„Viðurkenndir djammdagar knattspyrnumanna á Íslandi eru ekki um helgar heldur á virkum dögum. Þegar liðið kemur saman til að fagna góðu gengi eða peppa upp móralinn fyrir komandi átök er nánast alltaf boðið upp á áfengi.“ Þetta esgir Óli Stefán Flóventsson knattspyrnumaður í greiná fotbolti.net.
„Ég heiti Óli Stefán og er alkahólisti,“ skrifar Óli Stefán í byrjun greinar sinnar og útlistar síðan hvernig hann leiddist út í það að drekka í gegnum fótboltann og þá sérstaklega í miðri viku því leikirnir eru um helgar.
„Eftir leiki í gegnum tíðina hefur yfirleitt verið hittingur annaðhvort heima hjá einhverjum félaganum eða á barnum þar sem farið var yfir leik dagsins , að sjálfsögðu með bjór í hönd. Oftar en ekki endaði þessi hittingur á því að berjast við timburmenn dauðans daginn eftir,“ segir hann í greininni.
Óli Stefán segist hafa lengi vitað að hann væri alkóhólisti þegar hann 34 ára gamall var á æfingu hjá Fjölni árið 2008 og Ásmundur Arnarsson þjálfari spurði hann hreint út um áfengisdrykkjuna. „Ég sagði honum bara alveg eins og var og var heldur ekkert að skafa af því. Það var akkúrat þarna á þeirri stundu, úti á miðjum fótboltavelli að ég áttaði mig á hvað væri að gerast hjá mér. Ég átti við verulegt vandamál að stríða,“ segir hann.
Óli Stefán var í fremstu röð, hefur spilað meira en 200 leiki í efstu deild og nokkra Evrópuleiki en skrifar með eftirsjá um að hann hefði getað náð lengra og meiri árangri í knattspyrnunni ef Bakkus hefði ekki náð yfirhöndinni. „Stóra spurningin sem ég berst við í dag er, hefði ég getað gert betur eða náð lengra? Ég hafði hæfileika en hvað eru hæfileikar ef þeir eru ekki fóðraðir rétt,“ spyr ann.
Í hverju liði eru leikmenn á sömuleið og Óli Stefán var áður en hann ákvað að taka til í lífi sínu og hætta að drekka árið 2009. Hann bendir á að íþróttahreyfingin sé á fullu við að útrýma munntóbaki „en erum við vakandi í áfengisforvörninni? Er það kannski viðurkennt vandamál sem við horfum bara í gegnum,? spyr hann.




















