Við þekkjum hann. Hann vill fá Martini-inn sinn hristan en ekki hrærðan. Þetta vitum við. Nú eru 50 ár liðin frá því að James Bond birtist í fyrsta skipti á hvíta tjaldinu!
Fyrsta Bond-myndin var Dr. No. Árið 1962 birtist Sean Connery bíógestum í fyrsta sinn sem James. James Bond. Síðan þá hefur heimsbyggðin elskað Bond og hann eldist býsna vel.
Það þykir mikill heiður að eiga Bond-lagið enda verða þau iðulega mjög vinsæl og jafnvel friðhelg í augum (og eyrum sumra). Sem dæmi má nefna lög á borð við Another Way to Die í flutningi Jack White og Alica Keys og Golden Eye í flutningi Tinu Turner.
Hér er upprunalega Bond lagið eftir John Barry:
Af þessu merkilega tilefni býður Sinfóníuhljómsveit Íslands til James Bond-veislu í janúar og þar verða öll þessi frábæru lög flutt.Sökum þess að uppselt varð á tvenna tónleika (19. og 20. janúar) var ákveðið að halda aukatónleika laugardaginn 21. janúar kl. 22.
Stórkostlegir flytjendur koma fram á tónleikunum og má þar einna helst nefna: Valgerði Guðnadóttur, Sigríði Thorlacius, Pál Óskar Hjálmtýsson, Eyþór Inga Gunnlaugsson, Inga Stefánsdóttir, Sigríður Beinteinsdóttur og Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur.
Stjórnandi er Carl Davis, en hann hefur stýrt Bond-tónleikum víða um heim við góðan orðstír, meðal annars á tónleikum í Royal Albert Hall.
HÉR má kaupa miða á þennan viðburð sem eflaust mun kalla fram gæsahúð hjá mörgum.




















