Elsku 15 ára ég
29.01.2012 Aðsendar greinar

Mig hefur lengi langað til þess að skrifa þér bréf. Ég vona að þetta verðir til þess að aðrar læri af þínum mistökum. Ég vona að þetta verði til þess að ungar stelpur hugsi sig um áður en þær velja sína braut í lífinu.

Ég fæ illt í hjartað þegar að ég sé 12-16 ára stelpur skella glennulegum myndum af sér inn á síðurnar sínar í leit að viðurkenningum og hrósum. Þær fatta það ekki ennþá að þetta er bæði rangi staðurinn og ranga aðferðin. Þetta er einnig síðasta athyglin sem þær ættu að sækjast eftir. Þær eiga betur skilið og eiga að bera meiri virðingu fyrir sjálfri sér. Elsku stelpur, þetta er ekki það skiptir máli í lífinu.

Ég skoða mynd af gullfallegri stelpu. Hún á framtíðina fyrir sér og getur gert allt sem að henni langar. En ég veit að þér leið alls ekki þannig á þessu tímabili. Þú ættir að sjá þig með þeim augum sem að ég sé þig í dag.

Þú ert ótrúlega hæfileikarík og mikill listamaður í þér. Þú átt bara eftir að komast að því. Það mun því miður taka þig langann tíma því þú átt eftir að villast á veginum.

Þú hafðir ekki hugrekki til þess að fylgja hjarta þínu né sjálfstraust til þess að trúa á sjálfa þig. Þú eltir aðra og lést ekki í ljós þínar raunverulegu skoðanir á hlutunum. Þú stóðst ekki með sjálfri þér. Ég hefði staðið með þér. Enda mjög mikið í þig varið!

Ég man þegar að það mikilvægasta í lífinu voru strákar, að eiga flott föt og líta vel út. Ég vildi óska þess að þú hefðir haft betri fyrirmynd sem tók þig að sér á þessum árum. Ég hef þurft að taka mikið til eftir þig og það hefur tekið langan tíma, mörg viðtöl, mörg tár og mörg ár.

Ég græt með þér þegar að ég hugsa til þess hvernig þú misstir meydóminn. Þú grést allan tímann því þetta var ekki það sem þú vildir.

15 ára gömul í partýi með strák sem þú þekktir ekki. En þig langaði til þess að vera sérstök. Þig langaði til þess að fá viðurkenningu og vera eins og allir hinir. Þú þorðir ekki að segja nei við sæta strákinn, hvað myndi hann annars halda um þig? Ég man öll tárin þín þetta kvöld. Ég man hversu lítils virði þér fannst þér þú vera og hversu óhrein. Þetta kvöld átti eftir að brjóta þig niður meira en þú trúðir. Þetta kvöld hafði áhrif á allt líf þitt og hvernig þú leyst á þig lengi sem gallað eintak.

Ef ég gæti spólað til baka, þá hefði ég aldrei látið undan.

Ég hefði ræktað sjálfa mig og leyft hæfileikum mínum að blómstra. Ég hefði einbeitt mér að skólanum, eins leiðinlegur og hann var, en ég hefði gert það. Því að ég get allt sem ég vildi. Ég hefði látið alla þessa bjána vera sem áttu ekki eftir að þjóna betri tilgangi í lífi mínu en að brjóta hjartað mitt og skilja mig eftir tóma með ennþá minna sjálfstraust og minni sjálfsvirðingu.

Ég vildi óska þess að ég hefði heyrt þessa dæmisögu fyrr.” Að gefa stráki hjartað sitt er eins og að gefa bita af epli. Því fleiri bita sem þú gefur því minna verður eftir.”

Þangað til loksins þú hittir draumaprinsinn og þá er bara kjarninn eftir. Brotið hjarta sem treystir ekki, bítur og klórar frá sér allt sem gott er. Líkurnar á því að þú eigir eftir að enda með stóru ástinni þinni þegar þú ert 15 ára eru því miður mjög litlar. Ég vil þess vegna hvetja þig til þess að standa með sjálfri þér.

Vertu dugleg í skólanum, skrifaðu niður á blað hvernig ÞÚ viljir að framtíðin líti út. Skrifaðu niður hvernig þú viljir að draumaprinsinn komi fram við þig og hvað þú vilt að finnist í honum.

Árin líða og þú munt sjá það að eyða dýrmætum tíma þínum í strákavesen, að keppast við að eiga það flottasta og vera flottust er alls ekki góður grunnur. Það er grunnur byggður á sandi sem mun falla við minsta storminn. Ég hef náð þangað sem að ég hélt að væri ”toppurinn” og þegar þangað var komið var ég ekki hamingjusöm.

Ég átti allt en í raun átti ég ekkert.

Hefði ég vitað þá það sem ég veit í dag þá hefði ég sætt mig við venjuleg föt, ég hefði unnið minna svo að ég gæti einbeitt mér að skólanum því hann átti eftir að tryggja framtíð mína. Ég hefði byggt sjálfa mig upp á þann hátt svo að ég gæti alltaf staðið með mér sama hvað því það hefði gert allt miklu einfaldara.

Ég veit að það er ekki hægt að spóla til baka. Það er hægt að líma saman það sem brotið er en það tekur tíma og það er erfiðara en þú heldur. Ég lofa þér að þú átt eftirað hitta þann rétta og hann er yndislegur. Hann sér þig og dregur fram allar þínar gjafir. Hann gefur þér pláss til að vaxa og hann huggar þig þegar þú ert lítil. Þú átt eftir að hreyta mörgu í hann sem hann á ekki skilið. Því þú ert ennþá brotin af gömlum mistökum, bæði þínum og annara. En hann mun standa með þér og hann mun gefa þér það sem þú þarft.

Elsku 15 ára ég, hugsaðu þig núna um og veldu vel. Þær ákvarðanir sem þú tekur núna munu hafa áhrif á líf þitt. Meira en þú heldur. Hugsaðu vel um þig, bæði líkama og sál. Þú færð bara einn líkama. Berðu virðingu fyrir honum.

Berðu virðingu fyrir sjálfri þér því þá munu aðrir gera það og mundu það að þú ert frábær, þú ert elskuð!

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]

Ritstjórn
22.5.2012

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla

heillakedja forsida

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um eina milljón króna í tilefni þess að fyrirtækið var apríl-hlekkur keðjunnar. Starfsfólk VÍS lagði söfnuninni einnig lið með eigin heillakeðju og safnaði 275 þúsund krónum í sínum ranni. Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS segir þátttöku VÍS í Heillakeðjunni hlekk í samfélagslegri [...]

Aðsendar greinar
22.5.2012

Alma Rut: Útigangsmenn eru líka fólk

loftur forsida

Það var fimmtudagur og ég var á leið til vinnu í miðbæ Reykjavíkur. Ég lagði bílnum hjá gamla Landakotsspítalanum og gekk niður brekkuna sem liggur að Alþingishúsinu. Í fjarlægð sá ég nokkra menn sitja á bekk. Ég gekk framhjá þeim þegar hávaxinn skeggjaður maður lítur til mín, heilsar og brosir.  Augu hans voru sérstök , [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Vannst þú í Facebook-bingóinu?

bingo st

FYI: Þetta er kallað vinningur í Facebook-bingóinu!  

Ritstjórn
22.5.2012

Nýjasta stjarnan í Þýskalandi: Anuri

anuri

Er maður sætastur eða hvað? F’ólk flykkist nú í dýragarðinn í Wuppertal í Þýskalandi til að berja augum ísbjarnarhúninn Anuri. Enda afskaplega fallegur!  

Ritstjórn
22.5.2012

Mér var sagt ég gæti orðið hvað sem er…

hvad sem er lil

…svo hvað gerðu þeir? Fyndnustu myndir sem þú munt sjá í dag!   Heimild: Reddit

Ritstjórn
22.5.2012

Það er svo gott að sofa!

sofa lil

Hver kannast ekki við þetta…?  

Ágústa Arna
22.5.2012

Að morgni leikdags (já, ég er júró-nörd!)

agusta arna

Árið 1986 stigu þau Eiríkur Hauksson, Helga Möller og Pálmi Gunnarsson í fyrsta sinn á svið fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (fyrirbæri sem hér eftir verður bara kallað Júróvision) í fyrsta sinn. Það væri lygi að segja að væntingarnar hafi verið engar þegar Icy hópurinn steig á svið enda var landinn með það [...]

Nafnlaust
22.5.2012

Játning: Mælikvarði á sanna vini

vinir

Hver er mælikvarðinn á sanna vini ? Á hverjum einasta degi heyrir maður eitthvað nýtt sem á að segja manni út á hvað sannur vinur gengur. Þeir eru til staðar fyrir þig þegar þú þarfnast þess mest. Það er grunnlínan. En hver og einn er mismunandi, svo hvernig maður mælir sanna vini hlýtur barasta að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Grínið varð dauðans alvara: Settu barnið í þvottavél sem fór í gang

tvottavel barn forsida

Foreldrarnir sem sjást á myndbandinu hugsuðu ekki út í afleiðingar þess að setja barnið í þvottavél í þvottahúsi. Faðir barnsins setur það inn en gætir ekki að því að þvottavélin læsist sjálfkrafa og fer hún í gang með barnið inn í. Magnþrungnar sekúndur líða eins og sjá má. Vert er að taka það fram að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Hin 12 ára Ásta Petrea syngur Halelujah: Myndband

haleluja

Ótrúlega góð og einungis 12 ára gömul! Ásta Petrea syngur hér þetta fallega lag, Halelujah