Saltkjöt og baunir, túkall. Í dag er Sprengidagur og á þeim herrans degi belgjum við okkur út af dýrindis baunum, saltkjöti, uppstúf, ofsoðnum rófum, gulrótum og kartöflum.
Oftar en ekki er smjörklípu bætt út í baunasúpuna og þessu öllu saman gert góð skil með tilheyrandi bjúg, liðverkjum og öðrum aukaverkunum af of mikilli saltneyslu. Það eru til ýmsar leiðir til þess að minnka bjúginn og hreinsa líkamann.
Við heyrðum í Svenna hjá Lifandi Markaði og fengum uppskrift af frábærum vatnslosandi detox-drykk og það besta er hvað drykkurinn er einfaldur.
Svenni mælir með þessum:
Frískur detox
5 gulætur
4 sellerístangir
Þumall af engifer
Hreinsið gulræturnar og skrælið. Snyrtið til sellerístangirnar og skolið af þeim. Engifer, gulrætur og sellerístangir sett í safapressuna og allt pressað saman og grænu tedufti bætt út í fyrir vatnslosandi áhrif.
Njótið vel og munið að drekka nóg af vatni í dag og á morgun!

Mynd: Lifandi Markaður




















