„Fegurðin kemur að innan“: Viðtal við ritstjóra SELF
10.12.2011 annarosaparker

Evyan Metzner er tískuritstjóri tímaritsins SELF hjá Conde Nast. Hún hefur stíliserað fjölmargar myndatökur, unnið með heimsþekktum ljósmyndurum og leikkonum á borð við Jennifer Aniston og Gwyneth Paltrow. Bleikt fékk tækifæri til að spyrja Evyan nokkurra spurninga.

Á rúmum tuttugu ára starfsferli hefur Evyan Metzner komið víða við og kynnst alls konar fólki. Ljósmyndarar sækjast eftir að vinna með henni og má þar meðal annars nefna Bruce Weber, Patrick Demarchelier, Annie Leibovitz, Carter Smith, Reagan Cameron og Norman Jean Roy.

Hún hefur stíliserað myndatökur með Beyonce, Jennifer Aniston, Jennifer Hudson, Gwyneth Paltrow, Carrie Underwood, Kristen Bell, Taylor Swift og listinn er endalaus. Anna Rósa tók viðtalið í Los Angeles.

EvyanEvyan Metzner

Hvernig hefur tískuheimurinn breyst á þínum ferli – sérstaklega í dag þar sem hátískuheimurinn heldur áfram að stækka og styrkjast?

„Aðalbreytingin er sú að það er ekkert til lengur sem kallast „Evrópskt merki” – það er ekkert sem eingöngu fæst í París, eða bara í Mílanó. Nú er hægt að versla hátísku nánast hvar sem er í heiminum (í hvaða stórborg sem er). Það er ótrúlegt hvaða upplýsingar eru aðgengilegar öllum sem eiga tölvu. Síður eins og Style.com gera fólki hvar sem er í heiminum kleift að sjá hvað er að gerast í tískuheiminum. Upplýsingar sem áður voru eingöngu aðgengilegar fyrir tískuritstjóra.“

Hversu mikil áhrif hafa þessar leikkonur sem þú stíliserar fyrir tímarit á myndatökuna/stílinn – eins og t.d. Sarah Jessica Parker, mætir hún a settið með hugmyndir?

„Sumar gera þær það. Það fer eftir því hvort um er að ræða forsíðu eða tískusögu. Þetta snýst um samvinnu og að finna jafnvægi í því hvað þær vilja og hvað tímaritið vill. Að vinna með leikkonu eins og Sarah Jessica Parker sem elskar föt er alltaf spennandi. Hún er svo opin fyrir því að prófa nýja hönnuði og hún veit hvað hún vill – það gerir starfið auðveldara.“

Hvert sérðu hátískugeirann stefna?

„Ég held að hátískugeirinn sé á mjög góðum stað í dag – sem og með bjarta framtíð. Áhrif netsins, tískublogga og Twitter gera tískuna svo ofboðslega aðgengilega.“

Hverjir eru uppáhaldshönnuðir þínir?

„Dries Van Noten, Marni, Louis Vuitton, Marc by Marc Jacobs, Prada og Rebecca Taylor.“

Hvaða flíkur eru þínar „go to“ flíkur – hverju klæðist þú í vinnunni?

„Aðsniðnir blazer jakkar, gallabuxur, einfaldir háir hælar, eða mótorhjólastígvél og litrík handtaska. Þegar ég er mikið á fundum klæðist ég kjólum – ég elska Marni kjólana mína.“

Hversu erfitt er að komast inní tískugeirann – sem stílisti eða tískublaðamaður?

„Það er rosalega erfitt. Þetta er svakaleg vinna. Það eru margar fljótandi kannski-verðandi stjörnur í geiranum í dag, en það sem þarf til að endast í þessum geira er hörku vinna og sá eiginleiki að geta unnið með fólki af öllum gerðum.“

Hvað finnst þér um tískubloggara?

„Ég elska tískubloggara – sérstaklega þá sem eru með ákveðna rödd sem endurspeglar persónuleika þeirra og þora að vera með sinn eigin stíl.“

Þrír topp eiginleikar kvenna sem þarf til að koma sér vel áfram í dag?

„Að vera skýrmælt, diplómatísk, og hafa almenna skynsemi.“

Eru konur í of mikilli samkeppni í dag – þurfum við að brýna systrakennd okkar?

„Ég held að konur í dag hafi komið langt að – mun lengra en þar sem við vorum þegar ég byrjaði í þessum geira. Konur í dag eru með fjölskyldu og skilja hvor aðra og hvað þarf til að meika það í nútímasamfélagi.“

Hvað er fegurð?

„Að líða vel innra með sér. Fegurðin kemur að innan.“

Og þá er komið að aðal– og lokaspurningunni…

How do you like Iceland?

„Ég elska Ísland, hef komið þangað tvisvar og finnst Ísland vera eitt fallegasta land sem ég hef séð.“

Og svo ein bónus spurning…

Hvað finnst þér um íslenskar konur?

„Mér finnst íslenskar konur alveg rosalega fallegar – ég elska allt þetta ljósa hár…“

Ritstjórn
23.5.2012

Eir styrkir fíkniefnadeild LRH

eir

Lionsklúbburinn Eir hefur fært fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 400 þúsund krónur að gjöf. Peningunum verður varið til kaupa á tækjum og búnaði fyrir deildina. Lionsklúbburinn Eir hefur sýnt lögreglunni mikla velvild um árabil og hefur lengi styrkt baráttu hennar gegn fíkniefnum með mjög myndarlegum hætti. Á myndinni eru Lionskonurnar Hanna Gísladóttir, Ragna Lára Ragnarsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Guðríður Thorarensen, [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Brúðarlína UGG: Myndir

ugg forsida

Við erum ekki að búa þetta til: Nú getur þú gift þig í UGG skóm. Ný lína frá UGGs í Ástralíu auglýsir að nú verði brúðkaupið kósý…            

Ritstjórn
23.5.2012

Setti hún HVAÐ í kaffið hans?

kaffid

Hvað er það hryllilegasta sem hægt er að fá í kaffið sitt? Óánægð 24 ára gömul kona í Singapore, Jumiah að nafni, sló sennilega eitthvert met þegar hún varð ósátt við yfirmann sinn. Hún setti tíðablóð – já, tíðablóð – í kaffið hjá honum. Jumiah hafði unnið fyrir hann í heilt ár sem húshjálp og [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Byltingarkennd háreyðing: Epilsoft hanskinn

Epilsoft má nota á öll líkamshár og hentar öllum húðgerðum.

Alveg magnaður! Fólk í Evrópu þekkir Epilsoft hanskann vel en hann er nýjung hér á landi. Hanskinn sér um að fjarlægja öll líkamshár og einnig dauðar húðfrumur og gerir hann húðina silkimjúka.     Engin hætta er á klístruðu vaxi, kremum eða raksápu. Epilsoft hanskinn er til bæði fyrir karla og konur. Mjög auðvelt er [...]

Ritstjórn
23.5.2012

„Hoppa í polla! Hopp…“

hopp

Vissulega gaman hjá þessum þar til…  

Aðsendar greinar
23.5.2012

„Ég þrái bara að geta borgað reikningana mína“

reikn

Í fimm ár hef ég ekki getað farið til tannlæknis (búin að vera með tannpínu í tvö ár), ég get aldrei keypt mér föt en hér sit ég í sófanum heima hjá mér og sauma götin á buxunum mínum. Ég geri aldrei neitt með manninum mínum sem ég þrái svo heitt, ég hef ekki lengur [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Íslensk fyrirsæta í Financial Times: Myndir

edda l

Edda Óskars hjá Eskimo models fór í myndatöku í Afríku og birtist þátturinn í Financial Times. Flottar myndir!  

Ritstjórn
23.5.2012

Stjörnurnar og áhættuleikararnir þeirra

áhættuleikararforsida

Ótrúlegt, sumir áhættuleikaranna eru ekki einu sinni líkir stjörnunum en aðrir eru lifandi spegilmynd þeirra.                      

Ritstjórn
23.5.2012

10 ráð til að verða hamingjusamara foreldri

fam forsida

Það er ýmislegt á foreldra lagt. Stundum eigum við það til að gera of mikið úr hlutunum. Hér eru tíu atriði sem geta hjálpað okkur að verða hamingjusamara foreldri….sem þýðir líka að börnunum okkar mun líða betur!   Þú getur ekki haft stjórn á ÖLLU. Það er stundum í lagi að viðurkenna að þú getur [...]

Nafnlaust
23.5.2012

Játning: Taggalicius ást

jatning

Ég var í sambandi í fjögur ár og þar á undan var ég búin að deita mestu skíthæla landsins að mínu mati. Þeir notuðu mig og komu illa fram við mig en það var þegar ég var yngri. Ég hélt þetta myndi ekki koma fyrir aftur enda yfir 25 ára. Ég var í mjög traustu [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Sjóðheit prófílmynd?

se lil

Ekki kannski alveg eins og hún hafði hugsað sér hana….  

Ritstjórn
23.5.2012

Hver ætli ráði á þessu heimili?

raedur l

Þú þarft bara að líta einu sinni á myndina til að sjá það…!  

Ritstjórn
23.5.2012

Rúmfræði: Level 900

rumfr lil

Hvernig…? Bara – HVERNIG?  

Ritstjórn
23.5.2012

Mörgæsaungi vs maður

mörgæs

Hversu mikið krútt getur maður verið? Þessi litli mörgæsaungi var ekkert hræddur við að ráðast á manninn og setjast hreinlega á andlitið á honum.

Sigurveig
23.5.2012

Síðbúinn „mæðradagsbröns”

bröns

Snilldin ein frá matgæðingnum Sigurveigu Káradóttur!   Pönnuklessur: 200 gr spelt 25 gr hveitikím 25 gr hveitiklíð 2 tsk lyftiduft 50 gr hunang 200 gr eplamauk 2 egg 2 msk kókosolía – brædd á pönnu ( og svo meiri kókosolía til að steikja úr ) Þurrefnin sett saman í skál og restinni síðan blandað saman [...]