Flíspeysa = enginn karlmaður
25.04.2011 Agusthalldorsson

Það er ástæða fyrir því að sumum konum tekst ekki að halda í karlmenn.

Ég hef fylgst með þessu óútskýranlega vandamáli í mörg ár og oft furðað mig á hvernig í ósköpunum vel frambærilegar konur lenda alltaf utan vegar í samböndum. Þetta eru oftast konur sem eru hvað allra flottastar þegar þær fara út að skemmta sér, bera af sér mikinn þokka og eru hvers manns hugljúfi.

Þess vegna ákvað ég að bera mig eftir björginni og ákvað að veita þeim betur athygli þegar ég myndi rekast á þær í sínu daglega lífi. Með öðrum orðum: Annars staðar en á djamminu. Og viti menn: Þær áttu það allar sameiginlegt að klæða og hafa sig til mjög svipað.

Föstudag og laugardag voru þær sem glæsilegastar en síðan þegar þær vöknuðu á sunnudeginum skelltu þær sér í íþróttabuxur eða eitthvað álíka „kósý“: Flíspeysu og undantekningarlaust var hárinu lyft upp í flýti og skellt í teygju. Svona eru þær margar meira að segja klæddar í vinnunni, ef þær komast upp með það.

Ég held að ég tali fyrir hönd mjög margra karlmanna þegar ég segi að ungar konur í íþróttabuxum, lítið sem ekkert meikaðar, í flíspeysu sem er rennd upp í háls eru ekki mikið fyrir augað. Það er eins og sumar konur geri sér ekki grein fyrir því að fegurðin er það fyrsta sem þær fá frá náttúrunni en hún er einmitt líka það fyrsta hún tekur frá þeim.

Einnig vill ég koma því á framfæri að það er ekkert samasem merki fyrir konu að þegar hún er annað hvort gift eða trúlofuð að þær megi bæta á sig, klæða sig í íþróttagalla og hætta að sjá um sig. Það er reyndar svolítið fyndið að sjá kerlingar sem eru búnar að vera giftar í nokkur ár, alvæg hættar að sjá um sig líkamlega séð (nota það yfirleitt sem afsökun að þær eru búnar að eignast börn) í Cintamani peysunni sinni og bleiku náttbuxunum sínum en passa sig yfirleitt á því að vera með einhverja töff klippingu og skilja síðan ekkert í því þegar þær komast að því að karlinn er farinn að sækja á önnur mið.

Þá er þessi klipping alveg jafn tilgangslaus og róni sem reynir að fegra eigin syndir með því að drekka Carlsberg í gleri og halda að hann sé fínni en hinir rónarnir.

En hvað sem því líður þá er þetta nú bara vinaleg ábending, en prófið bara að taka eftir því í ykkar nánast umhverfi hvað kona sem hefur haft sig til hefur mikla yfirburði í samræðum við aðrar konur sem eru ekki eins glæsilegar til fara.

Enda er ekkert konum eðlislægra en að finna kvenlega veikleika annarra kynsystra sinna og níðast á þeim (þið eruð kannski ósammála mér en ég er þeirrar trúar að það sé ekki til grimmara dýr í heiminum en kona þegar hún ætlar að ná sínu fram , hvort svo sem það sé af hefndarhug, deilum eða einbeittum brotavilja).

Munið bara að: Vera góðar við ykkur, dekra við ykkur, vera sætar, brosa, hlæja og njóta lífsins. Flíspeysa er eitthvað sem á bara að sjást úti í sveit.

Þessi flíspeysa getur verið þröskuldur þess hvort þú lifir hamingjusömu lífi með fjögurra manna fjölskyldu í Garðabænum eða leigir kjallaraíbúð í Breiðholtinu þar sem þú lifir þínu innihaldslausa lífi nema um helgar þegar þú dustar rykið af kynþokkanum og ferð á veiðar innan um sauðdrukkna einstaklinga.

Látið ekki flíspeysuna skemma líf ykkar.

Ritstjórn
22.5.2012

Ísland kemst áfram í Eurovision!

gretajonsi

Þau Gréta Salóme og Jónsi voru stórkostleg á sviðinu og ef marka má kosningarnar heilluðu þau ekki bara landann heldur einnig Evrópu en framlag okkar Íslendinga mun keppa í aðalkeppninni næstkomandi laugardag. Gréta og Jónsi voru númer tvö á sviðið og var atriðið þeirra svo sannarlega vel útfært. Blái liturinn á sviðinu fór laginu einstaklega [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]

Ritstjórn
22.5.2012

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla

heillakedja forsida

VÍS styrkir Heillakeðju barnanna á vegum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um eina milljón króna í tilefni þess að fyrirtækið var apríl-hlekkur keðjunnar. Starfsfólk VÍS lagði söfnuninni einnig lið með eigin heillakeðju og safnaði 275 þúsund krónum í sínum ranni. Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS segir þátttöku VÍS í Heillakeðjunni hlekk í samfélagslegri [...]

Aðsendar greinar
22.5.2012

Alma Rut: Útigangsmenn eru líka fólk

loftur forsida

Það var fimmtudagur og ég var á leið til vinnu í miðbæ Reykjavíkur. Ég lagði bílnum hjá gamla Landakotsspítalanum og gekk niður brekkuna sem liggur að Alþingishúsinu. Í fjarlægð sá ég nokkra menn sitja á bekk. Ég gekk framhjá þeim þegar hávaxinn skeggjaður maður lítur til mín, heilsar og brosir.  Augu hans voru sérstök , [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Vannst þú í Facebook-bingóinu?

bingo st

FYI: Þetta er kallað vinningur í Facebook-bingóinu!  

Ritstjórn
22.5.2012

Nýjasta stjarnan í Þýskalandi: Anuri

anuri

Er maður sætastur eða hvað? F’ólk flykkist nú í dýragarðinn í Wuppertal í Þýskalandi til að berja augum ísbjarnarhúninn Anuri. Enda afskaplega fallegur!  

Ritstjórn
22.5.2012

Mér var sagt ég gæti orðið hvað sem er…

hvad sem er lil

…svo hvað gerðu þeir? Fyndnustu myndir sem þú munt sjá í dag!   Heimild: Reddit

Ritstjórn
22.5.2012

Það er svo gott að sofa!

sofa lil

Hver kannast ekki við þetta…?  

Ágústa Arna
22.5.2012

Að morgni leikdags (já, ég er júró-nörd!)

agusta arna

Árið 1986 stigu þau Eiríkur Hauksson, Helga Möller og Pálmi Gunnarsson í fyrsta sinn á svið fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (fyrirbæri sem hér eftir verður bara kallað Júróvision) í fyrsta sinn. Það væri lygi að segja að væntingarnar hafi verið engar þegar Icy hópurinn steig á svið enda var landinn með það [...]

Nafnlaust
22.5.2012

Játning: Mælikvarði á sanna vini

vinir

Hver er mælikvarðinn á sanna vini ? Á hverjum einasta degi heyrir maður eitthvað nýtt sem á að segja manni út á hvað sannur vinur gengur. Þeir eru til staðar fyrir þig þegar þú þarfnast þess mest. Það er grunnlínan. En hver og einn er mismunandi, svo hvernig maður mælir sanna vini hlýtur barasta að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Grínið varð dauðans alvara: Settu barnið í þvottavél sem fór í gang

tvottavel barn forsida

Foreldrarnir sem sjást á myndbandinu hugsuðu ekki út í afleiðingar þess að setja barnið í þvottavél í þvottahúsi. Faðir barnsins setur það inn en gætir ekki að því að þvottavélin læsist sjálfkrafa og fer hún í gang með barnið inn í. Magnþrungnar sekúndur líða eins og sjá má. Vert er að taka það fram að [...]