Í þetta skiptið öðlaðist Bleikur reynsluakstur innsýn inn í nýja vídd. Rafmagnsbíllinn Chevrolet Equinox var prófaður og kom hann virkilega á óvart! Rekstrarkostnaður er mjög lítll og hann mengar að sjálfsögðu ekki.
Við erum rík
Á Íslandi eigum við hreinan og ódýran orkugjafa. Orkugjafa sem við mættum svo sannarlega nýta betur til samgangna. Hér er ég að tala um raforkuna. Í stað þess að flytja orkugjafa til landsins með reykspúandi skipum má nefnilega nýta betur þessa innlendu orku sem raforkan er.
Rafmagnsbílar geta verið kraftmiklir og töff
Það sem kom mér verulega á óvart við Chevy Equinox var hversu öflugur hann er auk þess sem hann er verulega töff hvað hönnun og öll þægindi varðar. Í huga margra eru rafmagnsbílar einhver undarleg fyrirbæri á þremur hjólum sem ekki má nota í íslenskri veðráttu. Ég get sagt þetta því það eru ekki mörg ár síðan ég hafði þessa mynd í kollinum: Ljótur bíll sem nánast veltur í beygjum, kraftlaus með öllu og bilar örugglega í hverjum mánuði.
Þetta er víðs fjarri raunveruleikanum eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. Rafmagnsbílar eru ekki lengur á frumstigi: Þeir eru orðnir alveg eins og venjulegir bílar í hönnun, jafnvel kraftmeiri en venjulegir bílar og viðhaldið er lítið sem ekkert.
Viðhald í lágmarki
Að halda venjulegum bíl við er alltaf fjölþætt því í mótornum einum saman snúast um 1100 hlutir og margar legur, þéttingar og annað sem morknar og gefur sig á x löngum tíma. Í rafmagnsbíl eru einungis 4 hlutir að snúast svo tölfræðin er ekki sérlega flókin hvað viðhald varðar.
Viðhald á rafnagnsbílum er um þrjátíu prósent þess sem kostar að viðhalda venjulegum bensínbíl. Það munar heldur betur um slíkt! Auk þess sem gott er að þurfa ekki að hugsa of mikið um það sem er í húddinu ef maður hefur ekki áhuga á bílaviðgerðum. Í húddinu á þessum bíl er nefnilega ekki neitt (ókei, næstum ekkert).
Svona lítur hinn innri bíll út
1600 krónur á mánuði í „eldsneyti“
Gísli Gíslason áætlar að flytja fjölda rafmagnsbíla inn á næstunni. Síðastliðna þrjá mánuði hefur hann notað þennan rafmagnsbíl og á þeim tíma hefur það kostað hann um 4800 krónur í rafmagn á bílinn. Það samsvarar um 1600 krónum á mánuði en ef um bensínbíl hefði verið að ræða (miðað við sömu notkun) hefði kostnaður verið um 80.000 krónur.
Samantekt
Bíllinn er varasamur að því leytinu til að ekkert heyrist í honum og því er bráðnauðsynlegt að fylgjast vel með hraðamælinum! Hann gefur bensínbílnum sannarlega ekkert eftir hvað afl og þægindi snertir. Verð er enn ekki komið á bílinn þar sem hann er ekki kominn í almenna sölu hér á landi en markmiðið er að rafmagnsbíllinn kosti það sama og bensínbíllinn.
Ef viið höfum áhuga á hreinu lofti, grænni orkunýtingu og lægri viðhalds- og eldsneytiskostnaði þá er þetta sannarlega málið!




















