Miklar líkur gætu verið á norðurljósum í kvöld ef marka má norðurljósaspá Geophysical Institute í Alaska. Stofnunin telur að á skalanum núll upp í níu séu líkur upp á einkunnina fimm að norðurljós sjáist á himninum. Þessar líkur telur hún að séu „extreme“ eða frábærar.
Hjá Veðurstofu Íslands fást þær upplýsingar að spáin í Alaska ætti að þýða að miklar líkur séu á norðurljósum. Norðurljósabaugurinn virðist liggja yfir íslandi og Skandinavíu um þessar mundir og Alaskamennirnir séu að spá mikilli ljósadýrð. Það sé samt ekki alveg gott að segja því að baugurinn sé fjarlægur og lítið um að vera á sólinni. Það sé því ekki öruggt að norðurljósin sjáist þrátt fyrir þessa góðu spá.

Myndina tók Malín Brand við Elliðavatn
Veðurspáin fyrir kvöldið er líka góð, spáð er heiðskíru um mestallt land og því gæti verið sniðugt fyrir áhugamenn um ljósmyndun að fara út með myndavélarnar sínar í kvöld og athuga hvort þeir geti náð góðum myndum. Ekki er verra ef öll fjölskyldan vill fara saman að skoða norðurljósin!




















