Sjálfsagt er aldrei meira bakað en fyrir bolludaginn. Bakarí eru full af freistandi bollum með ótal fyllingum og kremum ofaná og á flestum heimilum má búast við því að ilmandi bökunarlyktin komi á móti gestum og gangandi.
Sunnudagurinn á undan bolludegi er vinsæll til heimboða – bolluboða og hlakka væntanlega margir til þeirra. En það hentar ef til vill ekki öllum að borða tómar rjómabollur og þá er gott að eiga eitthvað fleira. Eigi að bjóða gestum í bollukaffi er ágæt regla að baka ósætar bollur með hinu og þessu góðgæti til jafns við sætabrauðið.
Úr gerdeigi má búa til ódýrar og góðar bollur sem flestum henta. Mjölið getur verið við allra hæfi, glútenlaust fyrir þá sem ekki þola glúten, gróft, fínt og allt þar á milli.
Ágætt grunndeig er 900 gr. af mjöli sem getur verið bara hveiti eða blanda af hveiti, heilhveiti, hveitiklíði, haframjöli eða spelti. Með því notast um 6 dl. af volgum vökva, vatn er fínt og veldur engu ofnæmi. Best er að hita vatnið í líkamshita eða þar sem næst, mylja þar út í pressuger, ca. 20 gr (ein matsk. eða svo af lifandi geri, teskeið af þurrgeri) og bæta út í blönduna smá sykri, hunangi eða sírópi, til að gefa gerinu færi á að lifna.
Þegar komnar eru litlar eyjar af geri á yfirborð vökvans er hægt að hella mjölinu + 1-2 tsk. af salti og olíu eða smjöri, um það bil 1 dl. Þetta er hnoðað í vél eða höndum eftir atvikum (það kunna þetta allir eftir að hafa horft á dönsku þættina um brauðgerð á RÚV). Áferðin á að vera eins og á góðum leir. Út í deigið má bæta alls konar korni og kryddi eftir atvikum. Muna bara að það er afar erfitt að eyðileggja gerdeig!
Deigið látið hefast í um það bil klst. eða þar til það hefur tvöfaldast. Þá er því skipt í litlar bollur, stærð eftir smekk og látið bíða á plötu í um 30 mín. Það má bíða styttra eða lengur, tíminn er ekki heilagur. Svo eru bollurnar bakaðar í 10-14 mín. í 220C heitum ofni.
Eigi bollurnar að vera sætar er gott að setja út í deigið smá sykur og vanillu- eða kardimommudropa og pensla þær með eggi eða eggjamjólk áður en þær eru bakaðar.
Flóknara er það ekki.




















