Vísindamenn í Ástralíu vilja meina að háir hælar séu hættulegir heilsunni. Vísindamennirnir gerði rannsókn á á tveimur hópum kvenna. Annar hópurinn var vanur að ganga á lágbotna skóm en hinn hafði gengið í allavega 5 sm háum hælum í meira en 40 klukkustundir á viku í að minnsta kosti tvö ár.
Konurnar voru látnar ganga á palli útbúnum sértilgerðum göngunemum sem sögðu til um göngulag þeirra. Voru konurnar látnar ganga á pallinum í háum hælum, í lágbotna skóm og loks berfættar. Niðurstöðurnar komu vísindamönnum ekki á óvart en konurnar sem voru vanar háum hælum gengu allt öðruvísi en kynsystur sínar. Hæla konurnar gengu hægar og tóku styttri skref á meðan þær sem kjósa þægindi lágbotna skónna gengu mun hraðar og í stærri skrefum.
Út frá þessum upplýsingum komust vísindamenn að því að háir hælar stytta sinar og vöðva í kálfanum en það útskýrir styttri skrefin og hægara göngulagið. Vísindamenn fundu einnig út að konur sem velja sér háhælaða skó eiga í meiri hættu á að togna og slasa sig vegna aukins álags á kálfann, sérstaklega ef þær fara í lágbotna skó eða skella sér út að skokka. Hættan á að fá króníska sára verki í hæl er einnig mun meiri hjá háhæluðu skvísunum.
Það liggur því í augum uppi að háir hælar ættu ekki heima á fótum kvenna á hverjum degi, en er áhættan þess virði?




















