Ekki kalla mig hjónadjöful!
04.01.2012 Aðsendar greinar

Bleikt barst eftirfarandi grein í tölvupósti:

Nú get ég bara ekki orða bundist og ákvað þess vegna að skrifa hugrenningar mínar niður. Það eru pottþétt margir sem tengja við þetta og það er kominn tími til að einhver láti vaða.

Ég er 27 ára kona sem er mjög venjuleg. Ég er einhleyp og er svo sem engin nunna en samt engin „drusla“ eins og margar konur (já, eru ekki konur konum verstar?) hafa kallað mig. Það er ekki það versta, að vera kölluð „drusla“ heldur þykir mér enn verra að vera úthrópaður hjónadjöfull. Þegar ég segi úthrópaður, á ég við að inni á ónefndum spjallsíðum hefur verið talað um mann vegna ákveðinna mála og þar er sko ekki verið að spara stóru orðin. Onei!

Nú hef ég gefist upp á að svara þessum „kerlingum“ (já, konur eru konum verstar – og þar er ég sennilega engin undantekning) á spjallsvæðinu og skrifa grein í staðinn til að varpa ljósi á stöðu margra kvenna og karla.

Hér kemur þetta: Einhleyp kona (eins og ég) hittir mann úti á djamminu. Eitthvað gerist og þau ákveða að hittast aftur. Þá segir hann frá því að hann sé í skilnaðarferli og því sé alveg að ljúka. Kannast einhver við þetta?

Nú vil ég strax taka fram svo konur líti ekki út fyrir að vera sífellt fórnarlömb undirförulla karlmanna: Þetta getur líka verið á hinn veginn. Einhleypur maður hittir konu o.s.frv.

Nema hvað, það sem gerist næst (svo ég haldi mig við kvenkyns sögupersónuna) er að allt gengur vel en einhleypa konan er farin að hafa áhyggjur af því að þau (nýja „parið“) þurfi stöðugt að vera í feluleik. Bíddu, var gæinn ekki að skilja og allt að klárast þar?

Einn daginn fær einhleypa konan símtal (að sjálfsögðu úr leyninúmeri) eða sms frá bandbrjálaðri kerlingu sem kallar hana hjónadjöful! Segir að hún sé búin að eyðileggja dásamlegt hjónaband, allt hafi verið frábært þar til HJÓNADJÖFULLINN skaut upp kollinum. Einhleypa konan kemur af fjöllum og veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið: „Bíddu, hvaða kerla er þetta eiginlega?“

Jújú, þetta er náttúrulega „fyrrverandi“ sem var hreinlega ekkert neitt „fyrrverandi“ á þeim tímapunkti sem einhleypa konan hitti manninn. Hann sagði einfaldlega ekki satt.

Skilnaðarferli – minn rass! Það getur nefnilega verið ansi hreint langt ferli og byrjar bara í huganum.

Hjónadjöfullinn hefur þegar tekið sér bólfestu í lífi hjóna þar sem svona lagað gerist! Hjónadjöfullinn er ekki þriðji aðili sem veit ekkert hvað er í gangi hjá einhverjum hjónum. Hjónadjöfullinn hefur einfaldlega orðið til í hugum þessa fólks!

Takk fyrir að lesa og ég gæti trúað að margir tengi við þessa frásögn sem ég byggi á eigin reynslu.

________________________________

Ykkur er velkomið að senda okkur greinar og hugrenningar á bleikt@bleikt.is

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]

Ritstjórn
22.5.2012

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla

heillakedja forsida

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um eina milljón króna í tilefni þess að fyrirtækið var apríl-hlekkur keðjunnar. Starfsfólk VÍS lagði söfnuninni einnig lið með eigin heillakeðju og safnaði 275 þúsund krónum í sínum ranni. Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS segir þátttöku VÍS í Heillakeðjunni hlekk í samfélagslegri [...]

Aðsendar greinar
22.5.2012

Alma Rut: Útigangsmenn eru líka fólk

loftur forsida

Það var fimmtudagur og ég var á leið til vinnu í miðbæ Reykjavíkur. Ég lagði bílnum hjá gamla Landakotsspítalanum og gekk niður brekkuna sem liggur að Alþingishúsinu. Í fjarlægð sá ég nokkra menn sitja á bekk. Ég gekk framhjá þeim þegar hávaxinn skeggjaður maður lítur til mín, heilsar og brosir.  Augu hans voru sérstök , [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Vannst þú í Facebook-bingóinu?

bingo st

FYI: Þetta er kallað vinningur í Facebook-bingóinu!  

Ritstjórn
22.5.2012

Nýjasta stjarnan í Þýskalandi: Anuri

anuri

Er maður sætastur eða hvað? F’ólk flykkist nú í dýragarðinn í Wuppertal í Þýskalandi til að berja augum ísbjarnarhúninn Anuri. Enda afskaplega fallegur!  

Ritstjórn
22.5.2012

Mér var sagt ég gæti orðið hvað sem er…

hvad sem er lil

…svo hvað gerðu þeir? Fyndnustu myndir sem þú munt sjá í dag!   Heimild: Reddit

Ritstjórn
22.5.2012

Það er svo gott að sofa!

sofa lil

Hver kannast ekki við þetta…?  

Ágústa Arna
22.5.2012

Að morgni leikdags (já, ég er júró-nörd!)

agusta arna

Árið 1986 stigu þau Eiríkur Hauksson, Helga Möller og Pálmi Gunnarsson í fyrsta sinn á svið fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (fyrirbæri sem hér eftir verður bara kallað Júróvision) í fyrsta sinn. Það væri lygi að segja að væntingarnar hafi verið engar þegar Icy hópurinn steig á svið enda var landinn með það [...]

Nafnlaust
22.5.2012

Játning: Mælikvarði á sanna vini

vinir

Hver er mælikvarðinn á sanna vini ? Á hverjum einasta degi heyrir maður eitthvað nýtt sem á að segja manni út á hvað sannur vinur gengur. Þeir eru til staðar fyrir þig þegar þú þarfnast þess mest. Það er grunnlínan. En hver og einn er mismunandi, svo hvernig maður mælir sanna vini hlýtur barasta að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Grínið varð dauðans alvara: Settu barnið í þvottavél sem fór í gang

tvottavel barn forsida

Foreldrarnir sem sjást á myndbandinu hugsuðu ekki út í afleiðingar þess að setja barnið í þvottavél í þvottahúsi. Faðir barnsins setur það inn en gætir ekki að því að þvottavélin læsist sjálfkrafa og fer hún í gang með barnið inn í. Magnþrungnar sekúndur líða eins og sjá má. Vert er að taka það fram að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Hin 12 ára Ásta Petrea syngur Halelujah: Myndband

haleluja

Ótrúlega góð og einungis 12 ára gömul! Ásta Petrea syngur hér þetta fallega lag, Halelujah