Emmessís hefur markaðssett bleikan stelpuís og bláan strákaís. Ísinn hefur vakið harkaleg viðbrögð á netinu. „Ömurlegt,“ segir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. „Hættum framleiðslu og dreifingu ef þetta fer svona illa í fólk,“ segir markaðsstjóri Emmessíss.
Stelpuísinn er með jarðarberjabragði og í bleikum umbúðum. Strákaísinn er með vanillubragði og í bláum umbúðum eins og kemur fram hjá Guðnýju Þorsteinsdóttur setti mynd af ísnum á facebook-síðuna sína í gærkvöldi eftir að hún hafði farið út með fjölskyldunni að kaupa ís. Stelpuísinn og strákaísinn vakti strax hörð viðbrögð og hefur mótmælapóstinum ringt yfir Leif Grímsson, markaðsstjóra Emmessíss.
Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir að stelpuísinn og strákaísinn sé hluti af þeirri bylgju sem hefur verið í gangi að ýta undir staðalmyndir kynjanna. „Þetta bleika-bláa móment var ekki til fyrir 20 árum, þetta er nefnilega ekki gamalt fyrirbæri en það er sífellt verið að ýta undir þetta. Mér finnst þetta alveg ömurlegt en ég hugsa að það sé ekki hægt að segja að þetta sé brot á jafnréttislögum, þetta ýtir fyrst og fremst undir staðalmyndir kynjanna,“ segir hún og telur fróðlegt að sjá viðbrögð neytenda. „Það þarf að vekja athygli á því hvað fyrirtækið er að gera.“
Leifur Grímsson, markaðsstjóri Emmessíss, segir að ísinn veki miklu meiri athygli en fyrirtækið hafi reiknað með. „Þetta byrjaði bara sem einhvers konar húmor. Við ræddum mikið innanhúss hvort þetta myndi stuða einhverja en héldum að í dag þætti þetta fyrst og fremst fyndið. Ég hef séð á tölvupóstinum og facebook að þetta fær mjög hörð viðbrögð en það er ekki eins og við séum að byrja með þetta bleika og bláa, Latibær gengur til dæmis út á þetta,“ segir Leifur. „En ef þetta er eitthvað sem virkilega stuðar þá hættum við þessu bara. Við hættum framleiðslu og dreifingu ef þetta fer svona illa í fólk.“
Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, segir að börn séu viðkvæmur þjóðfélagshópur sem beri að vernda sérstaklega. Með svona markaðssetningu sé verið að ýta undir hefðbundnar kynjastereótýpur og það sé ekki í anda þeirrar stefnu sem unnið sé að í dag.




















