Unnur Kristín hefur heldur betur lagt fitnessið að fótum sér en hún vann módelfitnessið fyrir ári síðan, þá nýkomin úr barneignafríi. Þessi hörkuduglega stelpa æfir súlufitness, stundar ræktina af kappi, er gullsmiður og til að toppa þetta allt saman þá er hún einnig mamma. Unnur ætlar að segja okkur hvernig hún fer eiginlega að þessu og hvernig undirbúning fyrir fitness keppni er háttað.
„Dagurinn hjá mér byrjar klukkan sjö en ég stelst samt í smá kúr og snúsa til korter yfir. Þá fer ég á fætur, geri strákinn kláran og fer með hann í leikskólann klukkan átta. Ég bruna svo beint á lyftingaræfingu og eftir hana fer ég í vinnuna. Ég byrja að vinna klukkan tíu en það er misjafnt hvort ég vinn til 16 eða 18.Eftir vinnu reyni ég að nýta tímann til þess að vera með fjölskyldunni en það þarf alltaf að sinna einhverjum heimilisstörfum líka. Ef það er stutt í mót fer ég svo aftur í ræktina og tek brennsluæfingu um kvöldið.“
Unnur er orðin nokkuð sjóuð í módelfitnessinu en hún hefur keppt bæði hérlendis og erlendis.
„Ég stefni á að keppa núna um páskana en hef ekki tekið endanlega ákvörðun. Ég myndi þá reyna fyrir mér í fitnessinu en ég hef keppt fimm sinnum í módelfitnessinu. Ég keppti fyrst á nóvembermótinu 2008, þá lenti ég í öðru sæti. Ég tók aftur þátt í næsta móti sem var haldið páskana 2009 og aftur endaði ég í öðru sæti. Fljótlega eftir mótið varð ég ólétt og í mars 2010 fæddist Aron Óli.
Ég byrjaði þó aftur að æfa það árið og um haustið fór ég á fullt í súlufitness. Í framhaldi af því ákvað ég að keppa um páskana 2011. Það mót gekk mjög vel og ég vann. Ég fór síðan til Spánar og keppti þar á Arnold Classic og komst í top 15 en það er mjög gott. Ég tók svo þátt í nóvember síðastliðinn og fékk fjórða sætið þar.“
Unnur Kristín gerir þetta af fullri alvöru og er dugleg að mæta á æfingar
„Ég lyfti 6 sinnum í viku og er í þjálfun hjá Valdísi í Sporthúsinu. Ég mæti í súlufitness tvisvar í viku og þegar styttist í mótið bæti ég við mig brennsluæfingum. Þær hafa stundum verið allt að sex sinnum í viku. Þetta er ekki auðvelt en ég er heppin og er með frábæran þjálfara og mikinn stuðning frá fjölskyldunni minni.“

Myndir af Unni: Heida HB
Unnur útskrifaðist sem gullsmiður á síðasta ári og vinnur sem slíkur. Hún er því alls ekki aðgerðarlaus á milli æfinga og hefur í nógu að snúast.
„Ég er svo heppin að vera með besta yfirmann í heimi, hann pabba. Pabbi styður mig 110% í sportinu og það er auðvelt að díla við hann um sveigjanlegan vinnutíma þegar styttist í mót. Vinnan gengur mjög vel og það er ekki leiðinlegt að geta unnið við það sem manni finnst skemmtilegt. Ég á líka frábæran mann sem hefur stutt við bakið á mér frá fyrsta degi en ég þarf að skipuleggja mig mjög vel til að hver dagur nýtist sem best, þannig bý ég til tíma fyrir þetta. Um helgar reyni ég þó að vera með fjölskyldunni og gera eitthvað skemmtilegt með þeim.“
En hvað er það sem þarf til þess að ná góðum árangri í sportinu?
„Þú þarft skipulag – aga – metnað og vilja til að geta þetta. Auðvitað þarftu að hafa gaman af þessu líka.Að sigra sjálfan sig er ólýsanleg tilfinning. í dag er þetta bara orðið að mínum lífsstíl. Ég nota Sci-MX fæðubótarefni frá líkama og lífsstíl mæli hiklaust með þeim ef þú vilt ná góðum árangri í ræktinni“




















