Ótrúlega áhrifamikið myndband sem vekur athygli á því að krabbamein mun líklega hafa einhver áhrif á líf þitt með einhverjum hætti áður en yfir lýkur. Sara og Lola eru mæðgur og sést Lola hjálpa móður sinni að klippa hárið af fyrir geislameðferð.
Sara er með brjóstakrabbamein og átti myndbandið eingöngu að vera fyrir fjölskylduna. Þegar þau sáu hvaða áhrif myndbandið hafði ákváðu þau að nýta það til að vekja athygli á baráttunni. Styrktarsíðan þeirra erHÉR.




















