Í dag hélt Bókasafn Kópavogs fyrsta fyrirlesturinn af fjórum um hugtakið „Ábyrgð“. Fyrirlesarinn var heimspekingurinn Gunnar Hersveinn og var hann aðeins sá fyrsti í röð fjögra fyrirlesara en þeir sem næstir verða á dagskrá eru Ragna Árnadóttir, lögfræðingur, Jón Björnsson, sálfræðingur og rithöfundur og Jóna Hrönn Bolladóttir, prestur.
Með uppátæki þessu vill Bókasafnið vekja athygli á hugtakinu og vekja gesti sína til umhugsunar um hvað orðið feli í sér. Sérstaklega nú þegar engin vill taka ábyrgð á þeim hamförum sem þjóðfélagið hefur mátt þola.
Fyrirlestrarnir verða á hverjum fimmtudegi klukkan 17:15 og munu standa í u.þ.b. 30 mínútur. Að þeim loknum taka við fyrirspurnir og umræður þar sem gestir geta spurt fyrirlesarann.
Dagskrá Bókasafns Kópavogs í febrúar og mars:
16. febrúar:Gunnar Hersveinnheimspekingur
23. febrúar:Ragna Árnadóttirlögfræðingur
1. mars:Jón Björnssonsálfræðingur og rithöfundur
8. mars:Jóna Hrönn Bolladóttirprestur
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.Nánari upplýsingar er hægt að finna á vefsíðu bókasafnsins




















