Japanska listakonan Yayoi Kusama fékk þá skemmtilegu hugmynd að leyfa börnum að sprella dálítið með liti í alhvítu herbergi. Útkoman er stórkostleg og ekki er annað hægt en að brosa!
Eins og felumynd!

Sýningin The Obliteration Room stendur nú yfir í Gallery of Modern Art í Brisbane. Krakkarnir fengu að leika sér að límmiðum í öllum regnbogans litum í listagalleríinu og geta gestir og listamennirnir sjálfir notið sýnangarinnar til 12. mars.




















