Það er nokkuð ljóst að það er aðeins flóknara að selja bílinn sinn en að selja kúlupenna. Það þarf nefnilega að vanda til verks. Þess vegna er bílasöluþátturinn tvískiptur. Hér er seinni hlutinn og nú verður ekki aftur snúið.
Bíllinn er orðinn rosalega flottur eftir lúxusmeðferðina sem hann fékk. Það má segja að bíllinn hafi farið í þriggja tíma spa eða dekur hjá Löðri. Margir hafa prófað bílinn sem stendur nú á bílasölunni hjá Indriða og það er undarlegt að segja það en…ég er strax farin að sakna hans. Það er auðvitað of seint að hætta við!
Hér er hlekkur á Bleika bílaklúbbinn fyrir þá sem hafa áhuga!




















