Flugkoma Flugmódelfélags Akureyrar var haldin í gær á Melgerðismelum. Blaðamaður veitti því athygli að engar stelpur voru í hópi „flugmanna“ og velti fyrir sér hvort hér væru á ferðinni stórir strákar með leikföng…
Ekki eins og pappírsskutlurnar
Hverjir „leika“ sér með flugmódel? Það eru alls konar menn. Ég segi menn því ekki virðast konur vera í meirihluta. Vonum að það standi til bóta! Að fljúga flugmódeli er ekki eins og að brjóta saman pappírsskutlu. Alls ekki. Þetta er mikið vandaverk og ef athygli „flugmannsins“ fer eitthvert annað þá verður flugslys!
Á flugkomunni mátti sjá allt frá litlum rellum upp í orrustuþotur. Þegar við notum orðið þotaer átt við alvöru apparat! Flugmódel sem eru þotur komast upp í 400 km hraða og ein lítil mistök eru að sjálfsögðu dýrkeypt!
Þotum á 400 kílómetra hraða er sem sagt snúið á hvolf og allt sem gert er á alvöru vélum þannig að nákvæmnin er gríðarleg og einbeitingin mikil!
Ímyndið ykkur tölvuleik á 400 km hraða…




















