Mörgum Íslendingnum þykir nóg um þegar þorramaturinn okkar Íslendinga er annars vegar enda ekki allir sem geta látið súrmatinn inn fyrir sínar varir. Þorramaturinn er ekki bara hangikjöt og harðfiskur heldur líka súrt slátur, bæði blóðmör og lifrarpylsa, og hrútspungar, sviðin svið að ekki sé minnst á bragðsterkan hákarl.
En kannski er þorramaturinn ekki jafn sérstakur og við höldum. Bleikt lagðist í rannsóknarvinnu og fann mat erlendis sem minnir á sumt í íslenska þorramatnum.
Bæði Írakar, Íranir og Marokkómenn eiga nokkurs konar svið eins og Íslendingar. Írakar borða rétt sem þeir kalla „bachu“ og er soðinn kindahaus. Marokkómenn svíða kindahausa, sérstaklega eftir heimaslátrun, á heitum kolum þangað til hausarnir eru orðnir svartir. Þeir skafa ullina og húðina af hausnum og taka innvolsið og elda sérstaklega. Tungan er gufusoðin með hausnum sem má hluta niður ef hægt er.
1 kindahaus, hlutaður niður og hreinsaður vel.
1,5 msk. salt
1,5 msk. cumin
Steinselja
1 laukur, skorinn smátt
Salt og cumin til að dýfa í
Náið upp suðu á miklu magni af saltvatni en gætið þess að hægt sé að gufusjóða hausinn í pottinum. Blandið saman salti og cumin í stórri skál og nuddið fast inn í kindahausinn. Setjið kjötið af hausnum í körfu eða það sem þið ætlið að gufusjóða í.
Einnig er hægt að setja lauk og steinselju í vatnið í pottinum og setja körfuna svo með hausnum í pottinn og gufusjóðið kjötið svo í þrjá og hálfan til fjóra tíma eða þar til kjötið er mjúkt og auðvelt er að ná því af beinunum.
Berið kindahausinn fram á stórum diski með lítinn disk af salti og cumin til að dýfa kjötinu í.
Blóðmör eða blóðpylsa
Blóðmörin þekkist í nágrannalöndum okkar sem nokkurs konar blóðpylsa og er nokkuð vinsæl víða í Evrópu. Blóðmörin er gerð úr dýrablóði, korni, rúsinum og kryddi, og er því svört á lit. Blóðpylsan er hefðbundin á írska morgunverðarborðinu á írskum pöbb eða veitingahúsi. Nokkrar sneiðar af blóðpylsunni er þá borin fram með sneiðum af nokkurs konar lifrarpylsu, skinku, eggjum og kartöflum og þykir heilsusamlegur morgunverður.




















