Aðalleikkonan fótbraut sig daginn fyrir frumsýningu! Um 140 nemendur Verzlunarskóla Íslands hafa verið síðan í lok september að setja upp sýninguna Bugsy Malone í Austurbæ og hafa verið stífar æfingar í kringum 4 mánuði fyrir stóra daginn.
Allt lék í lindi og virtist allt ætla að smella saman á lokadögunum þegar einn aðalleikarinn, Bríet Ósk Kristjánsdóttir sem leikur Siggu Sækó (Dandy Dan), ákvað að taka upp á því að fótbrjóta sig. Daginn fyrir frumsýningu! Allur leikhópurinn fór að sjálfsögðu í töluvert sjokk varðandi það hvernig nú ætti að redda málunum, og augljóst var að of seint var að þjálfa upp nýjan staðgengil.
Þannig Gunnar Helgason, leikstjóri sýningarinnar, brá á það ráð að smella henni í hjólastól. Tók hún sig svo vel út í stólnum sem vondi kallinn í sýningunni að Gunnar ákvað að því yrði ekki breytt og hefur hún leikið í stólnum síðan, þó svo hann sé orðinn mesti óþarfi.




















