Fjórhjóladrifinn Suzuki Swift var viðfangsefni Bleiks reynsluaksturs að þessu sinni. Lykilorðin í dag eru: Menga minna, eyða minna og þessi bíll er í prýðilegu samræmi við þau lykilorð.
Hann er lítill og ágætlega lipur. Eyðir litlu og er nokkuð vænn fyrir umhverfið. Hér prófaði ég fjórhjóladrifna bílinn og það er alltaf dálítið sport að vera á fjórhjóladrifnum smábíl. Það er nánast eins og þversögn en samt þversögn sem er algjör snilld á Íslandi. Við viljum komast leiðar okkar – líka þegar það er snjór.
Verðlagið á Suzuki Swift er í meðallagi og engin hætta á að maður fari í kappakstur á þessum bíl. Hann er nefnilega ekki með urrandi villidýr í húddinu. En hann er samt með nóg til síns brúks, enda fjórhjóladrifinn.
Hann er lítill en samt rosalega stór að innan. Þá á ég við að plássið nýtist einstaklega vel, það er hátt til lofts og fullt af skemmtilegum hólfum til að geyma hluti.

Í heildina litið er notagildi bílsins margþætt og þá skorar einna hæst umrætt fjórhjóladrif og hversu hátt er undir bílinn. Samt sem áður eyðir hann afar litlu og það er mjög stór plús. Það er einstaklega vel gert ráð fyrir þremur krökkum aftur í bílnum og verður að segja að allar festingar fyrir barnastóla eru til fyrirmyndar.
Ljósmyndir: Malín Brand




















