Fyrrum eiginmaður Whitney Houston, rapparinn Bobby Brown er ekki velkominn í jarðarför fyrrverandi eiginkonu sinnar samkvæmt fjölskyldu Whitney. Þetta segir náinn fjölskylduvinur sem vill ekki láta nafns síns getið samkvæmt slúðurmiðlum.

Kirkjan The New Hope Baptist Church í Newark, New Jerseyþar sem Whitney verður jarðsungin á laugardaginn
Fjölskylda Whitney er ekki sögð hrifin af Bobby, enda var 14 ára hjónaband þeirra oft í fjölmiðlum og ekki af góðu. Margoft var sagt að Bobby hefði kynnt Whitney fyrir ólöglegum eiturlyfjum sem kunna að hafa dregið söngkonuna að lokum til dauða.

Líkbíll kemur með Whitney Houston til kirkjunnar
Bobby Brown gaf út sjálfsævisögu þar sem hann segir hana hafa laðast að báðum kynjum en dagana eftir dauðsfall hennar hafa sýnt hann syrgja hana opinberlega.




















