.Inni í því verði felst myndavél bæði framan og aftan á bílnum svo hugsanlega er hægt að segja skilið við klaufamistökin með þeim aukabúnaði.

Hins vegar vantar töluvert upp á aflnýtinguna í þessum bíl og eyðslan er ekki nægilega vel í samræmi við það hve kraftlítill hann er.
En flottur er hann! Það er engin spurning!




















