CONTRABAND var frumsýnd í Bandaríkjunum á föstudag og voru viðtökurnar vægast sagt góðar. Myndin halaði inn níu milljónir dala á föstudegi og er áætlað að hún taki milli 25 og 30 milljón dala alla helgina og verður hún þar með í 1 sæti á tekjulistanum í Bandaríkjunum.
Áhorfendur eru mjög ánægðir með myndina en hún fær -A í Cinemascore sem telst mjög gott. Til samanburðar má nefna að The Town fékk B í Cinemascore.
Baltasar Kormákur leikstýrir Contraband en í aðalhlutverkum í myndinni eru Mark Wahlberg, Kate Beckinsale, Giovanni Ribisi, Ben Foster ásamt þeim fer Ólafur Darri Ólafsson með stórt hlutverk í myndinni. Myndin er byggð á íslensku myndinni Reykjavík – Rotterdam eftir Arnald Indriðason og Óskar Jónasson.
Contraband verður frumsýnd á Íslandi þann 20. janúar.




















