Femínismi vs. Framsóknarflokkurinn
06.02.2012 Ágústa Arna

Ég las um daginn viðtal við unga konu sem hefur verið áberandi í netheimum vegna hugsjóna sinna. Hún er semsagt feministi sem meðal annars hefur tjáð sig um nauðganir, klámvæðingu og vændi. Í viðtalinu kom fram að hún hafi fengið skilaboð þar sem viðkomandi hafi sagt að það þyrfti að berja hana duglega.

Það eina sem þessi ágæta kona gerði var að tjá þær skoðanir sem hún hafði á mönnum og málefnum. Á sama hátt og gert er á bloggsíðum og á síðum dagblaðana á degi hverjum. Sem betur fer eru svona hótanir ekki algengar en þegar kemur að því að ræða feminisma opinberlega er eins og sumir vilja reyna að þagga þær umræður og þær skoðanir niður. Svona haltukjaftiogvertusæt heilkenni eitthvað.

Þær hótanir sem þessi unga kona lýsti eru ekki eins dæmi. Fleiri konur sem tjáð sig hafa um feminískar skoðanir sínar á opinberum vettvangi hafa sagt sömu sögu. Þær hafa fengið hótanir um ofbeldi, meðal annars kynferðislegt ofbeldi. Og allt vegna þess að þær hafa ákveðnar skoðanir. Gott og vel.

Þó ég sé kannski ekki sammála öllu því sem kemur frá til dæmis Framsóknarflokknum, gefur það mér leyfi til þess að poppa upp á bloggsíðum Framsóknarmanna og hóta þeim líkamsmeiðingum? Bara af því að þeir eru að fylgja eftir sínum hugsjónum? Nei alls ekki. Á sama hátt og Framsóknarmenn hafa sínar skoðanir þá hef ég mínar.

Og á sama hátt og sumum finnst allt þetta tal um aukna klámvæðingu í samfélaginu vera bull þá er til fólk sem hefur áhyggjur af henni og vill vinna gegn henni. Þarna erum við komin með ólík sjónarmið. Þarna erum við komin með ákveðin umræðugrundvöll. Með og á móti. En þó ég myndi tjá mig um aukna klámvæðingu í samfélaginu þá er ólíðandi ef mér bærist hótun um ofbeldi eftir á.

Ég er kannski blágeygð en ég héllt að það væri gott fyrir umræðuna í samfélaginu ef mismunandi skoðanir fengju að heyrast. Bæði með og á móti. Og nei, það þurfa ekki allir að vera sammála. Ef mér finnst tómatar góðir þá er ekkert óeðlilegt ef ég myndi hitta mann í Bónus sem væri á annari skoðun.

Umræðan á að vera þannig að allir eiga að geta tjáð sig. Og tekist á um mismunandi sjónarmið. Vera óhrædd við að setja fram sína skoðun þó svo að hún sé kannski öðruvísi en skoðanir annara. Hún á samt sem áður rétt á sér. Ef sú skoðun er ný og á einhvern hátt ögrandi þá á ekki að mæta henni eins og hún sé eitthvað sem er vitlaust eða hreinlega bull. Allar skoðanir eiga að vera rétt háar. En þó svo að ég sé ekki sammála framsóknarmönnum þá ber ég virðingu fyrir þeirra skoðunum og þeirra hugsjónum.

Þegar kemur að umræðunni um feminisma og bara jafnréttismálum yfir höfuð, er eins og þær skoðanir sem settar eru fram á þeim vettvangi séu rangar. Umræðan um feminista til að mynda gengur út yfir öll mörk. Þetta eru ljótar og leiðinlegar konur sem eru kafloðnar og fá ekkert kynlíf heima hjá sér! Já er það?

Eru þá allir Framsóknarmenn með bólu á nefinu og nýkomnir úr fjósinu? Líklega ekki. Feministi er karl eða kona sem veit að jafnrétti hefur ekki verið náð og vill leggja sitt á vogarskálarnar til þess að ná fram jafnrétti. Innan feminismans eru margar skoðanir á sama hátt og það eru ólíkar skoðanir innan Framsóknarflokksins. Þó ég sé feministi þá þarf ég ekki að vera sammála hverri einustu yfirlýsingu sem kemur frá Feministafélaginu. Eða eru allir Sjálfstæðismenn sammála öllum tillögum sem samþykktar eru á landsfundi flokksins?

Það eru flottar konur sem eru í framvarðarsveit fyrir feminisma á Íslandi. Konur sem oft á tíðum hafa þurft að synda á móti straumnum. Þær hafa kannski þorað meðan aðrir þegja og komið fram með skoðanir sem ögrað hafa ríkjandi gildum samfélagsins. En þær eru bara að segja sínar skoðanir. Sem er hið besta mál. Þess vegna er það óþolandi að reynt sé að þagga það niður það sem þær hafa að segja.

Og nei, ég er ekki að segja að ég sé sammála öllu sem þær setja fram heldur get ég ekki annað en borið virðingu fyrir þeim. Þetta eru konur sem hafa stigið fram, sagt sínar skoðanir upphátt og oft á tíðum fengið bágt fyrir, jafnvel hótanir um ofbeldi. Þetta eru konur sem hafa neitað að halda kjafti og vera sætar þegar samfélagið vill það.

En það er samt eitt sem ég skil ekki í allri þessari umræðu. Öll þessi viðbrögð sem feministar vekja. Fólk verður stundum svo reitt. Bloggsíður og kommentkerfi loga eins og enginn sé morgundagurinn. Og oft eru þessi komment sem fólk lætur frá sér full af svo mikilli heift og reiði. Eins og heimurinn farist við það eitt að ræða það hvort það sé komin tími á það að taka þetta bleika og bláa út af fæðingadeildinni?

Þessum konum er hótað ofbeldi fyrir það eitt að segja skoðanir sínar. Þeir sem það gera virðast hafa gleymt því að þeir geta skrifað blaðagrein þar sem þeir setja sín rök ef þeir kjósa það. Því það sjá það allir að ofbeldi getur ekki verið lausn þó svo að þú sért ósammála einhverjum.

Viðbrögð við feminískum hugmyndum eru oft á tíðum ofsafengin og fá mann óneitanlega til þess að vellta einni spurningu fyrir séð:

Hvað í ósköpunum eru þessar konur að segja sem vekja upp alla þessa reiði?

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]

Ritstjórn
22.5.2012

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla

heillakedja forsida

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um eina milljón króna í tilefni þess að fyrirtækið var apríl-hlekkur keðjunnar. Starfsfólk VÍS lagði söfnuninni einnig lið með eigin heillakeðju og safnaði 275 þúsund krónum í sínum ranni. Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS segir þátttöku VÍS í Heillakeðjunni hlekk í samfélagslegri [...]

Aðsendar greinar
22.5.2012

Alma Rut: Útigangsmenn eru líka fólk

loftur forsida

Það var fimmtudagur og ég var á leið til vinnu í miðbæ Reykjavíkur. Ég lagði bílnum hjá gamla Landakotsspítalanum og gekk niður brekkuna sem liggur að Alþingishúsinu. Í fjarlægð sá ég nokkra menn sitja á bekk. Ég gekk framhjá þeim þegar hávaxinn skeggjaður maður lítur til mín, heilsar og brosir.  Augu hans voru sérstök , [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Vannst þú í Facebook-bingóinu?

bingo st

FYI: Þetta er kallað vinningur í Facebook-bingóinu!  

Ritstjórn
22.5.2012

Nýjasta stjarnan í Þýskalandi: Anuri

anuri

Er maður sætastur eða hvað? F’ólk flykkist nú í dýragarðinn í Wuppertal í Þýskalandi til að berja augum ísbjarnarhúninn Anuri. Enda afskaplega fallegur!  

Ritstjórn
22.5.2012

Mér var sagt ég gæti orðið hvað sem er…

hvad sem er lil

…svo hvað gerðu þeir? Fyndnustu myndir sem þú munt sjá í dag!   Heimild: Reddit

Ritstjórn
22.5.2012

Það er svo gott að sofa!

sofa lil

Hver kannast ekki við þetta…?  

Ágústa Arna
22.5.2012

Að morgni leikdags (já, ég er júró-nörd!)

agusta arna

Árið 1986 stigu þau Eiríkur Hauksson, Helga Möller og Pálmi Gunnarsson í fyrsta sinn á svið fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (fyrirbæri sem hér eftir verður bara kallað Júróvision) í fyrsta sinn. Það væri lygi að segja að væntingarnar hafi verið engar þegar Icy hópurinn steig á svið enda var landinn með það [...]

Nafnlaust
22.5.2012

Játning: Mælikvarði á sanna vini

vinir

Hver er mælikvarðinn á sanna vini ? Á hverjum einasta degi heyrir maður eitthvað nýtt sem á að segja manni út á hvað sannur vinur gengur. Þeir eru til staðar fyrir þig þegar þú þarfnast þess mest. Það er grunnlínan. En hver og einn er mismunandi, svo hvernig maður mælir sanna vini hlýtur barasta að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Grínið varð dauðans alvara: Settu barnið í þvottavél sem fór í gang

tvottavel barn forsida

Foreldrarnir sem sjást á myndbandinu hugsuðu ekki út í afleiðingar þess að setja barnið í þvottavél í þvottahúsi. Faðir barnsins setur það inn en gætir ekki að því að þvottavélin læsist sjálfkrafa og fer hún í gang með barnið inn í. Magnþrungnar sekúndur líða eins og sjá má. Vert er að taka það fram að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Hin 12 ára Ásta Petrea syngur Halelujah: Myndband

haleluja

Ótrúlega góð og einungis 12 ára gömul! Ásta Petrea syngur hér þetta fallega lag, Halelujah