Þá er það undraefnið og hrukkubaninn Botox! Hér á eftir ætlar hann Dr.Otto að svara nokkrum spurningum um efnið vinsæla sem svo margir á íslandi eru byrjaðir að nýta sér
Hvað er Botox og hvað gerir það: Botox er efni sem ákveðnar gerðir af bakteríum búa til og hefur lamandi áhrif á vöðva. Á ensku er efnið „neurotoxin“ eða taugaeitur.
Aukaverkanir og sársauki: Við notum efnið aðeins í litlu magni og því er lítið um aukaverkanir ef rétt er að farið. Þó má nefna að það getur komið slappleiki í t.d. efra augnlok eða augabrúnir síga ef ekki er að gætt. Sársauki kemur ekki frá efninu, bara frá nálastungunum.
Hvað endist efnið leng?i: Áhrifa frá Botox vara frá 2-6 mán. Algengast er ca. 3-4 mán. og er persónubundið…
Á hvaða hrukkusvæði er hægt að nota Botox? Best er að nota Botox í reiðihrukkur milli augna og innanvert enni ásamt svokölluðum hláturshrukkun utan við augun. Ég er t.d. ekki hrifinn af að nota það kringum munn.
Hvað kostar treatmentið? Meðferð með Botox kostar 60.000, og þá miðað við að hámarki reiðihrukkur, enni innanvert og hláturhrukkur .
Nýtur efnið vinsæla á Íslandi eins og í Hollywood? Botox nýtur vaxandi vindælda, en varla eins og í Hollywood.
Á hvaða aldri hentar að fá sér Botox? Það er einstaklingsbundið, en hrukkur koma að sjálfsögðu með auknum aldri. Fyrir þroskaða einstaklinga ca. 25 og eldri gæti verið við hæfi að nýta sér Botox.
Mæliru með Botox? Fyrir einstaklinga með með raunhæfar væntingar og viðeigandi vandamál get ég mælt með notkun á Botox.
Ottó Guðjónsson lýtalæknir heimasíða




















