Finnst þér allir í kringum þig vera fífl?
Finnst þér þú aldrei gera mistök?
Hefur þú alltaf rétt fyrir þér?
Dæmir þú alla aðra í kringum þig?
Áttu erfitt með að mynda tilfinningalegt samband við fólk?
Ef svo er þá er kominn tími til að líta aðeins í spegilinn og hugsa. Hver þekkir ekki þessa týpu? Ég held að allir hafi einhvern tíma á lífsleiðinni kynnst svona manneskju.
Það þarf ekkert að vera að manneskjan sé slæm. Heldur virðast sumir bara lifa í og búa sér til sinn eigin draumaheim þar sem ekkert sem þeir gera getur verið rangt og farið úrskeiðis.
Ef þú ert alltaf að lenda í því að þér finnst fólk koma illa fram við þig eða að allir séu bara hreinlega ekki í lagi, nema þú auðvitað, þá er kannski spurning um að staldra aðeins við og líta í eigin barm. Getur það virkilega verið að svona rosalega margir séu bara ekki í lagi? Er ekki líklegra að það sé eitthvað sem þú ert að gera sem gerir það að verkum að hlutirnir eru svona?
Ef dæmin að ofan eiga við þig mæli ég með því að þú skellir þér í smá sjálfsskoðun og íhugir þann möguleika að kannski séu ekki allir aðrir svona gallaðir, kannski liggur vandamálið hjá þér.
Fólk sem er óöruggt með sjálft sig og hefur mikla minnimáttarkennd á það nefninlega til að dæma annað fólk mjög hart.
Ef maður lifir lífinu alltaf svona, getur aldrei viðurkennt mistök sín eða finnst allir aðrir bara bókstaflega vera fávitar þá er ég alveg viss um það að maður mun aldrei verða hamingjusamur og aldrei þróa gott tilfinningalegt samband við aðra manneskju.
Hver getur líka verið svona fullkominn?
Ég veit allavega að ég er það ekki, og langt frá því …




















