FKA veitir fjórar viðurkenningar 2012
27.1.2012 | 01.19 - Aðsent efni

Það var mikið um dýrðir í Ráðhúsi Reykjavíkur síðdegis í gær þar sem FKA; Félag kvenna í atvinnurekstri afhenti sínar árlegu viðurkenningar að viðstöddum fjölda þeirra karla og kvenna sem standa í framlínu íslensks  viðskipta- og atvinnulífs.

 

 

Hafdís Jónsdóttir, formaður félagsins ávarpaði gesti og bauð þá velkomna en að því búnu afhenti Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra fjórar viðurkenningar.

 

 

FKA viðurkenninguna 2012 hlaut Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri og einn stofnenda hvalaskoðunarfyrirtækisins Hvalaskoðun Reykjavík – sem er þó betur þekkt undir nafninu Elding.  

 

 

Rannveig hafði aldrei leitt hugann að hvalaskoðun þegar faðir hennar hringdi í hana í hádeginu einn daginn og bauð henni í bíltúr suður með sjó. Þar sá hún skipið Eldingu í fyrsta sinn og einhvers staðar á Reykjanesbrautinni ákváðu þau feðgin að stofna hvalaskoðunarfyrirtæki.

 

 

Rannveig starfaði þá sem deildarstjóri bókhaldssviðs 365 – en tveimur árum eftir að þau fjárfestu í Eldingu lét hún af störfum þar og hefur síðan helgað sig eigin rekstri. Fyrirtækið hefur líka vaxið jafnt og þétt enda er hvalaskoðun nú þriðja vinsælasta afþreying þeirra erlendu ferðamanna sem hingað koma. Floti félagsins hefur líka stækkað og telur nú 6 skip og veitir ekki af til að taka á móti þeim þúsundum ferðamanna sem eiga þann draum heitastan að sjá þessar tignarlegu dýr. Starfsmenn eru 18 á veturna en 45-50 á sumrin – en sjálf segist Rannveig sjaldan stíga um borð ... því hún verði svo svakalega sjóveik.

 

 

Rannveig Grétarsdóttir stofnaði og stýrir Eldingu, félagi sem er leiðandi í ferðamannaiðnaði í dag. Í ræðu formanns FKA kom fram að velgengni fyrirtækisins væri ekki heppni. Gott gengi Eldingar fælist kannki frekar í  „ótta hennar við stöðnun sem hefur í gegnum tíðina fengið hana til að henda sér út í djúpu laugina með krosslagða fingur ... en hvorki kút né kork. Það voru hinsvegar ótal sundtök;  ótrúleg þrautseigja og elja sem komu henni upp á bakkann hinumegin“ sagði Hafdís um leið og hún veitti Rannveigu Grétarsdóttur FKA viðurkenninguna 2012. “

 

 

 

Hvatningarviðurkenningu FKA hlutu þær Árný Elíasdóttir, Inga Björg Hjaltadóttir og Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir – stofnendur og eigendur Attentus ehf.

 

Attentus veitir fyrirtækjum alhliða ráðgjöf í mannauðs- og fræðslumálum; býður upp á  aðstoð við stefnumótun, þjálfun nýliða, stjórnendaráðgjöf, mat og þjálfun, vinnustaðagreiningar og áreiðanleikakannanir á sviði mannauðsmála – svo eitthvað sé nefnt. Þar fyrir utan er hægt að leigja hjá þeim bæði fræðslu- og mannauðsstjóra og er eftirspurnin gífurleg.

 

Að þeirra sögn urðu mörg fyrirtæki að skera niður í starfsmanna- og fræðslumálum eftir hrun og sjá hagræði í því að láta Attentus sjá um þau mál í stað þess að hafa fasta starfsmenn í þessum stöðum. „Þar fyrir utan er oft auðveldara fyrir einhvern sem ekki vinnur dags daglega á staðnum að taka á erfiðum starfsmannamálum“ benda þær á. „Það má eiginlega segja að viðskiptavinir okkar séu að fá 3 eða 4 starfsmenn fyrir einn - því auk þess að búa yfir sérfræðiþekkingu á mannauðs- og fræðslumálum – þá höfum við þá sérstöðu að vera með lögfræðing innanborðs sem getur t.d. veitt ráðgjöf varðandi áminningar og uppsagnir.“

 

„Þær Inga, Árný og Ingunn eru stofnendur og eigendur Attentus – ólíkar konur, með fjölbreyttan bakgrunn en sameiginlega löngun til að aðstoða stjórnendur við að nýta hæfileika starfsmanna sinna, auka vellíðan þeirra og vöxt fyrirtækja sinna – öllum til heilla. Þetta hafa þær gert og hafa nú síðast skrifað undir árssamning við fyrirtæki á borð við Ísfélagið í Vestmannaeyjum, Öryggismiðstöðina, Tal, Kex hostel og Nordic Visitor. Þær komu auga á þörfina,  höfðu þekkinguna ... og nýttu tækifærið. Það er þannig fólk sem þjóðin þarf“ sagði Hafdís Jónsdóttir formaður FKA í ræðu sinni við verðlaunaafhendinguna í dag. 

 

 

Þakkarviðurkenningu FKA hlaut Erla Wigelund, stofnandi og eigandi Verðlistans.

 

 

Bernskudraumur Erlu Wigelund um að verða búðarkona rættist árið 1965 þegar hún opnaði verslunina Verðlistann við Laugalæk í Reykjavík, þar sem hún er enn til húsa. Þá hafði hún reyndar í nokkur ár gefið út verðlista þar sem fólk hvaðanæva af landinu gat pantað húsgögn, hljóðfæri og föt á fjölskylduna. En þó hún sé löngu hætt að selja borð og básúnur sinnir hún jafnt landsbyggðarfólki og höfuðborgarbúum og sendir kápur og kjóla út um allt land.

 

 

Þrátt fyrir að Erla sé orðin 83 ára er engan bilbug á henni að finna. Hún segist alltaf taka „fyrri vaktina“ í versluninni og byrja hvern dag á því að snyrta til fyrir framan búðina; sópa á sumrin og moka snjó á veturna.

Síðdegis sinnir hún skrifstofustörfunum; borgar reikninga, sér um markaðsmálin og allar erlendar bréfaskriftir enda telur hún það afar mikilvægt að mynda persónleg tengsl við erlendu birgjana jafnt sem viðskiptavini sína.“

 

Í ræðu sinni sagði formaður FKA að Erla hefði með útsjónarsemi sinni, hæfni í mannlegum samskiptum og þrautseigju tekist að halda sjó bæði í blíða logni og brælu. Lífsgleði hennar, þjónustulund og „þrjóska“ er til eftirbreytni og fyrir það hlaut Erla Wigelund þakkarviðurkenningu FKA 2012.

 

 

Gæfusporið 2012 hlutu Katrín Olga Jóhannesdóttir og Sigríður Margrét Oddsdóttir sem fyrir rúmu ári síðan keyptu „Já.is“ í félagi við fjárfestingasjóðinn Auði 1. Þær stöllur þurftu ekki að hugsa sig tvisvar um þegar tækifæri til að kaupa þessa upplýsingaveitu – enda tóku þær báðar þátt í því að stofna félagið utan um 118 og símaskrána á sínum tíma.

 

„Þetta er „barnið okkar“ sem við þekkjum út og inn“ segja þær. Segja má að „barnið“ þrífist líka vel hjá „mæðrum“ sínum því það hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt. Meðal þeirra nýjunga sem þær Katrín og Sigríður Margrét hafa hannað á undanförnum mánuðum má nefna „Já í símann“ og  vefinn „Stjörnur.is“ sem er nokkurs konar neytendavefur þar sem almenningi gefst færi á að lofa eða lasta fyrirtæki, vörur eða þjónustu. Er þá ótalin nýjasti vefurinn „Iceland.já.is“ sem er heildstæður vefur fyrir erlenda ferðamenn um allt sem þá kann að vanta -  eða vilja gera - á Íslandi.  Starfsfólkið virðist líka una sér vel undir þeirra stjórn því skv. nýjustu mælingum er starfsfólk Já 86% ánægðara en það var 2005.

 

Katrín Olga og Sigríður Margrét mörkuðu ákveðin spor í viðskiptasögunni þegar þær fjárfestu -  ásamt Auði Capital - í fyrirtækinu Já. Bæði vegna þess að þar var um fyrstu „yfirtöku stjórnenda“ eða „management buy-out“ að ræða eftir hrun ... og vegna þess að þar riðu konur á vaðið. Þær hafa byggt upp öflugt fyrirtæki sem hefur á að skipa kjarkmiklum konum í lykilstöðum.

 

„Það teljum við hjá FKA vera mikið gæfuspor og er sönn ánægja að veita þeim og fyrirtæki þeirra „Já“ Gæfuspor FKA 2012“ sagði formaður félagsins við afhendingu verðlaunanna í Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Ritstjórn
22.2.2012

Nicki Minaj blá fyrir Vogue: Mynd

Poppstjarnan Nicki Minaj er undir áhrifum Avatar, nú eða Strumpanna í nýjasta Vogue. Hún lítur samt alltaf jafn vel út, má eiga það!

Ritstjórn
22.2.2012

Hefnd kokkálaða eiginmannsins

Það er ekkert smá... Lexían er þessi: EKKI halda framhjá!

Heiðrún Finnsdóttir
22.2.2012

Yrja: „Líkamsrækt er besta meðalið.“

Einkaþjálfari, ketilbjölluþjálfari og mamma. Þessi þrjú orð má nota til þess að lýsa Yrju Dögg Kristjánsdóttur, 25 ára skvísu úr Mosfellsbænum. Yrja hefur stundað íþróttir frá 5 ára aldri, verið bæði í fimleikum og frjálsum íþróttum en þegar hún varð 18 ára varð hún að hætta vegna meiðsla. 

Ritstjórn
22.2.2012

Leikarinn Atli Þór stöðvaði unglingaslagsmál stúlkna í Kringlunni

Atli Þór Albertsson, leikari, stöðvaði unglingaslagsmál í Kringlunni í dag. Segir hann fjölda fólks hafa verið nálægt en enginn gerði neitt á meðan þau stóðu yfir og hópurinn tók myndir og myndbönd af slagsmálunum. 

Ritstjórn
22.2.2012

Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni í tilefni öskudags

Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í Fríhöfninni í morgunsárið og verður áfram fram eftir degi. Lífleg stemmning enda margs konar verur á ferli sem skemmtu farþegum sem voru á leið út fyrir landssteinana.

Ritstjórn
22.2.2012

Síðasta sms-ið sem þig langar að fá: Mynd

„Af hverju sendiru þetta í minn síma? AF HVERJU?!"

Ritstjórn
22.2.2012

Ásdís Rán og Garðar skilin: „Fólk sýni aðgát í nærveru sálar“

Stjörnuparið Ásdís Rán og Garðar Gunnlaugsson tilkynntu um skilnað sinn á Facebook fyrir skömmu. Biður Garðar fólk um að „sýna aðgát í nærveru sálar“ í umræðu um skilnaðinn.

Ritstjórn
22.2.2012

Öskudags-Andrésblaði dreift í dag

Í dag mun Edda útgáfa í samvinnu við Arion banka, dreifa 20.000 eintökum af sérútgefnu Andrésblaði til barna í tilefni öskudagsins.  Andrés Önd hefur skemmt íslendingum á íslensku í tæp 30 ár og hefur aldrei komið út í jafn stóru upplagi og nú.

Markmiðið með þessu átaki er að vekja athygli á mikilvægi þess að börn lesi meira og hafi aðgang að góðu íslensku lesefni sem vekur áhuga þeirra.

Edda útgáfa er stærsti útgefandi barnabóka á Íslandi og hefur gefið út Disney-bækur og -blöð í tæp 30 ár. Bækur frá Disney eru meðal söluhæstu barnabóka landsins á hverju ári.

Andrésblaðið kemur út 52 sinnum á ári og er sent inn á heimili áskrifenda í hverri viku.  Áskrifendur eru tæp 4.000 og eru því prentuð yfir 200þúsund eintök á ári af Andrési Önd.

Edda starfrækir auk þess þrjá áskriftarklúbba, Disney-kríli, Disney-klúbbinn og Syrpuna með tæplega 10.000 áskrifendum.  Heildar fjöldi Disney-tímarita og -bóka sem sendar eru reglulega til íslenskra barna yfir árið eru tæplega 300.000 eintök.

Mikil umræða hefur verið um lestrarvenjur barna og þá staðreynd að börn eyða sífellt minni tíma í lestur. Í ljósi umræðunnar þótti tilvalið að gera sérstaka öskudagsútgáfu af Andrési Önd í ár.
Blöðunum er dreift í ókeypis í samvinnu við Arion banka í öllum útibúum bankans á meðan birgðir endast.

Heiðrún Finnsdóttir
22.2.2012

Kyss Kyss, bæng bæng

Lady Gaga sýnir gripinn sinn, byssu með varalit í stað skota. Spurning um að fá sér eina svona ? 

Ritstjórn
22.2.2012

Öskudagur: Förum varlega í umferðinni

Í dag er öskudagur og því má búast við mikilli umferð barna. Umferðarstofa vill hvetja ökumenn til að hafa þetta í huga og að þeir hafi óskerta athygli, virði hámarkshraða, noti ekki síma á meðan á akstri stendur og að þeir séu ætíð viðbúnir því óvænta. Foreldrar eru hvattir til að sjá til þess að börnin séu vel sýnileg með tilheyrandi endurskinsmerkjum.

Ritstjórn
22.2.2012

Hefur þú séð Guðmund, 15 ára?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi, þann 17.02.2012 s.l.  og er ekkert vitað um hvar hann er nú niðurkominn.

Aðsendar greinar
22.2.2012

Reunion

Nú líður að 10 ára endurfundum hjá árganginum mínum úr gagnfræðaskóla og þá fara ýmsar hugsanir í gang. Nostalgía og gamlar minningar flæða uppá yfirborðið. Þvílíkur dýrðartími sem það var að vera unglingur. Svo allt í einu man ég það.

Ritstjórn
22.2.2012

Bleikt í tæknivandræðum: Förum aftur á fullt á næstu dögum

Eins og dyggir lesendur Bleikt hafa fundið undanfarna daga, höfum við glímt við margvísleg tæknileg vandamál undanfarna daga og fjölmargir lesendur hafa átt í erfiðleikum með að komast inn á vefinn.

Ritstjórn
21.2.2012

Frískur detox-drykkur að hætti Svenna

Saltkjöt og baunir, túkall. Í dag er Sprengidagur og á þeim herrans degi belgjum við okkur út af dýrindis baunum, saltkjöti, uppstúf, ofsoðnum rófum, gulrótum og kartöflum. Oftar en ekki er smjörklípu bætt út í baunasúpuna og þessu öllu saman gert góð skil með tilheyrandi bjúg, liðaverkjum og öðrum aukaverkunum af of mikilli saltneyslu. 

Heiðrún Finnsdóttir
21.2.2012

Hin fullkomna þú

Mig langar að kynna þig fyrir manneskju. Þetta er alveg einstök manneskja, það er engin til eins og hún. Þessi manneskja hefur frábær áhugamál, einstaka hæfileika og er nákvæmlega eins og hún á að vera.

Ritstjórn
20.2.2012

Öskudagsball í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi

Undanfarin ár hefur verið haldið upp á gamlar hefðir í Gerðubergi og öskudagsböllin endurvakin. Húsið hefur fyllst af kátum krökkum, héðan og þaðan úr bænum og skemmt sér konunglega.

Ritstjórn
19.2.2012

Bolla, bolla!

Sjálfsagt er aldrei meira bakað en fyrir bolludaginn. Bakarí eru full af freistandi bollum með ótal fyllingum og kremum ofaná og á flestum heimilum má búast við því að ilmandi bökunarlyktin komi á móti gestum og gangandi.

Ritstjórn
18.2.2012

Fallegasta mynd dagsins

Yndisleg alveg hreint... Sama fólkið, örfáum árum seinna. Elísabet II Bretadrottning og Filippus drottningarmaður virðast ástfangin sem aldrei fyrr.

Ritstjórn
18.2.2012

Afi tekur á því: Mynd

Sæll! Hann er 73 ára gamall og í algeru fantaformi. Best að hlýða afa...

Ritstjórn
18.2.2012

„Langar þig á stefnumót með dóttur minni?" - Mynd

„Ekkert mál, kallinn minn! Fylltu bara þetta út og við erum klárir..."

Ritstjórn
18.2.2012

Bieber segir F-orðið við aðdáendur í Disneyland: Myndband

Stjarnan var ekki kurteis á Valentínusardag með kærustunni...

Ritstjórn
18.2.2012

Læðumst við fáklæddar út fyrir dyr á morgun?

Konudagurinn er á morgun, dagur ástarinnar samkvæmt íslensku tímatali. Hefðin býður íslenskum karlmönnum að færa konum sínum morgunkaffi í rúmið, ilmandi rúnstykki á fati og fallegan blómvönd í tilefni dagsins. Á morgun er einnig við hæfi að umvefja eiginkonur, systur, mæður og dætur með kærleika og frið á þessum fallega og rammíslenska tyllidegi sem á rætur sínar að rekja til heiðinnar trúar.


Ritstjórn
18.2.2012

Hugsanaflutningur er víst til: Myndband

Magnað hvernig hann gerir þetta...

Ritstjórn
18.2.2012

Lotukerfiskökur: Myndir

(Varúð: Fyrir nörda) Ljósmyndarinn tók þessar myndir fyrir móttöku í skólanum sínum. Já, hann er verkfræðinemi...

Nafnlaust
18.2.2012

Játning: Strákar eru misjafnir

Ókei stelpur, ég er alls ekki að segja að það séu allir strákar slæmir eða vilji særa stelpur. Ég þekki strák sem er algjörlega fullkominn og kemur alltaf vel fram við mig, en ég hef hinsvegar lent í mjög slæmum strák sem var að reyna að neyða mig í hluti sem ég vildi ekki gera.

Linda Rós
18.2.2012

Ómerkilegur pappír

Ég fékk að heyra það um daginn að ég væri ómerkilegur pappír. Það var reyndar ekki sagt beint út við mig heldur var manneskja tekin fram yfir mig því „hún lítur svo vel út á pappír”. Ég ræddi þetta við vin minn sem sagði: „Þú ert ekki ómerkilegur pappír… þú ert lúxusfrímerki.” 

Ritstjórn
18.2.2012

Google hefur breytt því hvernig við hugsum

Sókrates hefði væntanlega ekki verið glaður hefði hann séð fyrir þróun internetsins og ekki síst þróun leitarvéla á borð við Google. Í Phaedrus er haft eftir honum að “læri fólk almennt að skrifa, muni það einungis verða til þess að það gleymi öllu. Á endanum muni það treysta á það sem skrifað er en ekki minnið.”

Heiðrún Finnsdóttir
17.2.2012

Eitt sinn skáti ávallt skáti

Góðverkadagar skátanna standa yfir daganna 20-24 febrúar. Markmið daganna er að hvetja einstaklinga, skóla og fyrirtæki til þess að hjálpa öðrum, sína vináttu og kærleik og láta gott af sér leiða með einum eða öðrum hætti.

Ritstjórn
17.2.2012

Nýtt frá Skrillex: Bangarang - Myndband

Skrillex er einn flottasti tónlistarmaður í heimi þessa dagana. Myndbandið er frekar óhugnanlegt en samt virkilega töff...

Ritstjórn
17.2.2012

Tvílitt hár: Hvernig á að rokka þetta lúkk!

Hér sjáið þið myndir af þessu töff lúkki sem er ótrúlega vinsælt einmitt núna...

Ritstjórn
17.2.2012

Hvernig útlendingar sjá Ísland: Mynd

Skemmtileg mynd í takt við aðrar svipaðar sem flæða um internetið þessa dagana...nú hvernig útlendingar halda að sé að búa á Íslandi. 

Ritstjórn
17.2.2012

Með stærstu brjóst í heimi: Myndband

38 KKK er stærðin. Sheila Hershey hefur eytt fúlgum fjár í að láta stækka á sér barminn og mun koma fram í þættinum My Strange Addiction innan tíðar. Bjróstunum fylgja ýmis vandkvæði og sjón er sögu ríkari...

Heiðrún Finnsdóttir
17.2.2012

Daníel Óliver: „Draumaprinsinum mætti svipa til George Clooney"

Söngvarinn og lagahöfundurinn Daníel Óliver er flestum orðin kunnugur en hann hefur gert það gott í danstónlistinni upp á síðkastið. Nú hefur hann kvatt klakann og flutt til Stokkhólms þar sem hann hugar að tónlistinni, ástinni og lífinu. Daníel ræddi við okkur um lífið, samkynhneigðina og auðvitað tónlistina.


Ritstjórn
17.2.2012

11 ára hjólabrettastelpa: Myndband

Hún er alger snillingur á brettinu þessi! Hún heitir Nanaka Fujisawa og er frá Japan. 

Ritstjórn
17.2.2012

Hvernig á að láta litlu krílin sofna: Myndband

Yndislegt myndband sem sýnir okkur alvöru mömmur og hvað þær gera til að láta litlu krílin sín sofna... Mikið er þetta fallegt!

Ritstjórn
17.2.2012

Súkkulaðikærasti: Mynd

Ef þú gætir valið þér kærasta úr súkkulaði, hver yrði það?

Ritstjórn
17.2.2012

Söngur fyrir engla á himnum: Mynd

Mikið eru englarnir heppnir...

Ritstjórn
17.2.2012

Bolabítur ættleiðir munaðarlausa grísi: Myndband

Baby, franskur bolabítur, fann þessa grísi í skógi rétt fyrir utan Berlín í Þýskalandi. Móðir þeirra yfirgaf þá en hundurinn víkur aldrei frá þeim. Ótrúlega sætt!

Nafnlaust
17.2.2012

Játning: OA-samtökin björguðu lífi mínu

 

Ég er 36 ára kona og ég ræð ekki við mat. Mér hefur alltaf þótt gott að borða. Á unglingsárunum man ég eftir átköstum, þar sem ég borðaði það mikið að mér leið illa á eftir og eitt skipti það mikið að ég ældi. Á þessum tíma fór ég líka í fyrstu megrunina. Þær urðu margar eftir það.

 

 

Þær áttu samt eitt sameiginlegt, á einhverjum tímapunkti byrjaði ég segja mér að ég hefði staðið mig svo vel að ég ætti skilið að svindla. Þegar ég byrjaði að svindla gat ég kannski látið einn lítinn bita af einhverju nægja. Í næsta skipti gat ég ekki stoppað fyrr en eftir tvo bita, þangað til að ég hafði misst alla stjórn. Vigtin sveiflaðist auðvitað eftir þessu.

 

 

Þegar ég flutti af heiman þá fékk ég að ráða alltaf hvað var í matinn. Það þýddi að ég bætti á mig mörgum kílóum. Eftir nokkur ár var ég farin að nálgast þriggja stafa tölu en ég er lágvaxin kona svo að ég var löngu komin í alvarlega offitu. Fjölskyldumeðlimir voru farnir að benda mér vinsamlega á að ég væri að stefna heilsu minni í hættu.

 

 

Ég var komin með ýmis líkamleg einkenni offitu, hafði misst gallblöðruna, var stöðugt með meltingartruflanir, farin að finna fyrir liðverkjum.

 

 

Ég tel mig vera ágætlega greinda konu og ég las mér til um offitu og vissi margt um mergranir, næringargildi, gildi hreyfingar og allt það sem ég þurfti að gera. En eins og ég sagði grátandi í símann við systur mína einhvern daginn þegar ég var með sem mest ógeð á sjálfri mér: „Ég veit alveg hvað ég þarf að gera, en ég get þetta ekki!”

 

 

Eitt af því sem ég las var grein um mann sem var í OA-samtökununum(Overeaters Anonymous). Hann lýsti hvernig hann þurfti að skipuleggja matinn sinn fyrirfram á hverjum degi og hvernig honum leið miklu betur. Ég hugsaði þá að þetta væri eitthvað fyrir mig, en vissi líka að það væru litlar líkur á því að ég gæti þetta, ég var nefnilega þannig að í öllum mergrunarkúrum þar sem ég átti að halda matardagbók gekk það í nokkra daga, en …gleymdist” svo bara. Allt annað fannst mér samt passa nokkuð við mig, sérstaklega lýsingin á því hvernig samband hans við mat var.

 

Það var svo ca. fimm árum seinna að vinkona mín byrjaði í OA. Ári seinna bauð hún mér með á fund. Eftir að ég missti gallblöðruna var ég hætt að geta tekið megranir með brjáluðum nammidögum einu sinni í viku og ég vissi að ég þyrfti að gera eitthvað og þess vegna sagði ég já.

 

 

 

Ég heyrði strax að ég átti mikið sameiginlegt með þeim þarna voru. Ég gat alveg fundið e-ð sem passaði ekki við mig, en ég hafði lesið í lesefni OA að það væri eins og AA, nema maður setti bara matur í staðinn fyrir áfengi og ef ég gerði það virkuðu allar ræðurnar mínar um að alkóhólistar ættu bara að hætta að drekka einn dag í einu ekki lengur, ef ég sagði við sjálfa mig að ég þyrfti bara að ekki borða yfir mig einn dag í einu, eða ekki borða nammi einn dag í einu þá gat ég engan vegin staðið við það.

 

 

Ég fór fljótlega að vinna með trúnaðarkonu sem leiddi mig í gegnum 12 spor OA samtakanna. Ég fann út hvaða matartegundir ég gat ekki hætt að borða ef ég byrjaði á þeim og hélt mig frá þeim einn dag í einu. Ég bjó til mitt matarplan sem hét þrjá máltíðir á dag, einu sinni á diskinn, og ein til tvær millimáltíðir eftir þörfum og sleppti sykri, majónessalötum og ostum og kexi.

 

 

Í sporavinnunni komst ég að því að maður fær fullt af tíma og orku ef hausinn á manni er ekki alltaf sífellt að hugsa um mat, hvað maður eigi að borða næst, hvernig maður eigi að borða án þess að aðrir verði þess varir, hvort að einhver taki eftir því hvort maður fari ferð nr. 6 að kökuborðinu.

 

 

Ég hef í dag verið í fráhaldi í fimm ár, fimm mánuði og fimmtán daga. Ég hef misst 25-30 kg. Ég hef líka fengið að takast á við andlegar og tilfinningalegar hliðar sjúkdómsins, ég hef unnið með mína sjúklegu stjórnsemi, ég á eiginmann í dag sem eflaust væri ekki eiginmaður minn ef ég hefði ekki verið í OA, ég á gott samband við flesta, fíflunum í kringum mig hefur fækkað stórlega.

 

 

Ég fer á OA-fund a.m.k. einu sinni í viku, ég á trúnaðarkonu, ég er trúnaðarkona fyrir aðra, ég hef samband við aðra OA-félaga, ég skrifa um vandamál mín og tilfinningar  og les OA-lesefni í staðinn fyrir að leysa öll vandamál með mat. Ég hef í fráhaldi tekist á við lífið, það hefur átt sín góðu og slæmu daga, en ég er miklu betur í stakk búin til að takast á við hvað sem er þegar hausinn á mér og líkaminn er ekki fullur af óhollum mat.

Aðsendar greinar
17.2.2012

Vilt þú byrja í hljómsveit?

Við erum þrjár stelpur úr Reykjavík fæddar árið 1997. Ein okkar er gítarleikari, hin hljómborðsleikari og svo er líka ein söngkona. Allar kunnum við einnig á önnur hljóðfæri. 

Ritstjórn
17.2.2012

Sannleikurinn um Internetið: Mynd

Sönn saga...og hún gerist á hverjum degi...

Ritstjórn
17.2.2012

Út að borða fyrir börnin

Þrettán veitingastaðir hafa ákveðið að taka þátt í verkefni Barnaheilla sem gengur þannig fyrir sig að með kaupum á tilteknum réttum mun hluti af verði þeirra renna til verndar barna gegn ofbeldi.

 

Heiðrún Finnsdóttir
16.2.2012

Bókasafn Kópavogs tekst á við ábyrgð

Í dag hélt Bókasafn Kópavogs fyrsta fyrirlesturinn af fjórum um hugtakið „Ábyrgð“. Fyrirlesarinn var heimspekingurinn Gunnar Hersveinn og var hann aðeins sá fyrsti í röð fjögra fyrirlesara en þeir sem næstir verða á dagskrá eru Ragna Árnadóttir, lögfræðingur, Jón Björnsson, sálfræðingur og rithöfundur og Jóna Hrönn Bolladóttir, prestur.

Heiðrún Finnsdóttir
16.2.2012

Lýst eftir 16 ára stúlku

Bleikt barst eftirfarandi tilkynning í pósti og vill biðja lesendur sína um að hafa augun opin

 

 

"Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Helen Sól Fannarsdóttur, 16 ára. Hún er 162 sm á hæð, um 60 kg og með grænblá augu. Helen Sól er með dökkt, sítt hár og tungulokk í augabrún. Síðast sást til hennar við Tjarnarskóla miðvikudaginn 8. febrúar. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Helenar Sólar, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is"

Ritstjórn
16.2.2012

Birgir og Karen taka „Somebody I Used To Know"

Karen Ósk og Birgir Stefánsson taka hér frábært lag í frábærum flutningi...

Ritstjórn
16.2.2012

Íslenska lagið sem átti að fara í Eurovision: Myndband

Sætir kossar/Big Kisses heitir lagið og hún heitir Ása. Segir hún að allir klúbbar í Þýskalandi séu vitlausir í lagið og dansi eins og brjálæðingar þegar þeir heyra það... Hvað finnst ykkur?

Ritstjórn
16.2.2012

Taktu fyrrverandi kærastann út af myndinni!

Allt er nú til: Nú er komið viðbót í smartsímann þinn fyrir ljósmyndir. Hún heitir Remove og eyðir út fólki af myndum eins og ekkert sé. Þannig - ef þú ert við hliðina á einhverjum sem þú vilt eyða út af er einfalt að taka hann eða hana út, bara með einni stroku...

Ritstjórn
16.2.2012

Hvar er Valli? - Mynd

Fann hann! Veit samt ekki hvað mér finnst um það...

Ritstjórn
16.2.2012

Ekki fyrir lofthrædda XIII: Mynd

Nei, þetta hlýtur að vera fótósjopp!

Ritstjórn
16.2.2012

Hómer-rúllustiginn: Mynd

Þetta er frábært...

Ritstjórn
16.2.2012

Hvar er hægt að hlusta á jazz í Reykjavík um helgina?

Jazz hefur hafið innreið sína inn í landið! Stefnan hefur löngum verið sveipuð ákveðinni duluð og ekki er hægt að segja að hún sé mainstream sem endurspeglast í því að tónleikar eða session öllu heldur eru illa auglýstir.

 

Nafnlaust
16.2.2012

Játning: Hvernig gat ég sleppt þessari æðislegu stelpu?

Ég get byrjað á að lýsa mér svona: 16 ára venjulegur strákur, stundar íþróttir 6-7 sinnum á viku, sinnir náminu sínu vel, hefur aldrei prófað að reykja, drekka, bagga og fleira sem unglingar prófa.

Ritstjórn
15.2.2012

Adele fótósjoppuð? - Mynd

Forsíða bandaríska Vogue núna í marsmánuði skartar sigurvegara Grammy verðlaunahátíðarinnar, Adele. Þetta er samt svolítið ólíkt henni...

Ritstjórn
15.2.2012

SÁÁ fær veglegan styrk: „Hann kemur sér sérstaklega vel“

VÍS, Hamborgarafabrikkan og Hemmi Gunn styrktu SÁÁ um hálfa milljón í dag en Hemmi Gunn afhenti Hamborgarafabrikkunni Góða Gítarinn til varðveislu um ókomna tíð en Góði Gítarinn er hljóðfæri sem skartar eiginhandaráritunum á þriðja hundrað íslenskra tónlistarmanna.

Heiðrún Finnsdóttir
15.2.2012

Leitin að Sæluhelgarlaginu 2012

Á hverju sumri lyfta Súgfirðingar sér upp og halda Sæluhelgina hátíðlega. Í Ár verður helgin haldin í 25 sinn og er undirbúningur helgarinnar formlega hafinn.  Aðstandendur helgarinnar eru ekki aðeins að undirbúa hinar ýmsu uppákomur heldur einnig marhnútaveiðikeppni, húsmæðrafótbolta, sleggjukast og auðvitað má ekki gleyma leitinni að Sæluhelgarlaginu 2012. 

Ritstjórn
15.2.2012

Bobby Brown ekki velkominn í jarðarför Whitney

Fyrrum eiginmaður Whitney Houston, rapparinn Bobby Brown er ekki velkominn í jarðarför fyrrverandi eiginkonu sinnar samkvæmt fjölskyldu Whitney. 

Ritstjórn
15.2.2012

Jennifer Aniston ánægð með að vera á fimmtugsaldri

Af því tilefni fór hún í djarfari myndatöku en hún er vön hjá karlatímaritinu GQ. Hún segir að það hafi „sökkað" að vera á fertugsaldri en hún bókstaflega elski að vera á fimmtugsaldri. Eitt er víst: Hún hefur sjaldan litið jafn vel út...

Ritstjórn
15.2.2012

Einhver er ekki ánægður með þennan koss: Mynd

...eða svipurinn segir eitthvað svoleiðis...

Ritstjórn
15.2.2012

Afsakanir: Mynd

Hver var aftur þín afsökun...?

Ritstjórn
15.2.2012

Hundar í vatni: Myndir

Hvernig líta hundar út undir yfirborði vatns? Við vitum að þið hafið velt þessu fyrir ykkur, þannig hér eru myndir!

Aðsendar greinar

Reunion

Heiðrún Finnsdóttir

Hin fullkomna þú

Keyrir á Disil CMS frá Atómstöðinni